29.8.2010 | 20:38
Jörðin er kolefnissvelt - Umfjöllun um mýtu
Í nýju myndbandi á loftslag.is frá Greenman3610 (Peter Sinclair) er m.a. fjallað um þá mýtu að það hafi áður verið mikið CO2 í andrúmsloftinu (sem er rétt) og þ.a.l. skipti magn CO2 í dag ekki svo miklu máli heldur (sjá m.a. mýtuna Styrkur CO2 var hærri til forna). Í myndbandinu bregður vísindamanninum Dr. Richard Alley fyrir nokkrum sinnum og eru flest þau klipp frá fyrirlestri hans, CO2 áhrifamesti stjórntakkinn (sem við á loftslag.is mælum eindregið með). Að mestu leiti nálgast Greenman efnið út frá þessari mýtu um að meira CO2 sé bara betra og að venju bregður fyrir kaldhæðni í efnistökum hjá honum. Í lýsingu sinni á myndbandinu segir hann:
Saga Jarðar er stórbrotin og fjölbreytt, og það er auðvelt að verða ringlaður og bjaga hana með því að blanda saman hlutum sem ekki eiga saman í raunveruleikanum.
Það sem var náttúrulegt í fjarlægri fortíð passar ekki endilega vel saman með veröld manna. Að láta nútíma manneskjur og loftslag fornaldar mætast gæti leitt til árekstrar.
Myndbandið er hægt að sjá á loftslag.is, Jörðin er kolefnissvelt - Umfjöllun um mýtu
Tengt efni á loftslag.is:
- Fyrirlestur Richard Alley CO2 áhrifamesti stjórntakkinn
- Mýta - Styrkur CO2 var hærri til forna
- Mýta Aukning CO2 í andrúmsloftinu er góð
- Mýta CO2 er ekki mengun
- 10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.