Færsluflokkur: Fréttir
15.10.2009 | 08:32
Sumarbráðnun hafíss á Norðurskautinu
Meiri ís varð eftir við lok sumarbráðnunar en síðustu tvö ár á undan, þrátt fyrir það hefur hafísinn ekki jafnað sig en þetta ár var lágmarksútbreiðsla sú þriðja minnsta frá því mælingar hófust árið 1979. Síðustu fimm ár eru þau ár sem hafa minnstu útbreiðslu.
Meðalútbreiðsla fyrir septembermánuð var 5,36 miljón ferkílómetrar, sem er 1,06 milljón ferkílómetrum meira en metárið 2007 og 690.000 ferkílómetrum meira en árið 2008. Samt sem áður var útbreiðslan 1,68 milljón ferkílómetrum minni en meðaltal áranna 1979-2000 í september...
![]() |
Norðurskautsísinn verður horfinn eftir áratug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.10.2009 | 07:55
Fréttayfirlit síðustu viku - Loftslag.is
Hér er stutt yfirlit yfir færslur vikunnar af Loftslag.is. Einnig er yfirlit yfir fréttir sem við rákumst á við fréttaöflun vikunnar, en gerðum ekki sérstakar færslur um. Þetta eru stuttar fréttir sem í flestum tilfellum tengjast loftslagsmálum á einhvern hátt, beint eða óbeint.
Yfirlit - fréttir og pistlar vikunnar
Ýmsar fréttir og blogg hafa birst í vikunni. Fyrst má nefna 2 nýjar fastar síður, undir mýtunum. Þetta eru mýturnar "Aukning CO2 í andrúmsloftinu er góð" og "Aðrar reikistjörnur í sólkerfinu eru að hlýna". Samhliða seinna efninu var einnig gerð bloggfærsla, þar er hægt að gera athugasemdir og setja umræðu í gang um efnið. Helstu fréttir vikunnar eru m.a. um nýja skýrslu frá umhverfisráðuneytinu, um nýtt verkefni NASA þar sem gerðar eru mælingar á ísnum á Suður- og Norðurskautinu, frétt um sumarbráðnun hafíssins á Norðurpólnum og ekki má gleyma frétt um viðtalið sem við félagarnir fórum í, á Útvarp Sögu, í Vísindaþættinum. Í stað gestapistils vikunnar, sem ekki gat orðið af, þá gerðum við bloggfærslu um það sem við megum eiga í vændum á komandi vikum. Ýmis myndbönd og einnig léttmeti komu á vefinn í vikunni, helst ber að nefna 2 fróðleg myndbönd, í fyrsta lagi ber að nefna fræðslumyndband NASA um hafísinn og svo myndband um loftslagssamsærið - hvað er nú það? Síðast en ekki síst má nefna léttmeti vikunnar, dæmi er myndband með Bill Maher, þar sem hann veltir fyrir sér spurningum um efasemdarfólk og svo færsluna um torfþök á öll hús - ætli það geri nú eitthvað gagn?
Stuttar fréttir
Það er margt gert til að draga úr losun koldíoxíðs. Japanska flugfélagið All Nippon Airways hefur t.d. hafið tilraun sem gengur út á að flugfarþegum er boðið að pissa áður en gengið er um borð í flugvélar félagsins. Þetta er enn á tilraunastigi hjá flugfélaginu, en gert er ráð fyrir að hægt sé að draga úr heildarþyngd flugvélanna með þessari ráðstöfun. Þetta gengur þannig fyrir sig að sérstakir "klósett verðir" eru til staðar sem minna fólk á að létta á sér áður en gengið er um borð. Flugiðnaðurinn hefur nýlega samþykkt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, sem svarar 50% frá 2005 losuninni fyrir árið 2050. Bæði á að nota ýmiskonar stefnubreytingar (eins og þessi tilraun er hluti af) og með notkun skilvirkari tækni. Sjá nánar hér.
Ný rannsókn bendir til þess að frá árinu 1850 þá megi rekja um helming sjávarstöðubreytinga til mannlegra athafna. Einnig fundu vísindamennirnir að einungis fjórir sentimetrar af þeim 18 sentimertum af hækkandi sjávarstöðu væri af náttúrulegum ástæðum. Fyrir 1800 þá er hægt að útskýra allar sjávarstöðubreytingar með náttúrulegum breytingum - t.d. vegna breytinga í hita sem nær til jarðar frá sólinni (sveiflur í virkni sólar eða vegna eldgosa). Sjá nánar hér.
Greining á kínverskum annálum sem spanna yfir tvö þúsund ár, sýna að engisprettufaraldar eru líklegri í heitu og þurru veðri, sérstaklega í norðurhluta Kína. Vistfræðingar hafa deilt um það hvað hefur áhrif mest áhrif á stofnstærð dýrategunda á löngum tíma - sumir halda því fram að loftslag hafi mest áhrif á meðan aðrir halda því fram að t.d. samkeppni og afrán séu meira ráðandi. Sjá nánar hér.
Veðurfarsskýrslur James Cook, sem hann skráði skipulega á hádegi dag hvern á ferð sinni um hið óþekkta, eru taldar geta hjálpað vísindamönnum að spá fyrir um loftslagsbreytingar. Skrár Cooks og fleiri landkönnuða er nú verið að endurrita og setja á stafrænt form og er talið geta hjálpað loftslagsfræðingum að greina breytingar í veðrakerfum. Gögnin sem geymd eru í Kew, innihalda einstök og nákvæm gögn með hitastigi, hafís, loftsþrýstingi og vindstyrk og átt víða að úr heiminum. Sjá nánar hér.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
7.10.2009 | 14:55
Lausnin er að minnka losun
Því fyrr sem við tökum ákvörðun um að minnka losun, því stærri möguleika höfum við á að koma í veg fyrir óafturkræfar loftslagsbreytingar af mannavöldum.
Það hafa ýmsir möguleikar verið viðraðir sem mögulegar lausnir við loftslagsvandanum. Hægt er að skipta mótvægisaðgerðunum (lausnunum) í þrjá hluta. Í fyrsta lagi eru lausnir sem stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda, svo er það kolefnisbinding og í þriðja lagi eru það loftslagsverkfræðilegar (geoengineering) aðferðir sem snúa að því að kæla jörðina.
Minni losun
Í fyrsta lagi eru lausnir sem stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda. Eitt af grunnatriðum kenningarinnar um gróðurhúsaáhrifin gerir ráð fyrir því að gróðurhúsalofttegundir valdi hækkandi hitastigi. Þar af leiðandi eru t.d. lausnir þar sem gert er ráð fyrir minni losun gróðurhúsalofttegunda mikilvægar í mótvægisaðgerðunum vegna hlýnunar jarðar...
Nánar er hægt að lesa um lausnir og mótvægisaðgerðir á Loftslag.is
![]() |
Skiptar skoðanir um loftslagsmál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2.10.2009 | 08:31
Fréttir liðinnar viku - Loftslag.is
Hér er yfirlit yfir ýmsar fréttir sem við rákumst á við fréttaöflun vikunnar. Þetta eru stuttar fréttir sem í flestum tilfellum tengjast loftslagsmálum á einhvern hátt, beint eða óbeint. Einnig er hér stutt yfirlit yfir færslur vikunnar af Loftslag.is. Þess má einnig geta að á næsta þriðjudag verður viðtal við okkur í Vísindaþættinum á Útvarp Sögu. Þátturinn er á dagskrá klukkan 17-18 á þriðjudag.
Stuttar fréttir
Fæðuöryggi í vanþróuðum löndum heims minnkar töluvert og allt að 25 milljónir fleiri börn verða hungri að bráð árið 2050 ef ekkert er gert til að sporna við loftslagsbreytingum samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Hér er á ferðinni umfangsmikil rannsókn á tengslum milli loftslagsbreytinga og fæðuöryggis. Stærstu áhrifin verða á uppskeru hveitis og hrísgrjóna. Talið er að uppskera hveitis geti dregist saman um 20-35% árið 2050 miðað við óbreyttar áherslur í losun gróðurhúsalofttegunda. Sjá nánari umfjöllun á vef Nature.
Óvenjuhátt hitastig norðurskautsins og miklar rigningar í hitabeltinu er talið líklegur orsakavaldur fyrir hinni hnattrænu aukningu í metani í andrúmsloftinu frá árinu 2007 og 2008, samkvæmt NOAA. Áratuginn þar á undan hafði lítil sem engin aukning verið, en metan er önnur mikilvirkasta gróðurhúsalofttegundin - á eftir CO2 (koldíoxíð). Sjá nánar frétt af vef NOAA.
Votlendi sem verður til þegar lónstæði stórrar stíflu í Kína þornar að hluta á sumrin er hugsanlega stór uppspretta metans sem er áhrifarík gróðurhúsalofttegund. Vísindamenn hafa haft vaxandi áhyggjur af gróðurhúsalofttegundum frá gróðurlendi sem fer undir vatn við stíflugerð. Þegar slík lífræn efni rotna, þá losnar metan og CO2 sem bæta á þá hlýnun jarðar sem nú þegar í gangi. Aukning í metani er sérstakt áhyggjuefni þar sem áhrif þess er tuttugu sinnum áhrifameira en áhrif CO2. Sjá nánari umfjöllun á vef Nature.
Yfirlit - fréttir og pistlar vikunnar:
Síðastliðinn laugardag þá birtum við 2 færslur sem fjölluðu beint og óbeint um jökulísinn og hækkun sjávarborðs. Fyrst má nefna myndband um sjávarstöðubreytingar og síðan frétt um nýjar rannsóknir sem skoðuðu þynningu jökulíssins á Grænlandi og Suðurskautinu. Önnur merkileg frétt úr vikunni sem leið var fréttin um fjórar gráðurnar, sem er ný frétt um rannsóknir á vegum Met Office (bresku veðurstofunnar), þar sem því er haldið fram að óheft losun koldíoxíðs geti leitt til allt að 4°C hækkun hitastigs fyrir næstu aldamót. Myndbönd vikunnar voru nokkur, má þar helst nefna myndband af sýn Carl Sagan á bláa punktinn sem við lifum á, hversu agnarsmár hann er í samanburði við alheiminn, auglýsing frá Bandaríkjunum sem hefur vakið furðu og svo heimildamynd um súrnun sjávar. Einnig skrifuðum við um Sea Level Explorer, þar sem hægt er að skoða áhrif sjávarstöðubreytinga á hina ýmsu staði í heiminum. Síðast en ekki síst þá skrifaði Einar Sveinbjörnsson gestapistil vikunnar, sem fjallar um "Veðurfar Norðurheimskautsins frá upphafi okkar tímatals" og kunnum við honum þakkir fyrir.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.9.2009 | 20:43
Loftslag.is - Nýtt efni síðustu daga
Hér kemur stutt kynning á því efni sem birst hefur á Loftslag.is síðustu daga.
Í athyglisverðu myndbandi Carl Sagan eru hugleiðingar um stærð Jarðar í alheiminum gerð skil á fróðlegan hátt. Hversu stór er eiginlega hinn blái punktur sem við búum á.
Það eru ýmis tól sem okkur standa til boða á netinu, meðal annars er hægt að skoða ýmis áhrif af sjávarstöðubreytingum, hvaða áhrif hefur t.d. 1 m hækkun sjávarborðs? Skoðið tengilinn í þessari færslu á Sea Level Explorer.
Bandarísk auglýsing vekur furðu.
Í kjölfarið á auglýsingunni er svo hægt að skoða blogg sem kemur inn á hugsanlega áhrif aukningar CO2 í andrúmsloftinu, eru þau áhrif eingöngu jákvæð?
Að lokum er svo frétt um rannsóknir sem Met Office (breska veðurstofan) hefur birt um hugsanlega hitastigshækkun verði ekkert að gert til að draga úr losun koldíoxíðs.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 23:24
Frétt - Loftslag.is
Umfangsmikil rannsókn á jöklum Suðurskautsins og Grænlands sýnir að jökulþynning á Grænlandi er byrjuð á Norður-Grænlandi og hefur dreifst um allt Suðurskautið. Þynningin er að aukast inn á land á báðum jökulbreiðunum (e. Ice Sheet), samkvæmt nýrri grein í Nature. Í greininni kemur fram að þynningin hefur haldið áfram í áratugi eftir uppbrotnun íshellna/jökulþylja (e. Ice Shelf) og segir þar að ástæða þess sé hlýrri sumur, en þó ennfremur hlýrri hafstraumar.
Nánar má lesa um þetta á loftslag.is.
![]() |
Pólísinn þynnist hratt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 15:46
Sjávarstöðubreytingar og jökulísinn á Grænlandi og Suðurskautinu
Í dag hafa birst 2 nýjar færslur á Loftslag.is sem fjalla um, annars vegar sjávarstöðubreytingar og hins vegar um jökulísinn á Grænlandi og Suðurskautinu. Fyrst er um að ræða myndband, þar sem m.a. er tekið fyrir hækkun sjávarstöðu og spárnar um það. Hvað segja spárnar um hækkun sjávarstöðu, hvað er með í þeim spám og hvað ekki? Myndbandið er frá Greenman3610, sem er YouTube notandi og hefur gert nokkur myndbönd um loftslagsbreytingar. Það má segja að hann hafi persónulegan stíl við gerð sinna myndbanda, þar sem hann getur verið nokkuð meinhæðinn. Hin færslan er frétt um þynningu jökla á Grænlandi og Suðurskautinu. Þar er sagt frá nýjum rannsóknum er varða þynningu jökla á þessum svæðum.
Tenglar:
Myndband: Sjávarstöðubreytingar
Frétt: Þynning jökla á Grænlandi og Suðurskautinu
Fréttir | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.9.2009 | 08:25
Fréttir liðinnar viku - Loftslag.is
Ritstjórn Loftslag.is hefur tekið þá ákvörðun að útbúa vikuyfirlit yfir fréttir liðinnar viku. Þetta eru m.a. fréttir sem við rekumst á við fréttaöflun vikunnar. Þetta verða stuttar fréttir sem í flestum tilfellum tengjast loftslagsmálum á einhvern hátt, beint eða óbeint. Við munum segja stuttlega frá innihaldi frétta og höfum svo tengil á þær, svo lesendur geti kynnt sér málið betur ef áhugi er fyrir því. Þetta geta verið ýmsar fréttir sem við rekumst á, en skrifum ekki frekari fréttir um í undanfarinni viku. Einnig verður stutt yfirlit yfir nokkrar af þeim færslum sem birst hafa á Loftslag.is í vikunni.
Stuttar fréttir:
100 ára veður viðburðir eru veðurfyrirbæri sem er svo öfgakennd, að öllu jafna má aðeins búast við því að atburðurinn eigi sér stað einu sinni á hverri öld. T.d. getur þetta átt við um storma, mikla úrkomu og fleiri þess háttar atburði. Það er misjafnt eftir svæðum hvaða atburðir teljast 100 ára veður viðburðir. Í borginni Atlanta í fylkinu Georgíu í BNA, hefur verið fossandi rigning að undanförnu. Þetta er veðurviðburður sem hægt er að flokka sem 100 ára veður viðburð. En verða 100 ára veður viðburðir aðeins einu sinni á hverri öld? Í raun er verið að tala um líkur á að ákveðin atburður geti átt sér stað miðað við fyrri reynslu, en þeir geta í raun gerst með nokkura ára millibili þó slíkt sé mjög sjaldgæft. Sjá nánar frétt af vef Live Science.
Sökkvandi óshólmar er vandamál sem virðist vera að aukast á flestu þéttbýlustu svæðum heims. Hér er þó ekki hægt að kenna hlýnandi loftslagi um, en það gæti aftur aukið á vandan sem hækkandi sjávarstaða í framtíðinni getur valdið og gera svæði sem milljónir manna búa á í aukinni hættu vegna storma og flóða. Ástæðan er talin vera margs konar, meðal annars út af stíflum sem koma í veg fyrir frekari framburð fljótana og vegna aukinnar búsetu á þeim - sem eykur á þyngsli jarðlaganna. Einnig er dæling vatns úr jarðlögum undir óshólmanum líklegur orsakavaldur. Sjá nánar frétt á vef BBC.
Mikið moldviðri var í Sydney fyrr í vikunni, en Einar Sveinbjörnsson fjallaði um það allvel. Einnig er góða umfjöllun að finna á vef BBC.
Yfirlit vikunnar af Loftslag.is:
Laugardaginn 19. september opnaði síðan Loftslag.is formlega. Fyrsti gestapistillinn er eftir Halldór Björnsson og ber titilinn Um gróðurhúsaáhrif og afleiðingar þeirra. Síðan hafa ýmsar fréttir birst í vikunni, m.a. um myndun íshellunnar á Suðurskautinu, hitastig sjávar í síðastliðnum ágústmánuði, um niðursveiflu í virkni sólar og um nýjar rannsóknir varðandi bráðnun í Grænlandsjökli fyrir 6000-9000 árum, svo einhver dæmi séu tekin. Fyrir utan bloggfærslur þær sem birtust á opnunardaginn, þá hefur Höskuldur bloggað um eldvirkni og loftslag. Síðast en ekki síst viljum við nefna gestapistil eftir Emil Hannes Valgeirsson, nefnist pistill hans Er hafísinn á hverfanda hveli?.
Við viljum þakka gestapistlahöfundunum sérstaklega fyrir vandaða pistla. Við hlökkum til að afhjúpa næstu gestapistlahöfunda og gerum við ráð fyrir að birting gestapistla verði fastur liður á fimmtudögum.
Fréttir | Breytt 26.9.2009 kl. 11:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2009 | 15:31
Loftslag.is - upplýsingasíða um loftslagsmál
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér nánar upplýsingar um loftslagsmál, þá er upplýsingasíðan Loftslag.is full af fróðleik um málefnið.
M.a. er hægt að lesa um kenningarnar, fyrri loftslagsbreytingar, hugsanlegar afleiðingar, ýmsar mýtur um loftslagsmál ásamt ýmsu fleiru.
![]() |
Blásið til sóknar í loftslagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.9.2009 | 07:49
Fyrstu dagar Loftslag.is
Fyrstu dagar heimasíðunnar Loftslag.is hafa gengið ljómandi. Frá því vefurinn fór í loftið hafa komið yfir 1.000 gestir og yfir 2.000 heimsóknir. Það verður að teljast nokkuð gott fyrir svona framtak.
Eyjan.is setti tengil á síðuna að morgni þess 19. september. Opnunin gekk að óskum og klukkan 18:00 byrjuðu fyrstu færslurnar að dúkka upp, þær síðustu birtust svo örstuttu síðar. Ýmsar fréttir, ásamt opnunarbloggfærslunum og gestapistli eftir Halldór Björnsson voru aðalefniviður síðunnar við opnunina.
Að kvöldi þess 19. september skrifaði Einar Sveinbjörnsson færslu þar sem hann fjallaði um Loftslag.is og kunnum við honum þakkir fyrir. Að morgni þess 20. september var frétt á MBL um opnun síðunnar og í gær (21. september) mætti Sveinn í viðtal í Síðdegisútvarpinu (um klukkan 16:40) á Rás 2 um Loftslag.is og loftslagsbreytingar almennt.
Það má því segja að við höfum fengið ágætis byr í seglin þessa fyrstu daga og erum við að vonum sáttir við það.
Nú er stefnan tekin á áframhaldandi starf við síðuna, næsti gestapistill fer væntanlega í loftið á fimmtudag og einnig verður unnið að áframhaldandi efnisöflun fyrir síðuna. Við viljum líka minna á Facebook síðuna, þar eru nú komnir um 240 meðlimir.
Fréttir | Breytt s.d. kl. 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)