29.3.2010 | 09:27
Norðvestur Grænlandsjökull bráðnar líka
Hér er færsla sem einnig var birt á loftslag.is
Bráðnun Grænlandsjökuls, sem hefur verið að aukast á Suður Grænlandi undanfarinn áratug hefur einnig verið að aukast til norðurs eftir Vesturströnd Grænlands, samkvæmt niðurstöðum í nýlegri grein sem birtist í Geophysical Research Letters.
Niðurstöðuna fengu vísindamennirnir með því að bera þyngdarmælingar frá gervihnettinum GRACE, saman við samfelldar GPS mælingar á berggrunni við jaðar jökulbreiðunnar.
Gögnin frá GPS mælingunum, ásamt þyngdarmælingunum veita upplýsingar um meðal-landris mánaðarlega, af völdum massabreytinga í Grænlandsjökli. Rannsóknateymið fann að landris við Thule flugstöðina á norðvesturströnd Grænlands var um 4 sm frá október 2005 til ágúst 2009. Þótt upplausn gervihnattagagnanna sé of lítil (um 250 * 250 km reitir) til að sýna nákvæmlega hvar jökull bráðnar mest, þá bendir þynning jökulsins við jaðar jökulbreiðunnar til þess að hraði skriðjöklanna sé að aukast.
Heimildir og ítarefni
Hægt er að nálgast greinina sjálfa hér (ágrip): Spread of ice mass loss into northwest Greenland observed by GRACE and GPS
Umfjöllun um greinina má nálgast á heimasíðu háskólans í Colorado: Greenland Ice Sheet Losing Ice Mass on Northwest Coast, Says New International Study
Tengdar fréttir um Grænlandsjökul og bráðnun hans á loftslag.is:
- Bráðnun jökulbreiðna Grænlands
- Hvenær fer bráðnun Grænlandsjökuls á fullt?
- Hlýir sjávarstraumar hraða bráðnun Grænlandsjökuls
- Bráðnun Grænlandsjökuls
Að auki er stutt myndband sem sýnir hvernig bráðnun Grænlandsjökuls er að dreifa úr sér, samkvæmt gögnum frá GRACE gervihnettinum, frá árinu 2003-2009, sjá færsluna sjálfa á loftslag.is: Bráðnun Grænlandsjökuls til norðvesturs
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.