Ísöld spáð á áttunda áratugnum?

Ein af mótrökunum gegn hlýnun jarðar af mannavöldum sem poppar alltaf annað slagið upp, að því er virðist fyrir tilviljun, er sú míta (goðsögn/flökkusaga) að vísindamenn hafi almennt séð verið að spá hnattræna kólnun eða nýrri ísöld á áttunda áratugnum. Þau rök virðast miða að því að segja að fyrst vísindamenn voru svo vitlausir að spá ísöld þá, þá eru þeir varla færir um að spá fyrir um hlýnun nú.

med_ice_age_return_1
Oft er vísað í gamlar og fyndnar fréttir eða greinar. Reyndar er þessi grein held ég frá fjórða áratugnum (sé það ekki nógu vel, enda skiptir það ekki máli) 

Ég vil kalla þetta flökkusögu, því hún gengur manna á millum. Einn les þetta á netinu, hann endurtekur það síðan sem athugasemd á bloggi og annar grípur það og segir í kaffistofunni og þar grípur annar það og bloggar um það og svo framvegis.

Fyrst er rétt að benda á að það er ekki fótur fyrir þessu. Sjá greinina The Myth of the 1970s Global Cooling Scientific Consensus (Pdf-skrá).

Í stuttu máli segir greinin (mitt orðalag):

Loftslagsfræði eins og við þekkjum þau í dag voru ekki til á sjöunda og áttunda áratugnum. Á þeim tíma voru vísindamenn hver í sínu horni. Þar voru þeir sem rannsökuðu efnafræði lofthjúpsins, CO2 og önnur gös og áhrif þeirra á loftslag jarðar í einu horni. Jarðfræðingar og fornloftslagsfræðingar voru á sama tíma að skoða hvernig jörðin gekk í gegnum ísaldaskeið og hvers vegna. Við skoðun á ritrýndum greinum kom í ljós að öfugt við flökkusöguna, þá voru menn þá líkt og nú að ræða hlýnun af völdum gróðurhúsalofttegunda og þær taldar hafa hvað mest áhrif á loftslag jarðar nútímans. Höfundar segja að auki að þó greinin sýni villu flökkusögunnar, þá sýnir greinin að auki að vísindamenn þess tíma bjuggu til undirstöður þess sem nútíma loftslagsvísindamenn byggja á enn í dag.

1970s_papers
Hér er mynd úr greininni sem sýnir fjölda ritrýndra greina um loftslag sem sýna kólnun, hlutlaus og hlýnun.

Hér er gerður greinamunur á ritrýndum tímaritsgreinum annars vegar og svo fjölmiðlum og fréttum úr vinsælum tímaritum sem fjölluðu um vísindi hins vegar. Fjölmiðlar og tímarit birtu oft greinar um kólnun jarðar (en jafnvel í sama blaði grein um hlýnun jarðar) eða eins og segir í greininni sem vísað er í hér fyrir ofan um eina fréttina sem skoðuð var:

Science Digest’s 1973 article “Brace yourself for another Ice Age” (Colligan 1973) primarily focused on ice ages and global cooling, with the warning that “the end of the present interglacial period is due ‘soon.’” However, it clarified that “‘soon’ in the context of the world’s geological time scale could mean anything from two centuries to 2,000 years, but not within the lifetime of anyone now alive.” The article also mentioned that “scientists seem to think that a little more carbon dioxide in the atmosphere could warm things up a good deal.”

Allavega er niðurstaðan sú að flökkusagan um það að vísindamenn hafi verið almennt sammála um kólnun jarðar á áttunda áratugnum á ekki við rök að styðjast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband