29.3.2012 | 08:17
Öfgar í veðri - líkurnar aukast
Undanfarinn áratugur hefur þótt óvenjulegur hvað varðar öfga í veðri. Vísindamenn við Potsdam stofnunina í loftslagsrannsóknum, sem staðsett er í Þýskalandi, telja að þessi háa tíðni öfga í veðri sé ekki tilviljun - sérstaklega hvað varðar úrkomu og hitabylgjur (sjá Coumou og Rahmstorf 2012). Tengslin milli hlýnunar og vindstyrks er ekki eins augljós - þó ákveðið munstur hafi sést í aukningu á styrk fellibylja.
Ef tekið er eingöngu árið 2011 í Bandaríkjunum, þá ollu 14 veður tjóni sem var meira en milljarður dollara hvert (yfir 120 milljarðar íslenskra króna). Óvenjumikil úrkoma var í Japan á sama tíma og vatnasvið Yangtze fljótsins í Kína varð fyrir áhrifum óvenjulegs þurrkatímabils. 2010 var öfgafyllra ef eitthvað er, en margir muna eftir hitabylgjunni í Rússlandi og úrhellinu í Pakistan og Ástralíu.
[..]
Sjá nánar á loftslag.is:Öfgar í veðri líkurnar aukast
Heimildir og ítarefni
Coumou og Rahmstorf (2012): A Decade of Weather Extremes. Nature Climate Change [DOI: 10.1038/NCLIMATE1452]
Fréttatilkynningin á ensku: Weather records due to climate change: a game with loaded dice
Umfjöllun á RealClimate: Extreme Climate
Tengt efni á loftslag.is
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.