8.12.2009 | 13:21
Tölfræðin segir að enn sé að hlýna
AP fréttastofan sendi hitagögn frá NOAA og NASA (bæði mælingar á jörðu og úr gervihnöttum) til fjögurra sjálfstæðra tölfræðinga sem fengu ekki að vita hvað fælist í gögnunum en þeir fengu það hlutverk að gera á þeim venjubundin tölfræðileg próf og skoða leitni gagnanna (trend).
Samkvæmt fréttastofunni þá fundu tölfræðingarnir sem greindu hitagögnin, enga tölfræðilega niðursveiflu síðastliðinn áratug og í raun varð vart við mjög ákveðna leitni upp á við í tölunum á áratuga grunni. Að auki kom í ljós að sveiflur núna væru líkar því sem orðið hafa reglulega allt frá árinu 1880. Það má túlka sem svo að þær sveiflur séu náttúrulegar sveiflur ofan á undirliggjandi hlýnun.
Þetta er hluti færsla af Loftslag.is, sjá "Tölfræðin segir að enn sé að hlýna".
Meira ítarefni:
Líklega hlýjasti áratugurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir, Rannsóknir | Breytt s.d. kl. 18:58 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.