1.2.2011 | 09:09
Loftslagsbreytingar til forna – lærdómur til framtíðar
Þegar saga loftslagsbreytinga Jarðar er skoðuð þá virðist allt benda til þess að hitastig Jarðar í náinni framtíð eigi eftir að verða mun meiri en búist er við, vegna áframhaldandi losun CO2 út í andrúmsloftið. Jeffrey Kiehl hjá NCAR lýsir í þessu myndbandi hver staðan gæti orðið ef ekki verður dregið úr losun á CO2 en í lok þessarar aldar þá gæti styrkur þess verið orðinn svipaður og fyrir 30-100 milljónum ára en þá var hitastig mun hærra en í dag.
Hitastig Jarðarinnar mun halda áfram að hækka næstu aldir og þúsaldir vegna hækkandi styrks CO2 í andrúmsloftinu. Samkvæmt Kiehl þá er jafnvægissvörun loftslags til lengri tíma litið um tvöfallt hærri en skammtímabreytingar gefa til kynna. Það sé vegna þess að loftslagslíkön eigi í erfiðleikum með að herma breytingar eins og bráðnun jökulbreiða sem gerast á öldum eða þúsöldum og magna upp upprunalegu hlýnunina af völdum CO2.
[...]
Myndbandið má sjá á loftslag.is, Loftslagsbreytingar til forna lærdómur til framtíðar
Tengt efni á loftslag.is
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.