16.3.2009 | 22:51
ACRIM eða PMOD - deilur um útgeislun sólar
Fólk hváir sjálfsagt yfir titlinum á þessari færslu, leyfið mér að útskýra:
Ég var að skoða enn sem áður fyrr bloggsíðu Ágúst H Bjarnasonar,, en hann er hafsjór fróðleiks um loftslagsmál. Hann hallast örlítið í efasemdarátt um að hlýnun jarðar sé af mannavöldum (vona að honum sé sama þótt ég túlki skoðanir hans svona, en oftar en hitt þá kemur hann með hlið efasemdarmanna).
Hann setti inn á bloggsíðu sína nýja grein sem segir að útreikningar á útgeislun sólar útfrá gervihnattamælingum bendi til þess að það sé mögulega sólin sem sé að valda hlýnun á jörðinni.
Málið snýst um að túlka gögn sem líta svona út og fá þau til að fitta saman svo það verði samfeldur ferill samanber eyðuna sem kölluð er ACRIM GAP á myndinni (þannig skil ég það allavega eftir að hafa reynt að lesa mig til á netinu):
Daglegt meðaltal útgeislunar sólar frá nokkrum mismunandi gervihnöttum frá nóvember 1978 (mynd frá acrim.com - smella á tvisvar til að fá stærri útgáfu).
Tveir hópar hafa túlkað gögn frá þessum gervihnöttum á mismunandi hátt
Túlkun PMOD (mynd frá acrim.com - smella á tvisvar til að fá stærri útgáfu).
PMOD túlkar gögnin á þann hátt að sólin hafi minnkað lítillega útgeislun sína á þessu tímabili (nánast staðið í stað fyrir utan reglulegar sveiflur).
Niðurstaða: Hlýnun undanfarna áratugi tengjast ekki virkni sólar og því er hlýnunin af mannavöldum.
Túlkun ACRIM (mynd frá acrim.com - smella á tvisvar til að fá stærri útgáfu).
ACRIM túlkar gögnin á þann hátt að sólin hafi aukið lítillega útgeislun sína á þessu tímabili.
Niðurstaða: Hlýnun undanfarna áratugi tengjast mögulega aukinni virkni í sólinni og því er hlýnunin ekki af mannavöldum.
Það kemur kannski ekki á óvart en báðir aðilar segja hinn hafa túlkað gögnin vitlaust, sjálfsagt verður um það deilt áfram á næstunni eftir þessa nýju grein, en auðvitað er nauðsynlegt að hafa gögnin rétt.
Svo er það aftur spurning hvort þessi munur skipti miklu máli, það má segja að annar höfunda greinarinnar sem vísað er í sé búinn að breyta skoðun sinni örlítið, en árið 2006 var niðurstaða Scafetta þessi:
since 1975 global warming has occurred much faster than could be reasonably expected from the sun alone.
Lauslega þýtt: "Frá 1975 hefur hlýnun jarðar átt sér stað mun hraðar heldur en raunhæft er að ætla frá sólinni einni." En nú er komið annað hljóð í strokkinn (úr greininni 2009):
Increasing TSI between 1980 and 2000 could have contributed significantly to global warming during the last three decades
Ekki beint afdrifarík niðurstaða, en lauslega þýtt þá segir: "Aukning á útgeislun sólar milli 1980 og 2000 gæti hafa stuðlað marktækt að hlýnun jarðar síðustu þrjá áratugi".
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu, en þar sem þetta er frekar ný grein þá hefur ekki orðið mikil umræða um hana á netinu. Ég hugsa að það sé rétt að fylgjast vel með þessari umræðu, en jafnframt passa sig á því að þarna er um lítinn mun á breytingum á útgeislun sólar (á milli þessara túlkana), það lítil breyting að ekki verður hægt að skýra út hlýnun jarðar út frá sólinni einni, jafnvel þó maður taki niðurstöðu ACRIM sem þá einu réttu (þannig skil ég allavega þær umræður sem ég hef lesið um þessar túlkanir).
p.s. ef ég fer með miklar fleipur í þessari færslu þá endilega leiðréttið mig, ég er enginn sérfræðingur í svona gögnum
Meginflokkur: Mótrök | Aukaflokkar: Rannsóknir, Bækur og greinar, Kenningar | Breytt s.d. kl. 23:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.