Færsluflokkur: Blogg

Hraðir flutningar, hærra og lengra

Í Science birtist nýlega grein um rannsókn, þar sem sýnt er fram á tengsl milli hinnar hnattrænu hlýnunar og flutning plantna og dýra til hærri breiddargráða og upp í meiri hæð yfir sjávarmál. Að auki kom í ljós að lífverur flytjast um set, um tvisvar til þrisvar sinnum hraðar en áður var talið.

[...]

Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Hraðir flutningar, hærra og lengra

Tengt efni á loftslag.is


Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar

Endurbirting á færslu frá því í vor.


earth20110308-640Samkvæmt nýlegum gögnum þá eru jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins að bráðna sífellt hraðar með hverju árinu.

Margt bendir til þess – samkvæmt greiningu á fjölbreyttum gögnum (Rignot o.fl. 2011) – að bráðnun frá jökulbreiðum heimsskautanna sé að taka við af fjallajöklum og hveljöklum sem stærsti þátturinn í sjávarstöðuhækkun úthafanna. Það er mun fyrr en loftslagslíkön hafa bent til.

Hraði bráðnunarinnar hefur verið að aukast töluvert. Á hverju ári, á því tímabili sem skoðað var, bráðnaði að meðaltali um 36,3 gígatonn meira en á árinu áður.

[...]

Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar

Tengt efni á loftslag.is

 


Hlýnun eða kólnun - Hitastig í júlí - Gestapistill

Síðustu tvær færslur á loftslag.is hafa fjallað um hitastig. Sú fyrri um hitastig í veðrahvolfinu í júlímánuði og þróun þess, ásamt túlkunum á sveiflum í þeim mælingum. Sú síðari er fróðlegur gestapistill eftir Emil Hannes Valgeirsson.

Nánar má lesa um þetta á loftslag.is:


Undarleg hegðun vísindamanna…

The Onion News Network er með skemmtilegan vinkil á það sem þau kalla undarlega hegðun vísindamanna. Kannski ágætis veganesti inní helgina.

Góða helgi og gangið vel um gleðinnar dyr.

...

Innlegg/myndband The Onion News Network má sjá á loftslag.is, Undarleg hegðun vísindamanna…

Tengt léttmeti á loftslag.is:


Aðgerðaleysi er ekki góður kostur

Hingað til hefur aðgerðaleysi varðandi loftslagsvandann verið mest áberandi. Það hafa verið haldnar ráðstefnur og fundir þar sem koma fram vilyrði þjóða um aðgerðir. En þegar á hólminn er komið, virðast vilyrðin og áætlanirnar drukkna í einhverri heimatilbúinni pólitík þjóða. En hvað sem öðru líður, þá eru vísindin nokkuð blátt áfram í þessu og það þykir nokkuð ljóst að aukin styrkur gróðurhúsalofttegunda hefur áhrif á hitastig og þar með loftslag, að þessi aukning gróðurhúsalofttegunda er af völdum okkar mannanna og að hitastig jarðar hefur nú þegar hækkað og hlýnuninn lítur út fyrir að halda áfram.

Tengdar færslur á loftslag.is:


mbl.is Ógna öryggi heimsbyggðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður algengara á næstu árum

Á síðasta ári tókst í fyrsta skipti að sigla bæði Norðuaustur- og Norðvesturleiðina, eða hringinn í kringum Norðurpólinn, eins og áhöfn Rus ætlar að reyna í ár, sjá nánar Sigling um bæði Norðaustur- og Norðvesturleiðina á sama sumri heppnaðist. Aðstæður í ár eru jafnvel betri til svona siglinga, þar sem hafísinn er minni, en var á sama tíma fyrir ári (miðað við núverandi stöðu). Nánar má lesa um sumarbráðnun hafíss á Norðurskautinu í færslunni, Bráðnun og ástand hafíss í júní – krítískur tími framundan. Hafísútbreíðsla í júní í ár var aðeins meiri en í júní í fyrra, en staðan hefur breyst í júlí og er hafísútbreiðslan í augnablikinu undir metárinu 2007. Það er svo sem ekki enn hægt að spá að met falli þetta árið, en þetta er þó hluti þeirra leitni sem hefur verið áberandi í hafísútbreiðslu á undanförnum árum og áratugum, þ.e. minnkandi hafís. Það er því vel hægt að sjá fyrir sér að siglingar í kringum Norðupólinn verði algengari á næstu árum, þar sem ekki virðist annað í stöðunni en að hafísútbreiðslan haldi áfram að minnka á næstunni.

Tengt efni á loftslag.is:


mbl.is Ætla í kringum Norðurpólinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV – Sannleikurinn um loftslagsbreytingar

Í þætti sem sýndur verður á RÚV fimmtudaginn 7. júlí klukkan 19:35 verður verður gerð tilraun til að fjalla um hvað við vitum um loftslagsbreytingar – eða sannleikann, hvað sem það nú er, um loftslagsbreytingar. Á vef RÚV stendur eftirfarandi um þáttinn og efni hans:

Breskur fréttaskýringaþáttur um loftslagsbreytingar vegna hnattrænnar hlýnunar. Á liðnum árum hefur hart verið deilt um loftslagsbreytingar og vísindin sem notuð eru til að mæla þær og meta. Í þættinum er leitað svara við því hvað við vitum í rauninni um loftslagið og áhrif þess á okkur. Þótt yfirvöld, vísindamenn og baráttufólk haldi því fram að loftslagið í heiminum sé að breytast er eins og margir trúi því hreinlega ekki að hnattræn hlýnun sé staðreynd. Talað er við vísindamenn sem eru á öndverðum meiði um málið og athugað hvað þeir geta verið sammála um og þar kemur sitthvað á óvart.

Eftir að hafa kynnt mér þetta lítillega, þá skilst mér að það verði rætt við þá John Christy og Björn Lomborg frá hlið “efasemdamanna”, en m.a. eiga þeir Bob Watson and Bob Ward að koma fram fyrir hönd þeirra sem telja að gróðurhúsavandinn sé raunverulegur, sjá nánar á vef BBC. Einnig er rætt við fleiri, m.a. loftslagsvísindamanninn Michael Mann, svo einhver sé nefndur. Þetta er einungis 30 mínútna þáttur og er því erfitt að sjá fyrir sér að spurningum varðandi þessi mál verði svarað svo vel sé, en þetta getur væntanlega orðið fróðlegt. Hér undir má sjá stutt brot úr þættinum (reyndar u.þ.b. 1/6 úr honum, þar sem um stuttan þátt er að ræða), en þarna er komið inn á villu IPCC varðandi jöklana í Himalaya og hið svokallað climategatemál, vonandi ná þeir að útskýra það nánar í þættinum – spurning líka hvort þeir nefni augljósar villur “efasemdamanna” í leiðinni..? Merkilegt reyndar að þátturinn virðist hafa verið kallaður “What’s up with the weather?” í Bretlandi, sem er strax dáldið merkilegt, miðað við að umfjöllunarefnið eru loftslagsbreytingar. En allavega, þá mun ég horfa á þáttinn og vonandi gefst mér tækifæri á að skrifa eitthvað um hann síðar.

[...]

Myndbandið má sjá á loftslag.is, RÚV – Sannleikurinn um loftslagsbreytingar

Tengt efni á loftslag.is:


Víngerðarmenn í vanda

Hækkandi  hitastig mun valda því að ræktendur hágæðavínviðja í Kaliforníu og fleiri stöðum í Bandaríkjunum munu lenda í vandræðum á næstu 30 árum, samkvæmt nýrri rannsókn sem vísindamenn Stanford Háskóla gerðu.

[...]

Nánar á loftslag.is - þar sem einnig má sjá stutt myndband, Víngerðarmenn í vanda

Tengt efni á loftslag.is

 


Hvað er líkt með banana og kolamola?

Dr. Peter Griffith sem er vísindamaður hjá NASA, fjallar hér um kolefnishringrásina á einfaldan hátt og tekur sem dæmi banana og kolamola.

[...]

Sjá myndband á loftslag.is, Hvað er líkt með banana og kolamola?

Fleiri myndbönd  á loftslag.is


Menn losa margfalt meira CO2 en losnar við eldvirkni

Að meðaltali losum við mennirnir jafngildi heildarársframleiðslu allra eldfjalla og jarðhitakerfa jarðar af koldíoxíð (CO2) á einungis 3-5 dögum. Þetta er niðurstaða yfirlitsgreinar um losun CO2 af völdum manna og eldvirkni (Gerlach 2011).

Það virðist algengur misskilningur meðal almennings, en þó sérstaklega meðal efasemdamanna um hnattræna hlýnun af mannavöldum, að styrkur CO2 í andrúmsloftinu ráðist að mestu af eldvirkni. Svo er ekki. Á undanförnum áratugum hefur losun manna á CO2 aukist upp í að vera hundraðfalt meira en losun á CO2 vegna eldvirkni.

[...]

Nánar má lesa um þetta og m.a. skoða graf varðandi málið á loftslag.is, Menn losa margfalt meira CO2 en losnar við eldvirkni

Tengt efni á loftslag.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband