14.8.2012 | 15:36
Líkur á öfgum í hita hafa aukist
Ný rannsókn sem gerð var af vísindamönnum NASA sýnir að líkur á öfgum í hita eru mun meiri en fyrir hálfri öld síðan, en vísindamenn telja ljóst að þessar auknu líkur séu vegna loftslagsbreytinga.
Við greiningu á langtíma leitnilínum hitastigs, þá lýstu höfundar því hvernig öfgaheit sumur höfðu einungis áhrif 1% yfirborð jarðar milli áranna 1951 og 1980 - en hafa stækkað áhrifasvæði sitt undanfarna þrjá áratugi. Samkvæmt greiningu þeirra, þá hefur um 10% landmassa norðurhvels jarðar orðið fyrir öfgaheitum sumrum frá árinu 2006 og til dagsins í dag. Líkurnar á slíkum sumrum voru 1:300 milli 1951 og 1980 - en nú eru líkurnar 1:10.
Heimildir og ítarefni
Greinina má lesa á heimasíðu PNAS: Hansen o.fl. 2012: Perception of climate change
Umfjallanir um greinina má lesa á heimasíðu Tamino (Hansen Et.al.2012) og á Climate Central (Hansen Study: Extreme Weather Tied to Climate Change).
Tengt efni á loftslag.is
- Auknir veðuröfgar breyta almenningsáliti í Bandaríkjunum
- Öfgar í veðri líkurnar aukast
- IPCC telur að aukin tilfelli öfga í veðri sé tengt hækkandi hitastigi
- El Nino og loftslagsbreytingar út þessa öld
- Loftslag og veður öfgar aukast
- Óvenjulegt veður árið 2010
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.