Breytingar á loftslagi af mannavöldum á einni mynd

Árið 1859 gerði eðlisfræðingurinn John Tyndall tilraun sem sýndi fram á gróðurhúsaáhrifin. Sýnilegt ljós fer auðveldlega í gegnum lofthjúpinn til að hita upp jörðina. Annað mál gegnir um hina ósýnilegu innrauðu varmageislun sem kemur frá yfirborði jarðar. Hún sleppur ekki svo auðveldlega út í geim. Í tilraunastofu sýndi Tyndall, með því að senda hitageislun í gegnum lofttegundir, t.d. vatnsgufu og koldíoxíð (CO2), að sumar lofttegundir hindra varmageislun. Þær hafa verið kallaðar gróðurhúsalofttegundir.

Tyndall spáði einnig fyrir því hvað myndi gerast ef gróðurhúsalofttegundir myndu valda hlýnun (Tyndall 1861). Búast má við sérstöku mynstri í hinni hnattrænu hlýnun, ef hún er af völdum aukinna gróðurhúsalofttegunda. Mælingar á þeim mynstrum styrkir vísbendingar um að mannkynið sé að valda þeirri hlýnun - auk þess sem þau útiloka náttúrulegar ástæður. Við skulum líta á hin fjölmörgu fingraför mannkyns á breytingum loftslags:

 

Á loftslag.is má lesa afganginn af þessari færslu, sjá  Breytingar á loftslagi af mannavöldum á einni mynd

Tengt efni á loftslag.is

 


Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar

Endurbirting á færslu frá því í vor.


earth20110308-640Samkvæmt nýlegum gögnum þá eru jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins að bráðna sífellt hraðar með hverju árinu.

Margt bendir til þess – samkvæmt greiningu á fjölbreyttum gögnum (Rignot o.fl. 2011) – að bráðnun frá jökulbreiðum heimsskautanna sé að taka við af fjallajöklum og hveljöklum sem stærsti þátturinn í sjávarstöðuhækkun úthafanna. Það er mun fyrr en loftslagslíkön hafa bent til.

Hraði bráðnunarinnar hefur verið að aukast töluvert. Á hverju ári, á því tímabili sem skoðað var, bráðnaði að meðaltali um 36,3 gígatonn meira en á árinu áður.

[...]

Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins bráðna hraðar

Tengt efni á loftslag.is

 


Tíðni hitabylgja að aukast í Bandaríkjunum?

Eitt af því sem vísindamenn spá að muni aukast við þær loftslagsbreytingar sem nú eru að verða eru hitabylgjur. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Suðurríki Bandaríkjanna sem eru í góðu samræmi við það sem vísndamenn segja.  Af því tilefni rifjum við upp færslu af loftslag.is frá því í fyrra:

Óvenjulangar hitabylgjur og óvenjumikill hiti gæti orðið algengur í Bandaríkjunum á næstu 30 árum, samkvæmt  nýlegri rannsókn.

Við rannsóknina voru notaðar umfangsmiklar keyrslur á þriðja tug mismunandi loftslagslíkana, þar sem könnuð var sú sviðsmynd að losun CO2 í andrúmsloftinu myndi auka hnattrænt hitastig jarðar um 1°C frá 2010-2039 - sem þykir frekar líklegt samkvæmt IPCC. Höfundar greindu hitagögn fyrir Bandaríkin milli áranna 1951-1999. Markmið þeirra var að finna lengstu hitabylgjurnar og heitustu árstíðina fyrir seinni hluta tuttugustu aldarinnar. Þær greiningar voru keyrðar í loftslagslíkönum, meðal annars inn í RegCM3 sem er loftslagslíkan með mikilli upplausn og líkir eftir hitastigi frá degi til dags á litlu svæði (25x25 km).

