Fyrirlestur

Opinn fyrirlestur Dr. Robert Costanza 26. ágúst 2009 í Öskju


Robert_CostanzaDr.  Robert Costanza mun halda opinn fyrirlestur  í Háskóla Íslands miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 16.00-18.00, í Öskju sal 132. Titill fyrirlestrarins er "Using the global recession as an opportunity to create
a sustainable and desirable future."

Dr. Robert Costanza er einn af þekktustu fræðimönnum samtímans innan umhverfisgeirans, einkum fyrir mat sitt á þeim fjárhagslegu verðmætum sem felast í þjónustu vistkerfa ("Ecosystem Services"). Grein hans um virði
náttúrunnar "The value of the world's ecosystem services and natural capital" sem birtist í Nature 1997, hefur vakið gríðarlega athygli og er ein þeirra greina sem hvað mest hefur verið vitnað í, í umhverfisfræði og vistfræði síðustu 10 árin. Í greininni var lagt mat á alheims-virði þjónustu náttúrunnar og bentu niðurstöður til að verðmæti þessarar þjónustu væri nær tvöfalt hærra en samanlögð þjóðarframleiðsla allra þjóða, eins og hún er venjulega mæld. Þrátt fyrir að greinin væri ákaflega umdeild, olli hún straumhvörfum innan umhverfisfræði og umhverfishagfræði.


Dr. Costanza, sem er prófessor í visthagfræði (ecological economics) og forstjóri Gund Institute for Ecological Economics við Vermontháskóla, er aðalkennarinn við alþjóðlega sumarskólann Breaking the barriers, sem haldinn verður við Háskóla Íslands 24-25 ágúst 2009. Þess að auki er Dr. Costanza þáttakandi í íslensku rannsóknarverkefni þar sem lagt er mat á mikilvægi þjónustu náttúrunnar á Íslandi, og er þetta fyrsta íslenska rannsóknin á þessu sviði.

Dr. Costanza hefur birt meira en 400 vísindagreinar og samið 20 bækur.
Vitnað hefur verið í verk hans í meira en 4500 vísindagreinum og er hann einn þeirra vísindamanna sem oftast hefur verið  vitnað til í vísindaheiminum (one of ISI's Highly Cited Researchers).  

Finna má frekari upplýsingar um Dr. Robert Costanza og Gund stofnunina á vefsíðunni www.uvm.edu/giee/

Sjá einnig frétt af vedur.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Ég fór á fyrirlesturinn, það var fullur salur af fólki. Fyrirlesturinn var áhugaverður og mun ég hugsanlega skrifa færslu um hann. Fyrirlesarinn kom inn á marga áhugaverða hluti um m.a. endurnýjanlega framtíð ekki síst í hagkerfinu. Mér skilst að hann verði í Kastljósi á morgun, ég mæli með því að  kíkja á það.

Sveinn Atli Gunnarsson, 26.8.2009 kl. 19:57

2 Smámynd: Loftslag.is

Flott er, ég komst ekki sökum vinnu. Kíki á kastljósið á morgun.

Loftslag.is, 26.8.2009 kl. 21:30

3 Smámynd: Loftslag.is

Áhugaverð umfjöllun um fyrirlesturinn hjá Stefáni Gíslasyni: http://stefangisla.blog.is/blog/stefangisla/entry/938293/

Loftslag.is, 27.8.2009 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband