26.7.2010 | 15:28
Hitinn eykst og metin með
Á komandi áratugum mun hitastig halda áfram að aukast, eins og flestir virðast vera búnir að átta sig á. En hverjar verða afleiðingarnar af hnattrænni hitastigshækkun upp á 4°C, sjá færslu af loftslag.is Gagnvirk kortaþekja fyrir Google Earth:
Við höfum áður fjallað um gagnvirkt kort frá Met Office, þar sem farið er yfir hugsanlegar afleiðingar þess ef hnattrænn hiti jarðar fer yfir 4°C, eins og sumar spár benda til að geti gerst á þessari öld.
Nú er hægt að skoða þetta gagnvirka kort í forritinu Google Earth (sem margir eru með í sínum tölvum) og búið að bæta við myndbönd sem hægt er að skoða í gegnum forritið með því að smella á tákn á kortinu. Myndböndin eru viðtöl við sérfræðinga þar sem þeir ræða afleiðingar þær sem 4°C hækkun getur mögulega haft.
Fleira er hægt að skoða með þessari kortaþekju og mælum við með að fólk kynni sér það nánar.
Hér er hægt að niðurhala kortaþekjunni(kml), nauðsynlegt er að hafa Google Earth í tölvunni til að skoða (Hægt er að hala niður Google Earth hér)
Ítarefni
Umfjöllun um fyrrnefnt gagnvirkt kort
Fyrir tíma loftslag.is birtum við á loftslagsblogginu upplýsingar um aðra viðbót fyrir Google Earth, til að skoða sjávarstöðubreytingar sjá Sjávarstöðubreytingar
Þeir sem vilja eingöngu skoða myndböndin geta gert það á Youtube MetOffice
Tengt efni af loftslag.is
- Hitamet mun fleiri en kuldamet í Bandaríkjunum
- Hitastig | Júní 2010
- NASA | Heitasta 12 mánaða tímabilið
- Hitahorfur fyrir árið 2010
Hitamet féll í Moskvu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:49 | Facebook
Athugasemdir
Þess má geta að fyrir 90 árum (árið 1920) mældist 36,8°C í Moskvu, þ.e 0,4 gráðum lægri hiti en nú.
Ágúst H Bjarnason, 26.7.2010 kl. 17:50
Það kemur fram í fréttinni á mbl.is Ágúst ;)
Sveinn Atli Gunnarsson, 26.7.2010 kl. 17:53
Takk. Mér sást yfir það.
Annars er það merkilegt að það skuli hafa verið þetta hlýtt þegar fyrir 90 árum.
Ágúst H Bjarnason, 26.7.2010 kl. 18:07
Það er eins með veðrið nú og þá að hitamet eru slegin. Munurinn er sá að þeim fjölgar nú með hækkandi hitastigi, samanber tengilinn: Hitamet mun fleiri en kuldamet í Bandaríkjunum.
Höskuldur Búi Jónsson, 26.7.2010 kl. 18:42
Þetta er ekki óeðlilegt miðað við að frá 1920 hefur hlýnað á jörðinni um minna en eina gráðu. Þess vegna er ekkert óeðlilegt að hitabylgjur hafi komið í gamladaga. En hitabylgjur eru gjarnan um 10 gráðu hlýrri en eðlilegur hiti.
Emil Hannes Valgeirsson, 27.7.2010 kl. 21:29
Sem er einmitt ástæðan fyrir að það er ekki hægt að segja að hitabylgja nú sé af völdum hlýnunar jarðar (tölfræðilega séð) - þó vitað sé að þær verði algengari við hækkun hitastigs.
Höskuldur Búi Jónsson, 27.7.2010 kl. 22:52
Hvað með þéttbýlismyndun og þéttbýlishitnun? Moskva var líklega minni borg árið 1920, minna malbik, og því staðbundið kaldara þá en nú. Ætli þessi 0,4 gráðu munur sé hægt að útskýra með þessum hætti?
Karl Jóhann Guðnason, 28.7.2010 kl. 23:07
Eins og við vitum báðir, þá getur "þéttbýlishitnun" gengið í báðar áttir - þ.e. til kólnunar og hlýnunar. En jú það er alveg mögulegt að í þessu tilfelli sé það að einhverju leiti vegna þéttbýlismyndunar sem hitametið í Moskvu er slegið.
Hitt er annað - að hitametið í Moskvu er ekki aðalefni færslunnar, heldur þessi forvitnilega Google Map kortaþekja sem enginn virðist taka eftir í þessari færslu
Höskuldur Búi Jónsson, 29.7.2010 kl. 09:01
Til fróðleiks þá var fjallað um þéttbýlishitaaukninguna hér á loftslagsblogginu fyrir allnokkru síðan, sjá Tíu mótrök, liður 7.
Höskuldur Búi Jónsson, 29.7.2010 kl. 09:09
Hvað hitametið í Moskvu varðar má geta þess að hitamet hafa veirð að hrynja í miklu minni borgum mjög víða um Rússland. Málið er aðhitabylgjan í heild er af metstærð.
Sigurður Þór Guðjónsson, 9.8.2010 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.