3.11.2015 | 14:50
Hver er staðan á jöklum Suðurskautsins?
Loftslag.is fjallaði um málið:
Hver er staðan á jöklum Suðurskautsins?
Bætist við ísinn enn um sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2014 | 12:58
Um yfirvofandi Litla Ísöld
Nú keppast ýmsir við að benda á fréttir sem birtast á pressan.is og mbl.is um yfirvofandi litla ísöld - vegna minni sólvirkni og vegna möguleikans á því að sú sólvirkni eigi eftir að minnka enn frekar, jafnvel svo að lægðin fari niður í sama far og á sautjándu öld. Þær fréttir eru hafðar eftir BBC sem þykir almennt séð frekar áreiðanlegur miðill og því eðlilegt að sumir gapi, enda vita flestir að hnattræn hlýnun er á fullu gasi og ekkert sem bendir til þess að hún sé á undanhaldi - síður en svo.
Það er einmitt svo að þegar betur er að gáð, þá er frétt BBC alls ekki á sama veg og hjá pressan.is eða mbl.is. Vissulega er fréttin um minni sólvirkni, en það fylgir sögunni hjá BBC að þó sólvirknin haldi áfram að minnka, þá hafi það lítil sem engin áhrif á hina hnattrænu hlýnun - gefum Prófessor Mike Lockwood orðið:
"If we take all the science that we know relating to how the Sun emits heat and light and how that heat and light powers our climate system, and we look at the climate system globally, the difference that it makes even going back into Maunder Minimum conditions is very small.
"I've done a number of studies that show at the very most it might buy you about five years before you reach a certain global average temperature level. But that's not to say, on a more regional basis there aren't changes to the patterns of our weather that we'll have to get used to."
Vísindamenn telja því að þetta geti tafið hina hnattrænu hlýnun kannski um fimm ár, þ.e. ef ástand sólar fer niður í sama far og á sautjándu öld. Staðbundið geti þessar breytingar þó valdið því að það verði nokkuð kaldara yfir vetrartímann á ákveðnum svæðum, t.d. í norður Evrópu.
Einhverra hluta vegna sleppa pressan.is og mbl.is að útskýra hvað þetta þýðir fyrir okkur í dag - að þessi afdrifaríka breyting í sólinni núna myndi rétt duga til að setja hlýnunina í pásu og þessar fréttastofur gefa sér að möguleg minnkandi sólvirkni hafi sömu áhrif nú og á sautjándu öld.
En við skulum líta aðeins á hvað er til í því að kuldatímabil eða kuldaskeið sé í vændum.
Litla Ísöldin og núverandi hlýnun
Sjá nánar á loftslag.is: Um yfirvofandi Litla Ísöld
Kaldari veður og sjaldséð norðurljós? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Afleiðingar | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook
9.10.2013 | 10:14
Hver var staða hafíssins á Norðurskautinu í lok sumars?
Þeir sem fylgjast með loftslagsumræðunni vita að það er ansi sveiflukennt hvaða rök eru notuð gegn kenningunni um hnattræna hlýnun af mannavöldum hverju sinni. Stundum eru teknir stuttir bútar í hitamælingum til að sína fram á að það sé ekki að hlýna þó leitnin sé klárlega önnur. Stundum er vísað í undarlegar vísindagreinar sem hafa ratað í fálesin tímarit og standast ekki skoðun. Upplýsingarnar koma oft frá vísindamönnum sem eru leynt og ljóst á kaupi hjá afneitunariðnaðinum. Bergmál þessara upplýsinga er síðan ansi hátt í sumum fjölmiðlum, t.d. Fox sjónvarpstöðinni í Bandaríkjunum og í Daily Mail götublaðinu á Englandi.
Þáttur hafíssins á Norðurskautinu
Annað til fjórða hvert ár vekur hafísinn athygli þessara fjölmiðla og þá vegna þess að lágmarksútbreiðsla þessa árs hefur þá verið meiri en árið á undan.
Sumir ganga reyndar nokkuð langt og túlka gögnin þannig: Metaukning á ís á Norðurheimskautinu: Eru gróðurhúsaáhrifin ýkt? .
Þar vitnar Pressan í Daily Mail, en þar segir meðal annars:
Kalt sumar á Norðurheimskautinu hefur valdið því að nú þekur ís meira en 2,6 milljónum fleiri ferkílómetra en á sama tíma fyrir ári en þetta er 60 prósenta aukning á ís á svæðinu á milli ára
Daily Mail segir að sumir heimsþekktir vísindamenn telji að nú sé jörðin að fara inn í kuldatímabil sem muni vara fram að miðri þessari öld en ef það verður raunin mun það gera lítið úr dómsdagsspám um gróðurhúsaáhrifin og áhrif þeirra á hækkandi meðalhita. (Pressan 9.sept 2013)
Það skal tekið fram að þessi frétt birtist nokkrum dögum áður en hægt var að staðfesta að lágmarkinu væri náð og margt rangt við þessa frétt annað en það sem um er fjallað hér.
[...]
Sjá nánar á loftslag.is, þar sem ennfremur er hægt að gera athugasemdir
Hver var staða hafíssins á Norðurskautinu í lok sumars?
30.10.2012 | 20:07
Langvinnar sjávarstöðubreytingar vegna bruna jarðefnaeldsneytis
Loftslagsbreytingar, þar á meðal sjávarstöðubreytingar, eru yfirleitt settar í samhengi við næstu 100 ár. Nýleg grein sem birtist í tímaritinu Geophysical Research Letters skoðar hversu langvinnar núverandi
Sjá nánar á loftslag.is Langvinnar sjávarstöðubreytingar vegna bruna jarðefnaeldsneytis
- - -
Heimildir og ítarefni
Greinin birtist í Geophysical Research Letters og er eftir Williams o.fl. 2012 (ágrip): How warming and steric sea level rise relate to cumulative carbon emissions.
Umfjöllun má lesa á heimasíðu NOC (National Oceanogaphy Centre): Long term sea level rise due to fossil fuels assessed
Tengt efni á loftslag.is
- Fyrirlestur um sjávarstöðubreytingar
- Spurt og svarað um sjávarstöðubreytingar
- Þegar styrkur CO2 í andrúmsloftinu var svipaður og í dag
- Molar um sjávarstöðu
14.10.2012 | 11:36
Loftslagsbreytingar og samsæriskenningar
20.9.2012 | 09:50
Hafíslágmarkið 2012 - nýtt met, 18% undir metinu frá 2007
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.9.2012 | 10:35
Öfgavetur í kjölfar mikillar bráðnunar hafíss á norðurslóðum
29.8.2012 | 20:42
Svar við undarlegum ályktunum
28.8.2012 | 08:48
Opinbert met - Hafís á Norðurhveli hefur aldrei mælst minni - 2-3 vikur eftir af bráðnunartímabilinu
14.8.2012 | 15:36
Líkur á öfgum í hita hafa aukist
12.8.2012 | 16:26
Svar við rangtúlkun
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.8.2012 | 20:33
Miðaldahlýnunin - staðreyndir gegn tilbúningi
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2012 | 10:00
Auknir veðuröfgar breyta almenningsáliti í Bandaríkjunum
28.6.2012 | 11:06
Enn og aftur eru fingraför mannkyns á hnattrænu hlýnunina staðfest
6.6.2012 | 17:38