19.9.2009 | 18:01
Loftslag.is opin
Núna opnar heimasíðan loftslag.is formlega, en þar kennir ýmissa grasa.
Þar munu t.d. birtast í dag fréttir um sjávarhita í ágúst, myndun íshellunnar á suðurskautinu og nýjar rannsóknir sem segja að niðursveifla í sólinni hægi á hlýnun jarðar af mannavöldum. Einnig má finna nokkur myndbönd, m.a. kynningu á kvikmynd sem verður frumsýnd á þriðjudaginn næsta.
Minnst verður á áhrif hlýnunar jarðar á tékkneska bjórinn og margt fleira sem of mikið er að telja upp hér. Þá verða samkvæmt venju opnunarpistlar ritstjórnar og svo rúsínan í pylsuendanum fyrsti gestapistillinn, en þar mun Halldór Björnsson skrifa gestapistil um sögu vísindanna og afleiðingar loftslagsbreytinga.
Auk þess eru föstu síðurnar margar hverjar tilbúnar - en þær sem á vantar koma á næstu vikum.
Endilega kíkið við og takið þátt frá byrjun
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.