Færsluflokkur: Vísindi og fræði
8.6.2011 | 14:36
Nýjar tölur um losun CO2 fyrir árið 2010
Frá Alþjóðaorkustofnuninni (IEA) kom nýlega fram mat á hnattrænni losun á CO2 fyrir árið 2010 og eru þær tölur slæmar fréttir. Milli áranna 2003 og 2008 þá jókst losun CO2 hraðar en verstu spár IPCC höfðu gert ráð fyrir. Í kjölfar efnahagskreppunnar þá hægði umtalsvert á aukningunni og í raun var minni losun árið 2009 (29 gígatonn) heldur en á árinu 2008 (um 29,4 gígatonn).
Því er það ekki gott, að þrátt fyrir hægan bata í efnahagi þjóða þá var aukningin í losun CO2 frá jarðefnaeldsneeyhti árið 2010 sú mesta frá upphafi mælinga. Vöxturinn milli áranna 2009 og 2010 er um 1,6 gígatonn og var losunin því um 30,6 gígatonn árið 2010. Mesti vöxtur þar á undan var milli áranna 2003 og 2004 en þá jókst losunin um 1,2 gígatonn.
[...]
Nánar má lesa um þetta, ásamt því að skoða gröf og myndir varðandi losun og væntanlega hækkun hitastigs, á loftslag.is, Nýjar tölur um losun CO2 fyrir árið 2010
Tengt efni á loftslag.is
- Tveggja gráðu markið
- Tvær gráður of mikið
- Hverjir verða mest varir við afleiðingar aukinnar losunar gróðurhúsalofttegunda
- Þiðnandi sífreri mun auka á hnattræna hlýnun jarðar
- Súrnun sjávar og lífríki hafsins
7.6.2011 | 13:26
Rannsóknaþing RannÍs
Viljum minna á Rannsóknaþing RannÍs.
Áskoranir á norðurslóðum loftslagsbreytingar, umhverfi og hagræn áhrif
Miðvikudaginn 8. júní kl. 8:30-11:00 á Grand hótel Reykjavík.
Morgunverður í boði fyrir gesti Rannsóknaþings frá kl. 8:15.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á rannis@rannis.is
Rannsóknir á norðurslóðum skipta sífellt meira máli, ekki síst í tengslum við hnattrænar umhverfisbreytingar og áhrif þeirra á svæðinu.
Á Rannsóknarþingi 2011 eru loftslag, umhverfi og hagræn áhrif þessara þátta viðfangsefni og mikilvægi þess að rannsóknasamfélagið takist á við þá áskorun sem þessar breytingar kunna að hafa á íslenskt samfélag. Víða um heim eru mikilvægar áskoranir í rannsóknum (Grand Challenges) til umfjöllunar og mikilvægi þess að vísinda- og tækniþekkingu sé beitt við mat, og ekki síður við lausn mála sem upp kunna að koma. Ísland er engin undantekning, hér á landi er mikilvægt að rannsóknir sem snúa að norðurslóðum séu öflugar og ekki síður að Ísland sé virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.
Dagskrá drög
8:30 Setning Rannsóknaþings
Svandís Svavarsdóttir starfandi mennta- og menningarmálaráðherra
8:45 Veðurfarsbreytingar á norðurslóðum
Halldór Björnsson, verkefnastjóri loftslagsrannsókna hjá Veðurstofu Íslands
9:10 Hagræn áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum áhrif á Íslandi
Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Háskóla Íslands
9:30 Áhrif loftslagsbreytinga á gróðurfar á norðurslóðum
Brynhildur Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Skógrækt ríkisins
9:50 Áhrif á fiskistofna í hafinu kringum Ísland
NN Hafrannsóknastofnun
10:10 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Áslaug Helgadóttir rannsóknastjóri LBHÍ og formaður dómnefndar Hvatningarverðlaunanna kynnir val dómnefndar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir verðlaunin
Fundarstjóri: Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
7.6.2011 | 00:03
Ritskoðun
Merkilegt nokk, þá höfum við nú upplifað mjög snögga lokun á báða ritstjóra loftslag.is hjá Hilmari Þór Hafsteinssyni. Færsla hans fjallaði um Eðlileg hamskipti - þar sem hann hélt því fram að 500 vísindamenn hafi gefið út gögn sem andmæla viðurkenndum vísindum um loftslagsfræðin. Við í ritstjórninni lögðum fram okkar gögn og heimildir og báðum um heimildir varðandi þessa 500 vísindamenn og greinar þeirra. Ekki bólaði nú á þeim heimildum, en það endaði með því að Hilmar Þór lokaði á okkur báða... Jæja, svona er þetta nú stundum þegar fólk kemst í rökþrot. Síðasta athugasemd Sveins (sem var blokkuð) er hér undir fyrir þá sem vilja lesa hana, annars vísum við bara í færsluna þar sem fram kemur geysilegt rökleysi þeirra sem afneita vísindum og mótsagnirnar eru ótrúlegar.
Athugasemdin sem var blokkuð:
---
Jæja, Hilmar, það er fróðlegt að sjá þig detta í algert rökþrot, enda hefurðu ekki getað stutt mál þitt með minnstu röksemdum eða heimildum sem standast skoðun. Þá er lang best fyrir þig (eins og marga á undan þér) að ráðast að okkur persónulega og búa til einhverjar skoðanir eða hugmyndir sem þú telur okkur hafa... Ég man nú ekki eftir að hafa boðað skatta eða heimsendi, en þú getur kannski fundið þá heimild...eða nei, þú skalt bara halda áfram að fullyrða út í loftið, þú virðist kunna það best...
En rannsóknir og mælingar gerðar með vísindalegum aðferðum hafa ekkert með einhver trúarbrögð eða fagnaðarerindi að gera. En staflausar staðhæfingar þínar, Hilmar, gætu flokkast í undir flokk hindurvitna eða fagnaðarboðskaps...enda stenst þessi málatilbúnaður þinn enga skoðun. Ég skrifaði líka ágæta grein - Mýtan um trúarbrögð í loftslagsvísindum. Þar er m.a. komið inn á muninn á trúarbrögðum og vísindalegum aðferðum (sem virðast vera þér hulin ráðgáta). Þar stendur m.a. eftirfarandi:
Trúarbrögð: trú á tiltekinn guð (tiltekna guði eða goðmögn), guðsdýrkun samkvæmt ákveðnu hugmyndakerfi (tekið úr veforðabók, íslensk orðabók, snara.is); önnur skilgreining er trú á yfirnáttúrulegar verur, guði eða dýrlinga ásamt siðfræði, venjum og jafnvel stofnunum tengdum trúnni. (tekið af Wikipedia, íslenska útgáfan, sjá hér).
Vísindi: athuganir, rannsóknir gerðar á kerfisbundinn, óhlutdrægan, raunsæjan hátt til að afla þekkingar (tekið úr veforðabók, íslensk orðabók, snara.is)
Vísindaleg aðferð: aðferðafræði ber að leggja mikla áherslu á að athuganir séu hlutlægar og að aðrir vísindamenn geti sannreynt niðurstöðurnar, og að rannsóknir skuli miðast við að sannreyna afleiðingar sem hægt er að leiða út af kenningum. (sjá wikipedia)
Kenning: er sett fram af þeim sem framkvæmdi tilraunina og fer hún eftir niðurstöðunum úr henni. Hverjar sem niðurstöðurnar verða, þá er hægt að setja fram kenningu um það sem prófað var. Þegar kenning er mynduð þarf að fylgja lýsing á öllu ferlinu ásamt þeim rannsóknargögnum sem leiddu til niðurstöðunnar svo að aðrir geti staðfest eða afsannað kenningu. Í heimi vísindanna er ekkert sem telst algerlega sannað og byggist allt á því sem að menn vita best á hverjum tíma. (sjá wikipedia)
Þú hefðir gott af því að skoða þetta, Hilmar, enda virðistu aðhyllast innihaldslausar fullyrðingar sem mest virðast eiga skylt með blinda trú, frekar en eitthvað sem hefur með vísindi að gera. Samt hefurðu gert þig breiðan á þeim forsendum að nóg sé til af vísindaefni (eftir hina 500 meintu vísindamenn), en getur þó ekki bent á eina heimild sem líkist aðferðafræði vísinda og styður mál þitt.
5.6.2011 | 16:43
Sumarþing Veðurfræðifélagsins
Á morgun verður Sumarþing Veðurfræðifélagsins.
Sumarþing Veðurfræðifélagsins verður haldið næstkomandi mánudag 6. júní 2011. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9 og slitið kl. 16. Þingið og Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.
Að þessu sinni fjallar fyrri hluti erindanna um greiningar á veðurfari og aðferð til að auðvelda gerð reikninga á staðbundnu veðri. Seinni hluti erindanna snýr að eldgosunum í Grímsvötnum 2011 og Eyjafjallajökli 2010.
Dagskrá þingsins:
* 13:00 Inngangur
* 13:05 Trausti Jónsson: Árið 2010: Hvar er það í myndinni?
* 13:20 Guðrún Nína Petersen: Vindar á Grænlandssundi
* 13:35 Ólafur Rögnvaldsson: WRFLES
* 13:50 Trausti Jónsson: Þurrkarnir 2009 til 2010 í Reykjavík.
* 14:05 Halldór Björnsson og Sindri Magnússon: Dýrasti vindsniðsmælir sögunnar Vindsnið reiknuð með mekki Eyjafjallajökulgossins
* 14:20 Kaffihlé
* 14:45 Halldór Björnsson Grímsvötn 2011: Frá veðurfræðilegu sjónarhorni
* 15:00 - Elín Björk Jónasdóttir Grímsvatnagosið 2011: Á vaktinni
* 15:15 Þórður Arason Eldingar í Grímsvatnagosi 2011
* 15:30 Sibylle von Löwen Grímsvötn 2011: Öskumælingar
* 15:45 Umræður
* 16:00 Þingi slitið
Stutt ágrip hluta erindanna má finna hér.
1.6.2011 | 10:56
Hefur Jörðin kólnað - með viðauka
Það hefur verið rólegt hjá okkur að undanförnu, en við höfum þó m.a. endurbirt tvær færslur með myndböndum, sem væri ráð að nefna hér. Myndböndin eru úr smiðju Potholer54. Hann fjallar um þá mýtu sem stundum kemur fram í umræðunni, að Jörðin hafi kólnað síðan 1998, ásamt því hvort aðrar plánetur hafi hlýnað eða ekki. Mikilvægi heimilda er honum einnig ofarlega í huga nú sem áður. Viðaukinn kom fram í kjölfar fyrra myndbandsins, þar sem upplagt dæmi um mýtuna, sem hann fjallar um, kom upp á nánast sama tíma og fyrra myndbandið birtist fyrst.
Myndböndin má nálgast á eftirfarandi tenglum, fróðleg nálgun hjá Potholer að venju:
Tengt efni á loftslag.is:
- Tvöföldun á styrk CO2 þýðir aðeins 1,64°C hækkun hitastigs eða kannski ekki
- Póstpoki Potholer54
- Fregnir af yfirvofandi ísöld hraktar
- Ósérhæfðir sérfræðingar
- 32.000 sérfræðingar
- Al Gore gegn Durkin
- Fleiri myndbönd Potholer54
- Myndbönd eftir Greenman3610
25.5.2011 | 09:13
Meðalhiti aprílmánaðar á heimsvísu
Meðalhiti s.l. aprílmánaðar á heimsvísu er skoðaður í nýrri færslu á loftslag.is, sjá Meðalhitastig á heimsvísu í aprílmánuði 2011. Þar eru sýnd gröf og myndir og einnig kemur fram að aprílmánuður í ár er sá 7. hlýjasti fyrir mánuðinn síðan mælingar hófust.
Nánar, Meðalhitastig á heimsvísu í aprílmánuði 2011.
Tengt efni á loftslag.is
- Náttúrulegur breytileiki og horfur fyrir árið 2011
- Hnatthitastig fyrsta ársfjórðungs og Hnatthitaspámeistari Íslands 2011″
- Árið 2010, heitt og öfgafullt
- Árið 2010 hlýjast samkvæmt NASA-GISS
- Óvenjulegt veður árið 2010
- Hitahorfur fyrir árið 2010 upprifjun
- Tag Mánaðargögn
- Tag Hitastig
- Helstu sönnunargögn
23.5.2011 | 08:31
Eldgos og loftslagsbreytingar
Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli varð í fyrra þá skrifuðum við færslu á loftslag.is, en þar voru vangaveltur um áhrif eldgosins á loftslag, en ekki hafði það teljandi áhrif. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram um það hvað gerir það að verkum að eldvirkni hafi áhrif á loftslag. Það er kannski ráð að rifja þessa færslu upp, þó það sé skrifað fyrir um ári síðan.
Oft er það þrennt sem nefnt er sem ráðandi um áhrif eldvirkni á loftslag:
- Eðli eldgossins. Því öflugra eldgos og því meiri sprengivirkni sem er því meiri kólnun. Það er þá sérstaklega ef það er ísúr eða súr gosefni sem hafa mest áhrif - en þá getur sprengivirknin valdið því að hin fínu gosefni nái hærra upp í lofthjúpinn og þá frekar upp í heiðhvolfið, en þar hafa þau langmest áhrif.
- Framleiðsla brennisteinsdíoxíðs: Magn þess skiptir miklu máli til kólnunar, en áhrif til kólnunar er mest vegna endurkasts sólarljóss af völdum þess.
- Staðsetning: Eldgos á hærri breiddargráðum dreifa öskunni og brennisteinsdíoxíðinu ekki eins vel og eldgos staðsett á lægri breiddargráðum. Því þarf gosið að verða því meira til að það hafi áhrif. Við miðbauginn þá dreifast þessi gosefni um um mun stærra svæði vegna háloftavinda til suðurs og norðurs og því meiri endurgeislun sólarljóss.
[...]
Nánar á loftslag.is, Eldgos og loftslagsbreytingar
Tengt efni á loftslag.is
- Orsakir fyrri loftslagsbreytinga
- Fingrafar mannkynsins á hnattrænu hlýnunina
- Geta vísindamenn spáð fyrir um loftslag?
- Mýta: Aukningin í CO2 í andrúmsloftinu er náttúruleg (eldvirkni eða sjórinn)
20.5.2011 | 08:41
Stöðuvötn hitna
Undanfarin aldarfjórðung hafa stöðuvötn Jarðar hitnað í takt við hinar hnattrænu loftslagsbreytingar, samkvæmt rannsókn vísindamanna NASA.
Notuð voru gervihnattagögn og yfirborðshiti 167 stöðuvatna víðs vegar um heim mældur. Samkvæmt þessari rannsókn hafa vötnin verið að hitna um 0,45°C að meðaltali á áratug, en sum vötnin hafa verið að hitna um allt að 1,0°C á áratug. Hitaleitnin er hnattræn og mest er hækkunin á mið og hærri breiddargráðum norðurhvels Jarðar.
[...]
Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Stöðuvötn hitna
engt efni á loftslag.is
- Lax og silungur við loftslagsbreytingar
- Fjórar gráður
- Fordæmalaus hlýnun Tanganyika vatns
- Skjól fjallgarða
- Eðlur á undanhaldi
18.5.2011 | 13:01
Breytingar á ástandi sjávar við Ísland á undanförnum árum
Föstudaginn 8. apríl síðastliðinn flutti Héðinn Valdimarsson haffræðingur erindi sem nefndist Breytingar á ástandi sjávar við Ísland á undanförnum árum.
[...]
Erindið má nálgast á loftslag.is, Breytingar á ástandi sjávar við Ísland á undanförnum árum
Tengt efni á loftslag.is
- Áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi sjávar
- Súrnun sjávar og lífríki hafsins
- Ted | Myndskeið af hreyfingu jökla
- Yfirlýsing frá breska jarðfræðafélaginu um loftslagsbreytingar
- Fjöldaútdauði lífvera
- Tag Vistkerfi
16.5.2011 | 08:55
Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar
Margt bendir til þess samkvæmt greiningu á fjölbreyttum gögnum (Rignot o.fl. 2011) að bráðnun frá jökulbreiðum heimsskautanna sé að taka við af fjallajöklum og hveljöklum sem stærsti þátturinn í sjávarstöðuhækkun úthafanna. Það er mun fyrr en loftslagslíkön hafa bent til.
[...]
Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar
Tengt efni á loftslag.is
- Massabreytingar Grænlandsjökuls
- Íshellur Suðurskautsins brotna upp
- Er ís á Suðurskautinu að minnka eða aukast?
- Vatnsflæði eykur hraða bráðnunar jökulbreiða
- Heitur sjór streymir í Norður-Íshafið