13.9.2010 | 10:43
Noam Chomsky í beinni á Íslandi
Á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, sem haldin er síðar í þessum mánuði, verður boðið upp á mynd-fyrirlestur með Noam Chomsky í Sal 1 í Háskólabíói þriðjudaginn 28. september næstkomandi, frá kl. 17 til 19. Um er að ræða fyrirlestur þar sem Chomsky talar í beinni útsendingu á bíótjaldi frá heimabæ sínum, Cambridge í Massachusetts.
Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Aðgangur að honum er ókeypis. Sjá nánar, Noam Chomsky heldur fyrirlestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð. Það er möguleiki á að koma með spurningar fyrir Chomsky á heimasíðu RIFF, sjá nánar Viltu spyrja Noam Chomsky að einhverju?
Noam Chomsky hefur einnig verið ötull í umræðunni um loftslagsmál. Í myndbandi (sem hægt er að sjá á loftslag.is) talar Chomsky um hið samhljóða álit vísindamanna og um þá sem afneita loftslagsvísindunum og það pláss sem hverri hlið fyrir sig er gefið í fjölmiðlum. Fjölmiðlar láta oft á tíðum í veðri vaka að um tvo jafnstóra hópa sé að ræða og að það sé fjörleg umræða um það hvort gróðurhúsalofttegundir hafi áhrif á hitastig eða ekki. Þetta er kolrangt þar sem meðal vísindamanna er nær samhljóða álit í þessum efnum og þar af leiðandi endurspeglar umræðan oft ekki þann samhljóm. Eftir Chomsky er stutt viðtal við Bill McKibben forsvarsmann 350.org þar sem hann ræðir m.a. um svokallaða vendipunkta í loftslagi, ásamt því sem 350.org er að reyna að ná fram með hreyfingunni.
...
Myndbandið er hægt að sjá á loftslag.is, Noam Chomsky í beinni á Íslandi
Tengt efni af loftslag.is
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.