11.9.2010 | 19:09
Útbreiðsla hafíss í ágústmánuði
Hafís Norðurskautsins nær yfirleitt lágmarksútbreiðslu um miðjan september. Í ágúst var hafísútbreiðslan sú næst lægsta fyrir mánuðinn síðan gervihnattamælingar hófust, aðeins 2007 var minni útbreiðsla. Þann 3. september fór hafísútbreiðslan undir minnstu útbreiðslu ársins 2009 og er þar með örugglega komin með 3. lægstu lágmarksútbreiðslu samkvæmt mælingum.
Bæði Norðvestur- og Norðuausturleiðin eru að stórum hluta hæfar til siglinga, þannig að það er mögulegt að sigla hringinn. Minnsta kosti tveir leiðangrar eru að reyna þá siglingu um þessar mundir, en það er norskur leiðangur áBorge Ousland og svo rússnesk snekkja Peter I.
Á heimasíðu sem fjallar um útbreiðslu hafíss, er sett upp tafla sem sýnir hver lokaútkoman verður miðað við þær forsendur að lok bráðnunartímabilsins hagi sér líkt og síðastliðin 5 ár, sjá hér. Þetta er fróðleg pæling og eins og staðan er um þetta leiti lítur þetta svona út:
Ef bráðnunin 2010 verður eins mikil og var árið…
- 2005 eftir þessa dagssetningu, verður lágmark ársins 4,65 miljón km2.
- 2006 eftir þessa dagssetningu, verður lágmark ársins 4,82 miljón km2.
- 2007 eftir þessa dagssetningu, verður lágmark ársins 4,82 miljón km2.
- 2008 eftir þessa dagssetningu, verður lágmark ársins 4,95 miljón km2.
- 2009 eftir þessa dagssetningu, verður lágmark ársins 4,90 miljón km2.
...
Nánar um þetta á loftslag.is, þar sem eru m.a. ýmsar myndir og gröf varðandi útbreiðslu hafíssins; Hafís | Ágúst 2010.
Tengt efni á loftslag.is:
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.