Dagur loftslagsáhrifa - línurnar dregnar

Á laugardaginn 5. maí er svokallaður dagur loftslagsáhrifa (e. Climate Impacts Day). Dagurinn er haldin í fyrsta sinn í ár og er kominn til, fyrir tilstilli 350.org og má finna heimasíðu verkefnisins hér, Climate Impacts Day. Á degi loftslagsáhrifa eru haldnir viðburðir víða um heim þar sem ætlunin er að minna á loftlagsáhrif sem tilkomin eru vegna losunar gróðurhúsaloftegunda okkar mannanna. Það er nokkuð ljóst í hugum þeirra sem skoða þessi mál á málefnalegan hátt og út frá því sem vísindin hafa um málið að segja, að maðurinn hefur áhrif á hitastig í heiminum með gríðarlegri losun gróðurhúsalofttegunda og mælingar staðfesta kenninguna. Línurnar eru skýrar og það þarf ekki að velkjast í vafa um að loftslagsbreytingar hafa og munu halda áfram að áhrif á íbúa jarðar.

Það virðist þó ekki vera neinn viðburður á Íslandi á degi loftslagsáhrifa, eins og sjá má á heimasíðu verkefnisins, en kannski einhver geti tekið að sér að stofna til viðburðar (Höskuldur og ég sjálfur höfum því miður öðrum hnöppum að hneppa nú um stundir). En mig langar þó að hvetja til umhugsunar um þessi mál og jafnvel taka upp umræðu á kaffistofum, afmælis- og skírnarveislum og fleiri stöðum þar sem fólk kemur saman. Hvort sem það er núna á laugardag eða bara hvenær sem er, þá er nauðsynlegt að ræða þessi mál, enda verður vandamálið á borðum okkar í framtíðinni, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Umræða um lausnir er ekki síður mikilvæg, enda margar leiðir til þess og margar ólíkar skoðanir um hvernig best er að nálgast þær.

Á loftslag.is má finna ýmislegt um þessi mál. Fyrst ber kannski að nefna undirsíðu þar sem lesa má ýmislegt um kenningarnar og sögu loftslagsvísinda, Kenningin - þar má finna eftirfarandi undirsíður:

Sagan
Áhrif CO2 uppgötvað
Orsakir fyrri loftslagsbreytinga
- Áhrifaþættir hinnar hnattrænu hlýnunar
Grunnatriði kenningarinnar
Mælingar staðfesta kenninguna
Loftslag framtíðar

Á annarri athyglisverðri síðu má finna leiðarvísinn, Efasemdir um hnattræna hlýnun – Hinn vísindalegi leiðarvísir, sem er áhugaverður leiðarvísir um loftslagsmál. Leiðarvísinn má prenta út og hafa með sér hvert sem er, m.a. í strætó, vinnuna, flugvélar, skírnir o.s.frv. – maður verður að sjálfsögðu hrókur alls fagnaðar með hann í farteskinu!

Það þarf einnig að minnast á mýtusíðuna í þessu tilliti, enda mikið af marg notuðum mýtum í umferð um þessi mál. T.d. má nefna mýtur eins og að það hafi verið loftslagsbreytingar áður (sem er staðreynd) og þ.a.l. þá séu núverandi loftslagsbreytingar bara náttúrulegar eða þá mýtan að þetta hljóti að vera sólin. Báðar mikið notaðar, en hvorug stenst nánari skoðun, enda styðja mælingar ekki þess háttar fullyrðingar.

Að lokum má kannski benda á eftirfarandi tengli, þar sem finna má þýðingarmikið efni sem ratað hefur á loftslag.is í gegnum tíðina (ekki tæmandi listi).

En allt í allt má segja að línurnar séu skýrar og gögnin afgerandi, loftslagsbreytingar af mannavöldum er staðreynd – En það er ekki of seint í rassinn gripið, bara um að gera að fara að huga að því hvað er til ráða – það er ekki eftir neinu að bíða. Umræða og upplýsingar eru til alls fyrst.

Auka lesefni:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

haha... þið tveir, sko. Þið verðið ekkert þreyttir á þessu bulli að halda úti þessum vefsíðum ykkar og áróðri.

Básúnið um hvað vísindin eru öll ykkar megin og tjúllist ef einhver dirfist að gagnrýna það. Þegar virtir vísindamenn gagnrýna þessa langsóttu kenningu ykkar, þá eru þeir bara fífl og á launum hjá vondu fólki.

Þið tveir eruð fábjánar. Það sést af margra mílu fjarlægð. ....enda fólk hætt að nenna að reyna rökræður við ykkur. Þið vitið ekki einu sinni hvað orðið þýðir.

Leit bara við til að hlæja að ykkur. Þið eruð konungar hálfvitana.

PS- já og verið kanski aðeins minna aumingjalegir þegar þið biðjið fólk um að taka þátt í áróðrinum með ykkur!!  Hahaha... 

PSPS- ekki gleyma að deleta ummælunum mínum. Það þolir enga bið. Það má engin gera grín að ykkur, snillingunum.

Hahaha....

palli (IP-tala skráð) 5.5.2012 kl. 11:11

2 Smámynd: Loftslag.is

Við viljum þakka palla fyrir innleggið og "hlýju" orðin. Hann sýnir í orði mjög ljóslega hvað við er að etja í þessari umræðu og hvers vegna fólk hugsanlega vill ekki taka mikið þátt í umræðunni. Það er frekar ógeðfelt hvernig umræðumenninginn um þessi mál getur þróast.

Best að leyfa þessari athugasemd palla (hver sem hann nú er) að standa til minningar um þessa leiðinlegu þróun mála... Það er erfitt að ræða málin á málefnalegum nótum, þegar svona nálgun er notuð.

PS. Við lokum að sjálfsögðu fyrir svona ómálefnalega umræðu héreftir á þessum þræði - og hefur verið lokað fyrir palla...ekki í fyrsta skipti, og væntanlega ekki síðasta heldur.

Loftslag.is, 6.5.2012 kl. 11:09

3 identicon

 Apríl í ár, 5.heitasti í sögunni., getur þetta staðist?

http://www.msnbc.msn.com/id/47430947/ns/weather/

albert (IP-tala skráð) 15.5.2012 kl. 20:15

4 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Samkvæmt NOAA, þá stenst það Albert, sjá http://www.ncdc.noaa.gov/sotc/global/2012/4

Sveinn Atli Gunnarsson, 16.5.2012 kl. 08:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband