Færsluflokkur: Fréttir
9.12.2009 | 22:41
Uppnám, þrýstingur og titringur
Þriðji dagur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna fjallaði að miklu leiti um danska skjalið, sem lekið var til breska blaðsins The Guardian. Í skjalinu voru drög að loftslagssamningi á heimsvísu. Þar sem m.a. annars er lagt til að þróunarþjóðirnar skuli vera með í bindandi samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Sem er breyting frá Kyoto bókuninni.
Nánar á Loftslag.is [Uppnám, þrýstingur og titringur]
Smá ítarefni varðandi efni fréttarinnar um hitastig sjávar:
- Fiskistofnar fylgja sínu kjörhitastigi
- Jöklabreytingar og hækkun sjávarborðs heimshafanna
- Hitastig októbermánaðar á heimsvísu
![]() |
Í fyrsta sinn yfir Atlantshafið neðansjávar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2009 | 20:21
Leki, framlög, bið og barátta ásamt tölvupóstum

Nánar er hægt að lesa um þetta og fleira í færslunni "Leki, framlög, bið og barátta" um helstu atriði dagsins á COP15.
Einnig er hægt að nálgast fleiri færslur varðandi COP15 ráðstefnuna í Kaupmannahöfn á Loftslag.is.
Við höfum skoðað þetta mál með stolnu tölvupóstana, og tökum undir orð Ban Ki-moon um að ekkert í því máli sé þesslegt að það rýri þann vísindalega grunn sem loftslagsrannsóknir byggja á. Sjá nokkrar færslur um Climategate á Loftslag.is.
![]() |
Loftlagsbreytingar af mannavöldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
8.12.2009 | 13:21
Tölfræðin segir að enn sé að hlýna
AP fréttastofan sendi hitagögn frá NOAA og NASA (bæði mælingar á jörðu og úr gervihnöttum) til fjögurra sjálfstæðra tölfræðinga sem fengu ekki að vita hvað fælist í gögnunum en þeir fengu það hlutverk að gera á þeim venjubundin tölfræðileg próf og skoða leitni gagnanna (trend).
Samkvæmt fréttastofunni þá fundu tölfræðingarnir sem greindu hitagögnin, enga tölfræðilega niðursveiflu síðastliðinn áratug og í raun varð vart við mjög ákveðna leitni upp á við í tölunum á áratuga grunni. Að auki kom í ljós að sveiflur núna væru líkar því sem orðið hafa reglulega allt frá árinu 1880. Það má túlka sem svo að þær sveiflur séu náttúrulegar sveiflur ofan á undirliggjandi hlýnun.
Þetta er hluti færsla af Loftslag.is, sjá "Tölfræðin segir að enn sé að hlýna".
Meira ítarefni:
![]() |
Líklega hlýjasti áratugurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2009 | 22:40
Bætur, áskoranir og grátur

![]() |
Bandaríkin taka á loftslagsmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2009 | 21:50
COP15 - hvað mun gerast í Kaupmannahöfn
Það er ekki gott að vita hvað kemur út úr loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Á Loftslag.is er hægt að lesa sitthvað um ráðstefnuna sem byrjar á morgun, eins og t.d. eftirfarandi:
Ritstjórn Loftslag.is ætlar að fylgjast með framvindu ráðstefnunnar á meðan á henni stendur. Þetta verður bæði í stuttum pistlum og hugsanlega einhverjum nánari fréttaskýringum ef okkur þykir það eiga við. Hér mun verða hægt að nálgast allar færslurnar um COP15 af Loftslag.is, það bætast fleiri færslur á síðuna þegar á líður.
![]() |
Kveðst bjartsýnn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2009 | 18:59
Bráðnun íss og hækkandi hitastig
Umfangsmikil rannsókn á jöklum Suðurskautsins og Grænlands sýnir að jökulþynning á Grænlandi er byrjuð á Norður-Grænlandi, sjá fréttina "Þynning jökla á Grænlandi og Suðurskautinu". Nýlega kom skýrsla um loftslag Suðurskautsins, þar sem farið er m.a. yfir meintan þátt gatsins í ósonlaginu í loftslaginu þar, ásamt ýmsu öðru því tengt. Einar Sveinbjörnsson ræðir m.a. einn hluta þess máls á blogginu sínu. Árið 2007 kom síðasta stóra matsskýrslan um loftslagsmál út hjá Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC). Sú skýrsla var fjórða í röðinni og von er á þeirri fimmtu árið 2014. En frá því skýrslan kom út 2007 hafa komið fram nýjar rannsóknir um ástand mála. Í raun þá þurfti efnið sem er í skýrslunni frá 2007 að vera tilbúið 2006 til að vera með í skýrslunni, enda um stórt verk að ræða sem ekki er haspað af á stuttum tíma. Í millitíðinni og í tilefni fundarins í Kaupmannahöfn, þá hefur ný skýrsla komið út, sem segir frá því sem komið hefur fram í ýmsum rannsóknum sem gerða hafa verið frá 2007.
