29.5.2010 | 15:31
3 Myndbönd
Síðustu daga höfum við birt þrjár færslur á loftslag.is með myndböndum sem eru áhugaverð, hvert á sinn hátt:
- Abraham á móti Monckton - Í þessu myndbandi er sýnd glærusýning þar sem vísindamaður að nafni John Abraham fer í gegnum glærusýningu Monctons og uppgötvar ýmislegt misjafnt. Þetta er langt myndband, en er þó fróðlegt þeim sem vilja kynna sér mistúlkanir og óheiðarleika sumra þeirra sem afneita loftslagsvísindunum.
- Ósérhæfðir sérfræðingar - Myndband frá Potholer54 sem fjallar m.a. um ósérhæfða sérfræðinga, gott ef Moncton bregður ekki fyrir þarna líka. Í myndbandinu er m.a. fjallað um sjálfskipaða sérfræðinga. Myndir þú t.d. láta veðurfræðing gefa þér sérfræði ráð varðandi húðsjúkdóma? - Varla, en það eru margir sjálfskipaðir "sérfræðingar" þegar kemur að loftslagsfræðunum.
- Fyrirsagnir um loftslagsmál - Áhugaverður TED fyrirlestur sem Rachel Pike hélt um rannsóknir þær sem mynda fyrirsagnir blaða og tímarita um loftslagsmál. Það liggur ýmislegt að baki fyrirsögnunum, mikil vinna við rannsóknir og mælingar.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Athugasemdir
Sælir félagar.
Þar sem þið minnist á hinn ofursnjalla og áheyrilega Christopher Monckton þá var hann fyrir fáeinum dögum, 24 maí s.l., í alllöngum spjallþætti CrossTalk á stöðinni Russia Today (www.rt.com).
Sjá upptöku af þættinum á YouTube:
http://www.youtube.com/watch?v=pQ0iDoZhLKk
Ágúst H Bjarnason, 29.5.2010 kl. 17:54
Sæll Ágúst
Verst hvað hann fer ansi frjálslega með staðreyndir karlgreyið... Svona mistúlkanir gagna eins og hann augljóslega stundar, gerir hann nú ekki mjög snjallan í mínum huga. Annars held ég að með þessu háttalagi sínu sé hann að grafa undan málatilbúnaði afneitunarsinna, sem er kannski bara hið besta mál
PS. Þú veist væntanlega Ágúst, að hann er ekki Lord (lávarður), eins og hann titlar sjálfan sig opinberlega? Annars má sjá nánar um það og fleira í myndböndunum Hrakningar Lord Monckton – 1. hluti og Hrakningar Lord Monckton – 2. hluti
Sveinn Atli Gunnarsson, 29.5.2010 kl. 18:09
Kæri Ágúst
Ég tók mig til og horfði á þetta viðtal við Monckton og 2 aðra sem þú bentir á. Þetta er alveg eftir bókinni, hann fer með rangt mál og er óheiðarlegur í sínum málflutningi. Í þessu viðtali er hann einnig dónalegur, þar sem hann gefur viðmælendum sínum ekki möguleika á að svara fyrir sig vegna endalausra framíkalla. Þar fyrir utan virðist hann byggja allan sinn málflutning í þessu viðtali á gögnum Lindzen og Choi 2009, sem búið er að marg hrekja. Sjá t.d. Relationships between tropical sea surface temperature and top-of-atmosphere radiation (Trenberth o.fl. 2010) og einnig (Murphy 2010). Þú getur strax byrjað að hlakka til mánudagsins þegar við birtum færslu um jafnvægissvörun Lindzen, á loftslag.is, en jafnvægissvörun hans virðist byggð á sérvöldum gögnum sem passa við fyrirfram ákveðna niðurstöðu. Þó er hann einn af örfáum úr hópi efasemdarmanna sem getur státað sig að því að geta titlað sig sem loftslagsvísindamaður, en það virðist þó ekki koma í veg fyrir að hann geti mistúlkað gögn.
Sveinn Atli Gunnarsson, 30.5.2010 kl. 01:35
Eins og ég hef áður sagt, þá vona ég að þið hafið rétt fyrir ykkur og hlýindin góðu haldi áfram, þó svo ég óttist hið gagnstæða.
Með ykkar hjálp held ég þó í vonina...
Ágúst H Bjarnason, 30.5.2010 kl. 06:00
Að mínu mati væri óskandi að vísindamenn (þ.e. hinn mjög stóri meirihluti) hefðu rangt fyrir sér varðandi áhrif gróðurhúsalofttegunda, þó fátt ef eitthvað bendi til þess að svo sé. Við höfum persónulega engin sérstök áhrif á hlýnunina, þannig að það er óþarfi að nefna okkur sérstaklega í því ljósi, enda erum við einungis að segja frá því sem vísindin hafa um málið að segja.
En kannski er sá lærdómur sem hægt er að draga af þessari umræðu í þessari færslu að Monckton er langt frá þvi að vera áreiðanlegur hvað varðar loftslagsumræðuna. Hann fer með fleipur og er óheiðarlegur í nálgun sinni, þó svo einhverjir telji hann, einhverra hluta vegna, vera ofursnjallann og áheyrilegann.
Sveinn Atli Gunnarsson, 30.5.2010 kl. 09:48
Monckton er alveg magnaður
Ágúst H Bjarnason, 30.5.2010 kl. 10:29
Já Ágúst, það er magnað bullið sem kemur frá honum, hann er ekki eftirbátur margra í þeim efnum
T.d. það sem hann skrifaðu um AIDS á sínum tíma:
Ætli hann sé ekki bara hræddur lítill karl, sem einhverra hluta vegna telur að hans skoðanir hans skipti einhverju máli og að honum sé óhætt að bulla endalaust til að fá athygli.
Sveinn Atli Gunnarsson, 30.5.2010 kl. 10:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.