Samkvæmt niðurstöðunni, þá munu hitabylgjur - svipaðar og þær lengstu á tímabilinu 1951-1999 - verða allt að fimm sinnum milli áranna 2020-2029 á hluta vesturstrandar og miðríkja Bandaríkjanna. Á milli 2030-2039 verða þær enn viðameiri og algengari.

Höfundar spá einnig mikilli aukningu í óvenjulegu árstíðabundnu hitastigi á áratugnum sem nú er hafinn, en hitastig sem jafnast á við heitustu árstíðina frá 1951-1999 gæti orðið allt að fjórum sinnum fram til ársins 2019 yfir stóran hluta Bandaríkjanna. Auk þess töldu höfundar líklegt að dagleg hitamet verði tvisvar sinnum algengari á fjórða áratug þessarar aldar en milli áranna 1980-1999.   

Fyrir áratuginn 2030-2039, gæti stór hluti Bandaríkjanna orðið vitni að allavega fjórum árstíðum á áratug, sem verða jafn heit og heitasta árstíðin á tímabilinu 1951-1999. Í Utah, Colorado, Arizona og Nýju Mexíkó gætu mjög heitar árstíðir á áratug orðið allt að sjö.  

Einn aðalhöfunda segir um niðurstöðuna: "Á næstu 30 árum, gætum við séð aukningu á tíðni hitabylgja líka þeirri sem gengur nú yfir Austurströnd Bandaríkjanna (byrjun júlí) eða líka þeirri sem reið yfir Evrópu árið 2003 og olli tugum þúsunda dauðsfalla. Hitabylgjur sem þær, valda einnig töluverðu álagi á ræktun korns, sojabauna, baðmullar og vínberja, sem getur valdið uppskerubrest." Við þetta bætist að líklegt er talið að breytingar í úrkomu og raka jarðvegs eigi eftir að versna til muna þegar líður á öldina og muni það magna upp afleiðingar hitabylgjanna - þ.e. að meira verði um þurrka og skógarelda í náinni framtíð.

Miðað við fyrrnefnda sviðsmynd, yrði hnattrænn hiti eftir 30 ár um 2°C heitari en fyrir iðnbyltinguna. Margir hafa talið það ásættanlegt markmið til að komast hjá verstu afleiðingum hlýnunar Jarðar (sjá Tveggja gráðu markið). Samkvæmt þessari rannsókn þá munu svæði í Arizona, Uta, Colorado og Nýju Mexíko verða fyrir allavega 7 hitabylgjum á tímabilinu 2030-2039 - hitabylgjum jafn heitum og þær verstu frá árinu 1951-1999. Þar með telja höfundar að mörg svæði Bandaríkjanna muni verða fyrir alvarlegum afleiðingum hlýnunar Jarðar, þrátt fyrir að tveggja gráðu markið myndi nást.

Heimildir og ítarefni

Unnið upp úr frétt af heimasíðu Stanford háskólans: Heat waves and extremely high temperatures could be commonplace in the U.S. by 2039, Stanford study finds

 Diffenbaugh, N.S. and Ashfaq, M., Intensification of hot extremes in the United States, Geophysical Research Letters, doi:10.1029/2010GL043888, in press.

Tengdar færslur á loftslag.is


mbl.is Suðurríkin setja hitamet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýnun eða kólnun - Hitastig í júlí - Gestapistill

Síðustu tvær færslur á loftslag.is hafa fjallað um hitastig. Sú fyrri um hitastig í veðrahvolfinu í júlímánuði og þróun þess, ásamt túlkunum á sveiflum í þeim mælingum. Sú síðari er fróðlegur gestapistill eftir Emil Hannes Valgeirsson.

Nánar má lesa um þetta á loftslag.is:


Undarleg hegðun vísindamanna…

The Onion News Network er með skemmtilegan vinkil á það sem þau kalla undarlega hegðun vísindamanna. Kannski ágætis veganesti inní helgina. Góða helgi og gangið vel um gleðinnar dyr. ... Innlegg/myndband The Onion News Network má sjá á loftslag.is,...

Aðgerðaleysi er ekki góður kostur

Hingað til hefur aðgerðaleysi varðandi loftslagsvandann verið mest áberandi. Það hafa verið haldnar ráðstefnur og fundir þar sem koma fram vilyrði þjóða um aðgerðir. En þegar á hólminn er komið, virðast vilyrðin og áætlanirnar drukkna í einhverri...

Verður algengara á næstu árum

Á síðasta ári tókst í fyrsta skipti að sigla bæði Norðuaustur- og Norðvesturleiðina, eða hringinn í kringum Norðurpólinn, eins og áhöfn Rus ætlar að reyna í ár, sjá nánar Sigling um bæði Norðaustur- og Norðvesturleiðina á sama sumri heppnaðist . Aðstæður...

RÚV – Sannleikurinn um loftslagsbreytingar

Í þætti sem sýndur verður á RÚV fimmtudaginn 7. júlí klukkan 19:35 verður verður gerð tilraun til að fjalla um hvað við vitum um loftslagsbreytingar – eða sannleikann, hvað sem það nú er, um loftslagsbreytingar. Á vef RÚV stendur eftirfarandi um...

Víngerðarmenn í vanda

Hækkandi hitastig mun valda því að ræktendur hágæðavínviðja í Kaliforníu og fleiri stöðum í Bandaríkjunum munu lenda í vandræðum á næstu 30 árum, samkvæmt nýrri rannsókn sem vísindamenn Stanford Háskóla gerðu. [...] Nánar á loftslag.is - þar sem einnig...

Hvað er líkt með banana og kolamola?

Dr. Peter Griffith sem er vísindamaður hjá NASA, fjallar hér um kolefnishringrásina á einfaldan hátt og tekur sem dæmi banana og kolamola. [...] Sjá myndband á loftslag.is, Hvað er líkt með banana og kolamola? Fleiri myndbönd á...

Dr. Jeff Masters um öfga í veðri

Einn þekktasti veðurfræðingur heims, Dr. Jeff Masters á Weather Underground - tók saman nýlega ítarlegt yfirlit yfir öfga í veðri árið 2010 og það sem af er þessa árs. Þar má meðal annars sjá lista yfir veðurmet – hita og úrkomu. Að hans sögn þá...

Loftslagsbreytingar með augum bænda

Undanfarna áratugi hafa bændur, í skógivöxnum hlíðum Darjeelings í Himalajafjöllum ,tekið eftir ýmsu undarlegu. Ár og lækir eru að þorna, uppskera minnkar og tré blómstra nokkru áður en vorar. Reynsla þeirra samræmist gervihnattagögnum samkvæmt nýrri...

Eru auknir öfgar í veðri tengdir hnattrænni hlýnun?

Röksemdir efasemdamanna… Það koma alltaf öfgar í veðri eins og sjá má ef skoðaðar eru fréttir og annálar síðustu alda – þurrkar, úrhelli og stormar hafa alltaf haft áhrif á okkur mennina. Öfgar í veðri eru því náttúrulegir og hnattræn hlýnun...

Menn losa margfalt meira CO2 en losnar við eldvirkni

Að meðaltali losum við mennirnir jafngildi heildarársframleiðslu allra eldfjalla og jarðhitakerfa jarðar af koldíoxíð (CO2) á einungis 3-5 dögum. Þetta er niðurstaða yfirlitsgreinar um losun CO2 af völdum manna og eldvirkni (Gerlach 2011). Það virðist...

Er lítil ísöld eða kuldaskeið að skella á?

Það virðast rúmast vel innan marka rökfræðilistarinnar hjá þeim sem efast um hlýnun jarðar af mannavöldum að halda tvennu fram: Annars vegar að vísindamenn hafi spáð ísöld á áttunda áratugnum og því hafi þeir rangt fyrir sér nú og hins vegar að halda því...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband