Vísindin sett á gapastokk

Í myndbandi á loftslag.is skoðar Greenman3610 hvar best er að nálgast áreiðanlegar heimildir um loftslagsvísindin og einnig fer hann yfir mál þar sem fram kom frétt, á Daily Mail, um að Phil Jones (loftslagsvísindamaður) hefði fullyrt að engin hlýnun hefði verið síðan 1995, sem er ekki sannleikanum samkvæmt. Það kom þó ekki í veg fyrir að sumir fréttamiðlar og fjöldin allur af bloggsíðum endurómuðu það sem einhverja staðreynd og reyndu setja vísindin á gapastokk, ef svo má að orði komast. En hvernig nálgast maður upplýsingar um vísindin? Eftirfarandi er lýsing Greenman3610 á myndbandinu:

Þar sem ég er ekki vísindamaður, þá dregur hið mikla magn upplýsinga um hnattrænar loftslagsbreytingar, úr mér kjarkinn þegar kemur að því að skoða þær. Ég hef komist að því að lang áreiðanlegustu heimildirnar koma úr virtum ritrýndum tímaritum. En tímarit hafa mörg löng orð, mikið af smáu letri og lítið af myndum, sem auðveldar mér ekki lífið. Það er því auðvelt að sjá hvers vegna þeir sem afneita loftslagsvísindunum líkar ekki við þau. En það er þar sem staðreyndirnar eru.

Hvernig er hægt að bera kennsl á góð vísindatímarit?

Að venju eru myndbönd Greenman3610 nokkuð kaldhæðin, en þau innihalda oft nokkuð fróðlegan vinkil á málin, sjá önnur myndbönd frá honum hér.

Myndbandið má sjá á loftslag.is, Vísindin sett á gapastokk

Tengt efni á loftslag.is:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Takk fyrir þetta Magnús.

Ég tel að þú þurfir að skoða þetta myndband sem þú setur inn með gagnrýnum augum og athuga heimildir og fleiri atriði á bak við þær fullyrðingar sem þar eru settar fram. Þú skoðar það kannski við tækifæri :)

Sniðugt að þú velur þessa mynd, hún kemur einnig fram á loftslag.is, Climategate – Nú ár er liðið…skandallinn sem ekki varð og undir myndinni er eftirfarandi texti:

Þessi mynd er lýsandi fyrir hugsanagang þeirra sem afneita vísindum og vilja sýna þau í villandi ljósi (google myndaleit - climategate)

Sveinn Atli Gunnarsson, 28.12.2010 kl. 08:28

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Gangi þér vel með trúboðið Svatli, alltaf leiðinlegt þegar trúaðir lenda á glapstigum, hvað þá á gapastokk.

Magnús Sigurðsson, 28.12.2010 kl. 08:34

4 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Já, já Magnús, það að segja frá hlið vísindanna er kannski trúboð í þínum augum, þú verður að eiga það við sjálfan þig :)

Sjá t.d. Mýtan um trúarbrögð í loftslagsvísindum

Sveinn Atli Gunnarsson, 28.12.2010 kl. 08:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband