Hitabylgjur í Evrópu

news_2010_238_romeNý rannsókn bendir til þess að hitabylgjur í Evrópu muni reynast sérstaklega erfiðar þeim sem búa á láglendum dölum og í strandborgum við Miðjarðarhafið.

Fischer og Schär (2010) notuðu bæði hnattrænt og svæðisbundið loftslagslíkan til að spá fyrir um breytingar á tíðni og lengd hitabylgja í Evrópu á þessari öld. Þeir notuðu einskonar miðspágildi bæði hvað varðar þróun á loftslagi og efnahagsvexti á þessari öld. Mismunandi keyrslur líkanana gáfu mikinn breytileika í alvarleika hitabylgja, en jafnframt frekar stöðugar niðurstöður um það hvar helst mátti eiga von á verstu afleiðingunum.

Hiti ásamt miklum raka getur valdið krampa, örmögnun, hitaslagi og í verstu tilfellum dauða. Aldnir og smábörn eru viðkvæmust. Hitabylgjan sem reið yfir Evrópu árið 2003 olli beint og óbeint dauða um 70 þúsund manns og tjóni í landbúnaði og skógrækt sem nam um 13,1 milljarða evra.

Lesa má meira á loftslag.is: Hitabylgjur í Evrópu

Tengt efni á loftslag.is:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband