Heitasta 12 mánaða tímabil síðan mælingar hófust

Hér undir má sjá tvær myndir sem sýna hitastig og breytingar á því. Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Heitustu 12 mánuðir síðan mælingar hófust.

Mynd 1: 12 mánaða vegið meðaltal - NASA

Mynd 2: Hitastig fyrstu 7 mánuði áranna 2010, 2005 og 1998 - NASA

Tengdar færslur á loftslag.is:


Er hnattræn hlýnun góð?

Kostir og gallar hnattrænnar hlýnunar (eða hnattrænna loftslagsbreytinga) er talin verða mjög breytileg milli svæða á hnettinum. Ef hlýnunin verður mild þá er erfitt að meta hvaða svæði muni dafna og hvaða svæði verða fyrir áföllum, en eitt er víst að því meiri sem loftslagsbreytingarnar verða, því alvarlegri verða afleiðingarnar. Áframhaldandi loftslagsbreytingar munu að öllum líkindum gera afkomu meirihluta mannkyns erfiðari – aðallega vegna þess að við höfum nú þegar byggt upp samfélag sem er aðlagað því loftslagi sem verið hefur undanfarnar aldir.

Sjá nánar um þetta á loftslag.is; Er hnattræn hlýnun góð?

Tengdar færslur á loftslag.is


Óræk sönnun ?

Til að byrja með er rétt að árétta að hér er verið að blogga við frétt þar sem stendur:

Vísindamenn segja að risastór borgarísjaki sem brotnaði af Grænlandsjökli nýlega, sé ekki óræk sönnun um hnattræna hlýnun.

Það er rétt að þetta er ekki óræk sönnun um hnattræna hlýnun, en að þessi borgarísjaki sé hluti af eðlilegri bráðnun er líklega full djúpt í árina tekið.

En það er þó rétt að vísindamenn geta ekkert fullyrt um að svona einstakir atburðir séu óræk sönnun hnattrænnar hlýnunar. Vísindamenn notast heldur ekki við orðalagið óræk sönnun, heldur eru lögð fram gögn sem benda til þess að hnattræn hlýnun eigi sér stað, eins og t.d. mælingar á hitastigi um allan heim. Sem dæmi er nýleg frétt sem við skrifuðum um á loftslag.is (10 vísar hnattrænnar hlýnunar) um nýlega skýrslu en þar má meðal annars lesa um greinilegar vísbendingar um hnattræna hlýnun:

Skýrslan er byggð á umfangsmiklum gögnum frá ýmsum áttum (gervihnettir, veðurbelgir, veðurstöðvum á landi, skip, baujur og staðbundnar rannsóknir) og skilgreina höfundar tíu mælanlega þætti sem vísa á hnattrænar breytingar í hitastigi. Hver þessara vísa hefur breyst í samræmi við hnattræna hlýnun. Sjö eru að aukast: lofthiti yfir landi, yfirborðshiti sjávar, lofthiti yfir sjó, sjávarstaða, hitainnihald sjávar, raki og hitistig í veðrahvolfinu. Þrír þeirra sína minnkun: hafís Norðurskautsins, jöklar og snjóhula að vori á Norðurhveli Jarðar.

Kvarðar sem sýna aukningu (smella á til að stækka) 

 

Kvarðar sem sýna aukningu til vinstri og sem sýna minnkun til hægri (smella til að stækka).

.

Hitt er annað að ef svona atburðir verða algengari en áður, þá væri hægt að fara að segja að þeir gætu stafað af hærra hitastigi, þó ekki væri það heldur óræk sönnun...heldur vísbending um áhrif hærra hitastigs.

Til gamans má geta þess að á sama degi og borgarísjakinn brotnaði frá jöklinum, þá varð Hnattræn hlýnun 35 ára, en það er vissulega ekki heldur óræk sönnun fyrir hlýnun Jarðar.

Tengdar færslur á loftslag.is


mbl.is Ísjakinn hluti af eðlilegri bráðnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun

Fyrr í vikunni fjölluðum við um skýrslu NOAA um stöðu loftslags 2009, sem er góð samantekt á hinum fjölmörgu vísbendingum um að hnattræn hlýnun sé raunveruleg (sjá 10 vísar hnattrænnar hlýnunar). Þegar komið er á hreint að Jörðin sé að hlýna, þá leiðir það af sér mikilvæga spurningu: Hvað er að valda þessari hnattrænu hlýnun

Hér fyrir neðan er samantekt á mælanlegum vísbendingum sem svara þeirri spurningu. Margar mismunandi mælingar finna greinileg ummerki um þátt manna í loftslagsbreytingum: 

10 vísar um mannlegan þátt hnattrænnar hlýnunar (af Skeptical Science).

Nánar á loftslag.is; 10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun

Tengdar færslur á loftslag.is

 


10 vísar hnattrænnar hlýnunar

Nú nýverið kom út skýrsla NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration) um ástand loftslags fyrir árið 2009. Í henni koma meðal annars fram 10 greinileg ummerki þess að hitastig Jarðar sé að hækka. Yfir 300 vísindamenn, frá 160 rannsóknateymum í...

Hafís og borgarísjaki

Útbreiðsla hafíss í júlímánuði var sú næst minnsta fyrir mánuðinn síðan gervihnattamælingar hófust, frá 1979 til 2010. Í júlí hægði á bráðnun hafíss (miðað við júní og maí), en nú er eldri ísinn sem endaði í Beaufort hafinu fyrr í vetur byrjaður að...

Hnattræn hlýnun 35 ára

Orðið hnattræn hlýnun (global warming) var, að því er virðist, fyrst notað í vísindatímariti ( Science ) í grein eftir Wally Broecker ( Are we on the brink of a pronounced global warming? ) sem kom út 8. ágúst 1975. Þetta virðist hafa verið í fyrsta...

Hitabylgja í tveimur hlutum

Í nýrri færslu á loftslag.is eru 2 myndbönd með vini okkar Greenman3610 (Peter Sinclair) sem hann nefnir Hitabylgja hluti 1 og 2. Þarna kemur hann örlítið inn á hlut þeirra sem fullyrða, að því er virðist án mikilla heimilda, um kólnun á næstu árum og...

Hitabylgjur í Evrópu

Ný rannsókn bendir til þess að hitabylgjur í Evrópu muni reynast sérstaklega erfiðar þeim sem búa á láglendum dölum og í strandborgum við Miðjarðarhafið. [...] Rannsóknirnar benda til að við lok aldarinnar þá munu íbúar sumra þessara svæða upplifa allt...

Hitabylgjur gætu orðið algengari í framtíðinni

Óvenjulangar hitabylgjur og óvenjumikill hiti gæti orðið algengur í Bandaríkjunum á næstu 30 árum, samkvæmt nýrri rannsókn. Við rannsóknina voru notaðar umfangsmiklar keyrslur á þriðja tug mismunandi loftslagslíkana, þar sem könnuð var sú sviðsmynd að...

Öfl sem hafa áhrif á hitastig Jarðar

Við höfum birt stutt myndband á loftslag.is um þau öfl sem eru að baki hitastigi Jarðar. Hvaða öfl “ýta” hitastiginu upp á við og hvaða öfl “ýta” hitastiginu niður á við, ef svo má að orði komast. Ein af þeim sem stendur á bak við...

Áhrif CO2 uppgötvað

Lausnin að gátunni, um hvort aukning CO2 í andrúmsloftinu myndi valda hækkun hitastigs, er gömul, auk þess sem það var ekki þrautalaust að finna hana. Hér fyrir neðan er farið nánar í gegnum söguna af frumkvöðlum þeim sem uppgötvuðu áhrif CO2. Árið 1861...

COP16 í Mexíkó

Næsta loftslagsráðstefna verður eins og sagt er í frétt mbl.is í Mexíkó (COP16). Það er væntanlega ágætt að stilla væntingum í hóf, þar sem of miklar væntingar geta haft áhrif á útkomuna, eins og hugsanlega gerðist í Kaupmannahöfn (COP15). Helstu...

Áskoranir rafbílavæðingar

Á næstu árum munu, ef áform ganga eftir, rafmagnsbílar (og einnig bílar með aðra orkugjafa) hefja innreið sína á bílamarkaðinn. Það er þó ýmislegt sem þarf að huga að í því sambandi. Það má kannski komast þannig að orði, að það þurfi að verða breyting á...

Lax og silungur við loftslagsbreytingar

Á loftslag.is skrifuðum við fyrir stuttu frétt þar sem farið var yfir rannsókn á áhrifum loftslagsbreytinga á laxa og silung, sjá Lax og silingur við loftslagsbreytingar . Lax og silung hefur á undanförnum áratugum fækkað – og á sumum svæðum...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband