24.2.2010 | 20:56
Eru einhverjar sjávarstöðubreytingar í gangi?
Ris í sjávarstöðu er mælt á margskonar hátt og sýna þær mælingar töluvert samræmi setkjarnar, sjávarfallamælingar, gervihnattamælingar. Það sem þær mælingar sýna er að ris sjávarstöðu er stöðugt og hefur farið vaxandi á síðustu öld.
Algeng villa í loftslagsumræðunni er að draga upplýsingar úr litlum hluta gagna og taka ekki tillit til heildarmyndarinnar. Þessi völdu gögn eiga svo að sýna fram á að sjávarstaða sé ekki að hækka eða að það hafi hægt verulega á hækkuninni. Þar sem það er ákveðið flökt í mælingum á sjávarstöðu, þá getur verið villandi að skoða stutt tímabil - tímabil þar sem flökt mælinganna ræður - en ekki langtímaleitni breytinganna.
Sjá nánar færslu á Loftslag.is, "Eru einhverjar sjávarstöðubreytingar í gangi?"
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Blogg, Fréttir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.