4.2.2011 | 13:37
Heitur sjór streymir í Norður-Íshafið
Sjór sem flæðir úr Norður-Atlantshafi og í Norður-íshafið er heitari í dag en nokkurn tíman síðustu tvö þúsund árin ef marka má nýlega rannsókn sem birtist í Science. Niðurstaðan gefur skýrari mynd af hlýnun sjávar og bráðnun hafís en áður og tengja höfundar það magnandi svörun loftslags á Norðurskautinu (sem stundum er kölluð Norðurskautsmögnunin). Svæðið sem Spielhagen o.fl. (2010) rannsökuðu er í Framsundi (Fram Strait sem er sundið milli Svalbarða og Grænlands), en þar er rás fyrir hlýjan sjó úr suðri að streyma í Norðurskautið og er það á um 50 m dýpi. Á því dýpi getur sjórinn náð allt að 6°C að sumri samanborið við -2°C hita við yfirborðið.
[...]
Sjá nánari umfjöllun á loftslag.is - Heitur sjór streymir í Norður-Íshafið
Heimildir og ítarefni
Greinin sem birtist í Science er eftir Spielhagen o.fl. 2011 (ágrip): Enhanced Modern Heat Transfer to the Arctic by Warm Atlantic Water
Góða umfjöllun má lesa á heimasíðu Nature news: Arctic Ocean feels the heat
Tengt efni á loftslag.is
- Minnkandi endurskin Norðurskautsins, magnar upp hnattræna hlýnun
- Hlýir sjávarstraumar hraða bráðnun Grænlandsjökuls
- Eru úthöfin að hitna?
- Hlýnun djúpsjávar og sjávarstaða
Sjór í Framsundi ekki verið hlýrri í 2000 ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.