10.5.2010 | 10:38
Yfirlýsing frá Vísindaráði Bandaríkjanna
Vísindaráð Bandaríkjanna (National Academy of Science NAS) sendi á dögunum frá sér yfirlýsingu sem birtist sem bréf í tímaritinu Science. Það er skrifað af 255 meðlimum ráðsins, sem er ein virtasta vísindastofnunin í Bandaríkjunum. Við mælum með að fólk lesi bréfið í heild, en hér fyrir neðan er þýðing á nokkrum brotum úr bréfinu:
Það er alltaf einhver óvissa tengd vísindalegum niðurstöðum; vísindi geta aldrei sannað eitthvað að fullu. Þegar einhver segir að þjóðir heims eigi að bíða þar til vísindamenn eru búnir að fullvissa sig um eitthvað áður en gripið er til aðgerða, þá er sá hinn sami að segja að þjóðir heims eigi aldrei að grípa til aðgerða. Varðandi vandamál, sem hefur alla möguleika til að þróast yfir í náttúruhamfarir, líkt og loftslagsbreytingar þá þýðir það að grípa ekki til aðgerða töluverða áhættu fyrir Jörðina
Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC The Intergovernmental Panel on Climate Change) og aðrar vísindalegar samantektir um loftslagsbreytingar, þar sem þúsundir vísindamanna hafa gert umfangsmikla og ítarlegar samantektir, hafa, eins og við mátti búast og eðlilegt er, gert mistök. Þegar bent er á villur, þá eru þær leiðréttar. En það er ekkert sem hægt er að festa hendi á í nýlegum atburðum sem breytir eftirfarandi grunnatriðum um loftslagsbreytingar:
- Jörðin er að hlýna vegna aukins styrk gróðurhúsalofttegunda i andrúmsloftinu. Snjór um hávetur í Washington breytir ekki þeirri staðreynd
- Megin hluti aukningarinnar í styrk þessara lofttegunda síðastliðna öld er vegna athafna manna, sérstaklega vegna bruna á jarðefnaeldsneyti og skógarhöggs
- Nátturlegir þættir skipta alltaf máli við loftslagsbreytingar Jarðarinnar, en nú yfirgnæfir loftslagsbreyting af mannavöldum þá þætti
- Hlýnun Jarðarinnar mun valda breytingum í ýmsum öðrum loftslagskerfum á hraða sem á sér ekki hliðstæðu í nútímanum, þar á meðal aukinn hraði sjávarstöðuhækkana og breytingar í vatnshringrásinni. Aukinn styrkur CO2 í andrúmsloftinu er að auki að auka sýrustig úthafana.
- Samspil þessara flóknu loftslagsbreytinga ógna strandsamfélögum og borgum, fæðuöryggi og vatnsforða, vistkerfum sjávar og ferskvatna, skóga, háfjallavistkerfa og ýmsu öðru.
Mikið fleira má og hefur verið sagt af vísindasamfélagi Jarðar, háskólasamfélögum og einstaklingum, en fyrrnefndar niðurstöður ættu að vera nægar til að sýna hvers vegna vísindamenn hafa áhyggjur af því hvað framtíðarkynslóðir munu þurfa að horfast í augu við ef ekki er gripið til aðgerða. Við hvetjum stefnumótendur og almenning að bregðast skjótt við orsökum loftslagsbreytinganna, þar á meðal óheftri brennslu jarðefnaeldsneytis.
Heimildir og Ítarefni
Yfirlýsinguna í heild má sjá á heimasíðu Science: P. H. Gleick o.fl. 2010 Climate Change and the Integrity of Science
Þar er einnig viðauki með lista yfir nöfn þeirra vísindamannas sem skrifuðu undir: P. H. Gleick o.fl. 2010 Supporting Online Material for Climate Change and the Integrity of Science
Pistil Peter H. Gleick um yfirlýsinguna, sem birtist í Huffington Post, má sjá hér: Climate Change and the Integrity of Science
Áhugaverð heimasíða Vísindaráðsins um loftslagsbreytingar: Americas Climate Choices - en þar er einnig gott myndband sem útskýrir það verkefni, sjá má myndbandið í færslunni á Loftslag.is, Yfirlýsing frá Vísindaráði Bandaríkjanna
Tengdar færslur á loftslag.is
- Sameiginleg yfirlýsing þriggja breskra stofnana
- Yfirlýsing GSA um loftslagsbreytingar
- Rökleysur loftslagsumræðunnar
- Loftslagsvísindin traust
- Sakir bornar af Phil Jones
- Ráðist á loftslagsvísindin
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Athugasemdir
Flottir!!
Dingli, 10.5.2010 kl. 11:28
Þegar veðurstofan spáir hríðaréljum spretta frjálshyggjumenn upp úr jörðinni þúsundum saman og öskra: "Þarna sjáið þið; jörðin er nú bara að kólna!"
Árni Gunnarsson, 10.5.2010 kl. 12:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.