11.4.2010 | 16:27
Fingrafar mannkynsins á hnattrænu hlýnunina
Bloggfærsla þýdd af Skeptical Science og einnig birt þar
Í vísindum er aðeins eitt sem er betra en bein mæling, gerð í hinum raunverulega heimi, en það eru margar sjálfstæðar beinar mælingar sem allar vísa á sömu niðurstöðu. Það eru til mörg bein sönnunargögn sem öll benda til að fingrafar mannkyns hafi áhrif á hnattræna hlýnun:
Fingrafar mannkynsins á koldíoxíð í andrúmsloftinu
Sú staðreynd að styrkur koldíoxíðs stígur vegna áhrifa manna, verða augljós þegar styrkur CO2 er borin saman við losun CO2:
Mynd 1: Styrkur CO2 í andrúmsloftinu (græn lína Law Dome, East Antarctica og blá lína Mauna Loa, Hawaii) og uppsöfnuð losun CO2 í gígatonnum af CO2 (rauð lína CDIAC).
Staðfesting þess að stígandi styrkur koldíoxíðs sé vegna athafna mannsins kemur frá rannsóknum á því hverskonar kolefni finnst í andrúmsloftinu. Kolefnisatómið hefur nokkrar tegundir samsæta (þ.e. með mismunandi mörgum nifteindum). Kolefni 12 hefur 6 nifteindir, kolefni 13 hefur 7 nifteindir. Plöntur hafa lægra C13/C12 hlutfall en er í andrúmsloftinu. Ef aukinn styrku CO2 kemur frá jarðefna eldsneyti, þá ætti C13/C12 hlutfallið að fara lækkandi. Það er einmitt það sem er að gerast (Ghosh 2003) og sú leitni er í samræmi við leitni hnattrænar losunar koldíoxíðs.
Mynd 2: Árleg hnattræn losun CO2 frá bruna jarðefna eldsneytis og vegna sement framleiðslu í GTC á ári (svart), árleg meðaltal 13C/12C hlutfalls, mælt í andrúmsloftinu við Mauna Loa frá 1981 til 2002 (rauð) (IPCC AR4).
Frekari staðfesting kemur með því að mæla súrefnis styrk í andrúmsloftinu. Þegar jarðefnaeldsneyti er brennt þá bindist kolefnið í jarðefnaeldsneytinu við súrefni, og myndar koldíoxíð. Þegar styrkur CO2 í andrúmsloftinu eykst, þá minnkar styrkur súrefnis. Athuganir sýna að styrkur súrefnis fellur í samræmi við bruna jarðefna eldsneytis.
Mynd 3: Styrkur CO2 á Mauna Loa, Havaí (svart) og Baring Head, Nýja Sjálandi (blátt). Niðri til hægri má sjá mælingar á súrefni (O2) frá Alert, Kanada (bleikt) og Cape Grim, Ástralíu (ljós blátt) (IPCC AR4 2.3.1 unnið úr Manning 2006).
Fingrafar mannkynsins vegna aukningar gróðurhúsaáhrifanna
Gervihnettir eru notaðir til að mæla innrauða geislun sem sleppur út í geim. Samanburður gervihnattagagna frá 1970 til 1996 sýnir fram á, að minni orka sleppur út í geim á þeim bylgjulengdum sem gróðurhúsalofttegundir gleypa (Harries 2001). Í grein Harries kemur fram beinar tilraunir sýna sönnunargögn um marktæka aukningu á gróðurhúsaáhrifum á Jörðinni (e. direct experimental evidence for a significant increase in the Earths greenhouse effect) . Þessi niðurstaða hefur verið staðfest af nýrri gögnum frá fleiri gervihnöttum (Griggs 2004, Chen 2007).
Mynd 4: Breyting bylgjulengda frá 1970 til 1996 vegna snefil lofttegunda. Birtu hitastig (e. brightness temperature) gefur til kynna svartefni hitastig (Harries 2001).
Það er staðfest með mælingum á jörðu niðri, að minni hiti sleppur út úr lofthjúpnum, þar sem meiri innrauð geislun kemur aftur til jarðar. All nokkrar rannsóknir hafa komist að því að þetta sé vegne aukina gróðurhúsaáhrifa (Philipona 2004, Wang 2009). Greining gagna í háupplausnar orkurófsgreiningum gefa vísindamönnum tækifæri til að magngreina þátt aukningarinnar fyrir hverja gróðurhúsalofttegund (Evans 2006). Niðurstaðan leiðir höfunda greinarinnar til að álykta þessi tilraunagögn ættu á skilvirkan hátt að enda röksemdafærslur efasemdarmanna um að það séu engin bein sönnunargögn fengin með tilraunum sem sýna fram á tenginguna á milli aukningu gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu og hnattrænni hlýnun.
Mynd 5: Orkuróf geislunar gróðurhúsalofttegunda mæld við yfirborð jarðar. Gróðurhúsaáhrif frá vatnsgufu eru síuð frá, til að sýna framlag hinna gróðurhúsalofttegundanna (Evans 2006).
Fingrafar mannkynsins á hitaleitnina
Hægt er að lesa afganginn af færslunni á Loftslag.is:
Tengt efni af Loftslag.is:
- CO2 áhrifamesti stjórntakkinn
- Styrkur CO2 hærri til forna
- Hver er jafnvægissvörun loftslags?
- Mælingar staðfesta kenninguna
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.