Jörðin er kolefnissvelt - Umfjöllun um mýtu


thumb_richard_alley

Dr. Richard Alley

Í nýju myndbandi á loftslag.is frá Greenman3610 (Peter Sinclair) er m.a. fjallað um þá mýtu að það hafi áður verið mikið CO2 í andrúmsloftinu (sem er rétt) og þ.a.l. skipti magn CO2 í dag ekki svo miklu máli heldur (sjá m.a. mýtuna – Styrkur CO2 var hærri til forna). Í myndbandinu bregður vísindamanninum Dr. Richard Alley fyrir nokkrum sinnum og eru flest þau klipp frá fyrirlestri hans, CO2 – áhrifamesti stjórntakkinn (sem við á loftslag.is mælum eindregið með). Að mestu leiti nálgast Greenman efnið út frá þessari mýtu um að meira CO2 sé bara betra og að venju bregður fyrir kaldhæðni í efnistökum hjá honum. Í lýsingu sinni á myndbandinu segir hann:

Saga Jarðar er stórbrotin og fjölbreytt, og það er auðvelt að verða ringlaður og bjaga hana með því að blanda saman hlutum sem ekki eiga saman í raunveruleikanum.

Það sem var náttúrulegt í fjarlægri fortíð passar ekki endilega vel saman með veröld manna. Að láta nútíma manneskjur og loftslag fornaldar mætast gæti leitt til árekstrar.

Myndbandið er hægt að sjá á loftslag.is, Jörðin er kolefnissvelt - Umfjöllun um mýtu

Tengt efni á loftslag.is:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband