12.4.2010 | 09:33
Hrakningar Lord Monckton – 1. hluti
Í myndbandi Greenman3610, öðru nafni Peter Sinclair, skoðar hann á kaldhæðin hátt rökleysur Lord Monckton. Lord Monckton hefur verið iðinn við að leggja fram fullyrðingar um að vísindin á bak við loftslagsfræðin séu röng, að engin hlýnun eigi sér stað og ýmsu fleiru í þeim dúr. Að mati Greenman3610 á því hversu mikið "þvaður, markleysur, bull og vitleysa" kemur frá Lord Monckton varðandi fræðin, þá hefur hann boðað annan hluta í beinni útsendingu á ClimateTv þann 15. apríl. Eftirfarandi er lýsing Greenman3610 á myndbandinu:
Hann dúkkar allsstaðar upp í umræðu afneitunarsinna loftslagsvísindanna.
Hann er ekki vísindamaður. Hann er með gráðu í blaðamennsku.
En hvernig hefur honum tekist að selja sig sem aðal talsmann þeirra sem afneita loftslagsvísindunum?
Í fyrsta lagi, eins og allir góðir sölumenn, þá þekkir Lord Monckton viðskiptavini sína.
Sjá myndbandið á loftslag.is: Hrakningar Lord Monckton 1. hluti
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.