11.1.2010 | 19:59
Hafíslaust á Norðurskautinu fyrir 3,3-3 milljónum ára
Í frétt á loftslag.is er fjallað um nýlegar rannsóknir á vegum Jarðfræðafélags Bandaríkjanna (US Geological Survey USGS) en þar koma fram nýjar vísbendingar um að Norður Íshafið og Norður Atlantshafið hafi verið það heitt að hafís hafi horfið yfir sumartíman á mið Plíósen (fyrir um 3,3- 3 milljónum ára).
Það tímabil einkenndist af svipuðu hitastigi og búist er við að verði í lok þessarar aldar og er mikið notað til samanburðar og skilnings á mögulegum skilyrðum framtíðarloftslags.
Bráðnun hafíss er talin hafa margbreytileg og viðamiklar afleiðingar, líkt og að stuðla að áframhaldandi hlýnun, meira strandrof vegna aukins öldugangs, áhrifa á vistkerfið og veðrakerfið.
Nánar má lesa um fréttina á loftslag.is: Frétt: Hafíslaust yfir sumartímann fyrir 3,3-3 milljón árum
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.