Fjöldi sterkra storma í Vestur Atlantshafi gæti tvöfaldast við lok aldarinnar, á sama tíma og heildarfjöldi allra storma minnkar, samkvæmt nýrri rannsókn. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á aukningu á styrk fellibylja, en vísindamönnum hefur nú tekist að þróa líkön sem líkja eftir stormum af styrk 3 eða hærri (sjá skilgreiningu á styrk fellibylja), sem gerir þeim kleift að spá fyrir um storma á þessari öld.
Nánar má lesa um málið á loftslag.is, sjá: Tíðni sterkra storma á Atlantshafi
Athugasemdir
Sælir.
Fróðlegir sögulegir ferlar á vefsíðu Florida State University:
http://www.coaps.fsu.edu/~maue/tropical/
Einnig á vefsíðu NOAA:
http://www.gfdl.noaa.gov/historical-atlantic-hurricane-and-tropical-storm-records
Svo verðum við að hafa í huga að fyrir daga gervihnattanna er líklegt að margir stormar hafi farið fram hjá mönnum.
"...Að fortíð skal hyggja, ef frumlegt skal byggja,
án fræðslu þess liðna sést ei, hvað er nýtt..." - E.B.
Ágúst H Bjarnason, 13.2.2010 kl. 12:50
Það sem ég er með í huga er að hjá FSU er uppsafnað orkuinnihald yfir stormtímabilið notað sem viðmið, en þeir segja eftirfarandi um þessa aðferðafræði:
The Accumulated Cyclone Energy metric combines frequency, duration, and the intensity of tropical cyclones into one value that can be calculated from historical storm records as well as current operational center (i.e. NHC) advisories. The ACE is simply the wind speed squared (times 10^4 kts^2) for each 6-hour storm location and intensity estimate -- added up for an entire season or whatever period you wish to define. CLIMO based upon 1979-2008 climatology
Svo er það löngu ferlarnir á síðu NOAA sem er gaman að skoða, og þessa löngu (60 ára?) sveiflu sem þar sést.
Ágúst H Bjarnason, 13.2.2010 kl. 14:39
Það er alveg rétt hjá þér Ágúst, það eru mörg atriði sem hafa ber í huga.
Til fróðleiks, þá benti Halldór Björnsson okkur á eftirfarandi tengil inn á Loftslag.is. Jim Elsner við Flórídaháskóla (FSU) er með rannsóknahóp sem skoðar m.a. tölfræði fellibylja. Vefsíðu hópsins má finna http://myweb.fsu.edu/jelsner/index.html
Þar kemur m.a. fram:
Sveinn Atli Gunnarsson, 13.2.2010 kl. 15:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.