Nýr gestapistill eftir Halldór Björnsson var birtur á Loftslag.is í dag og nefnist pistillinn "Að sannreyna staðhæfingar".
![]() |
Bráðnun dregur úr veiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.11.2009 | 18:14
Hvers vegna er verið að ræða minni losun gróðurhúsalofttegunda?
Já, hvers vegna er það? Er um tískubólu að ræða eða hugsanlegt samsæri vísindamanna og stjórnmálamanna? Nei, þetta er alvöru mál, sem finna þarf lausn á. Þetta er alvarlegt, vegna þess að mælingar sýna fram á að hitastig fari hækkandi og lang flestir loftslagsvísindamenn telja að hægt sé að rekja þessa hækkun hitastigs til aukningar gróðurhúsalofttegunda. Þ.a.l. er verið að reyna að vinna að svokallaðri pólitískri lausn í Kaupmannahöfn í desember.
Það vill nú oft verða svo með pólítískar lausnir, að ekki er auðvelt að fá alla til að verða sammála. Í þessu tilviki spyrja sumar þjóðir sig t.d. hvort að þær eigi að taka þátt í svona samkomulagi, þar sem þær telja jafnvel að aðrar þjóðir hafi staðið að bak stórum hluta losunar gróðurhúsalofttegunda. Hvort hinar pólítísku lausnir eru einu framkvæmanlegu leiðirnar til að ná settu marki, er spurning sem við verðum að spyrja sjálf okkur? En ef þetta er ekki lausnin, hvar liggur hún þá?
En hvert er þá markmið svona ráðstefnu, eins og haldin verður í Kaupmannahöfn í desember? Jú markmiðið er einfaldlega að ná samkomulagi um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þannig að minni líkur séu á að hitastig fari 2°C yfir það hitastig sem var fyrir iðnvæðingu. Vísindamenn eru almennt sammála um að gróðurhúsalofttegundir hafi áhrif á hitastig, enda liggur fyrir mikið magn rannsókna og mælinga að baki. Hverjar afleiðingar hitastigshækkunar verða er erfitt um að segja, en við hljótum að vilja nýta þekkingu okkar, okkur til framdráttar og reyna að hafa jákvæð áhrif á framtíðina með gjörðum okkar.
![]() |
Kínverjar og Bandaríkjamenn ætla að draga úr mengun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2009 | 08:27
Eru loftslagsmálin einföld eða flókin?
Emil Hannes Valgeirsson hefur skrifað sinn annan gestapistil á Loftslag.is. Að þessu sinni veltir hann upp spurningunni, "Eru loftslagsmálin einföld eða flókin?". Pistillinn byrjar með þessum orðum:
"Eins og flest annað í þessum heimi geta loftslagsmálin í senn verið einföld og flókin. Þau geta líka verið auðskilin eða torskilin en mjög oft eru þau líka misskilin. Fyrir mér eru hugmyndir um hlýnandi loftslag af mannavöldum í sinni einföldustu mynd eitthvað svipaðar því sem sést hér á myndinni."
Einnig má benda á ýmsa aðra gestapistla sem birst hafa á síðunni, m.a. um fugla, jöklabreytingar, Norðurheimsskautið og fleira fróðlegt, sjá gestapistla síðunnar.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2009 | 13:22
Afleiðingar
Það er gert ráð fyrir margskonar mögulegum afleiðingum af hækkandi hitastigi. Ekki er hægt að festa niður hvernig þróuninn mun verða í framtíðinni, en flestar spár gera ráð fyrir hækkandi hitastigi á næstu árum og áratugum. Hvernig mögulegar afleiðingar af þeirri hitastigshækkun verða, mun væntanlega verða misjafnt eftir svæðum. Ekki er hér ætlunin að taka afstöðu um það hvort tryggingafélögin hafi reiknað rétt í þessu tilfelli sem fréttin fjallar um.
Á heimasíðunni Loftslag.is höfum við skrifað ýmislegt um afleiðingar loftslagsbreytinga og framtíðina, m.a. eftirfarandi:
![]() |
Tryggingafélög ýkja loftslagstjón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 10:40
Lausnir
Það er væntanlega ýmislegt sem skoða þarf í sambandi við þær lausnir sem þarf að grípa til vegna losunar koldíoxíðs.
Í þessu sambandi langar mig að vekja athygli á síðu á Loftslag.is sem fjallar lítillega um lausnir og mótvægisaðgerðir.
Einnig höfum við fjallað um loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn, sjá:
![]() |
Kolefnisjöfnun virkar öfugt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt 19.11.2009 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)