Færsluflokkur: Myndbönd

Hafísinn 2000-2009

Rakst á vídeó með þróun útbreiðslu hafíss á Norðurslóðum undanfarin níu ár. Takið t.d. eftir lágmarksútbreiðslu hvers árs sem er oftast í september.


Global Governance.

Ég lét til leiðast að horfa á fyrsta hluta myndbands sem Jón Aðalsteinn benti mér á að horfa á. Fyrsta hlutann má sjá hér með aðstoð youtube:

Hér er mitt álit á þessum 10-11 mínútum:

Það er greinilegt að í þessari mynd eru samankomnir helstu forkólfar á móti kenningunni um hlýnun jarðar af mannavöldum og þeir endurtaka sömu þvæluna og hefur verið marg hrakin.

Myndin byrjar á því að segja að margir vísindamenn efist um að Al Gore hafi rétt fyrir sér – ókey, ég er líka á því að hann hafi ekki alltaf rétt fyrir sér. Ég er þó viss um að hnattræn hlýnun jarðar sé af mannavöldum – við erum því sammála um margt – þó hann hafi ekki alltaf rétt fyrir sér að mínu mati. (sjá t.d. færsluna Potholer: Gore vs. Durkin)

Næst kemur frétt um staðbundið veðurfyrirbæri í Bandaríkjunum – óvenju kalt um páskaleitið. Þar sem við erum að ræða hnattræna hlýnun – þá á þetta bara alls ekki við í þeirri umræðu. Þetta skapar vissulega stemmninguna sem þetta áróðursmyndband er að vonast eftir (sjá t.d. færsluna Annar kaldasti apríl á þessari öld!)

Næst koma efasemdir um að CO2 hafi áhrif á loftslag. Þessar efasemdir eru óþarfar (sjá t.d. færsluna CO2 og áhrif á loftslagsbreytingar. Nokkur mótrök.)

Þar næst er gert lítið úr IPCC og sú staðreynd að hún er að einhverju leiti stjórnmálalegs eðlis geri hana ótrúverðuga. Það gleymist að geta þess að af því að hún er stjórnmálalegs eðlis, þá hafa olíuríki t.d. Bandaríkin fengið í gegn breytingar á orðalagi sem hefur gert minna úr vandanum í gegnum tíðina, en vísindin eru þó eins traust og þau geta verið miðað við þá þekkingu þegar hver skýrsla kom út. Ef þeir sem hefðu þekkinguna myndu ráða orðalaginu og stjórnvöld myndu síðan taka fullkomið mark á innihaldi þeirra, þá stæðum við ekki andspænis þeim vanda sem allt stefnir í.

Síðan kemur jarðfræðingur að nafni Ian Clarke, sem hefði greinilega ekki átt að fá sitt prófskirteini á sínum tíma. Fyrst segir hann að sólin sé uppspretta þeirrar hlýnunar sem orðið hefur – hvernig hann fær það út þegar öll gögn segja annað skil ég ekki (sjá t.d. færsluna Er það virkilega ekki sólin?) Hann nefnir línurit Gores sem sýnir hversu vel CO2 og hitastig jökul- og hlýskeiða falla saman. Gore fer ekki með ósannindi þar – en á það hefur verið bent að Gore minnist ekki á frumástæðuna fyrir því að það hlýnar, þ.e. sveiflur í hreyfingum jarðar; möndulhalli og fjarlægð frá sólu sem dæmi. Þegar hlýnar fer af stað ferli sem losar CO2 og stigmagnar hlýnunina – það er því töluverður tímamunur á ferlunum þ.e. CO2 og hlýnuninni. Reyndar er það 800 ára munur eins og efasemdamenn hafa réttilega bent á. Málið er að vísindamenn vita þetta og hafa vitað lengi – hvort Gore vissi það er óljóst, en hann einfaldar málið töluvert, mögulega til að flækja ekki myndina sína of mikið – veit ekki. Það skiptir ekki máli, því vísindamenn hafa aldrei leynt þeirri staðreynd að CO2 hækkaði 800 árum seinna en hitastig á síðustu hlýskeiðum, enda hafa þeir góðar útskýringar á þeirri hækkun (sjá aftur færsluna CO2 og áhrif á loftslagsbreytingar. Nokkur mótrök.). Þeir vitna í The Great Global Warming Swindle – sem sýnt hefur sig vera sjálft heilmikið svindl (sjá færsluna Algjört svindl).

Næst kemur Dr Fred Singer – sem rekur rannsóknastofu sem styrkt er af olíurisanum Exxon – maður getur ekki tekið hann alvarlega. Það er eins og ef hagfræðingur á launaskrá Björgólfs kæmi í viðtal og segði okkur að IceSave sé í raun algjör snilld. Hann segir að það sé í raun hlýnunin sem valdi aukningu á CO2 – hvaðan kemur það CO2 spyr ég. Sumir efasemdamenn halda því fram að hún komi úr hafinu – en því miður þá er CO2 líka að aukast í hafinu – meira að segja er CO2 í hafinu farið að nálgast gildi sem mældust síðast fyrir 55 milljónum árum – því fylgdi mikil niðursveifla og útdauði margra sjávarlífvera (sjá aftur færsluna CO2 og áhrif á loftslagsbreytingar. Nokkur mótrök.).

Síðan er rætt hversu lítill hluti af heildarmagni CO2 sé af mannavöldum – en þeir gleyma því að minnast á það að aukningin sem orðið hefur frá upphafi iðnbyltingunnar má nær algjörlega rekja til losunar CO2 af mannavöldum (brennsla jarðefnaeldsneytis og skógareyðing stærstur hluti þar). Þar næst minnast þeir á þá staðreynd að vatnsgufa er langstærsti hluti „gróðurhúsagasa“ – en gleyma að minnast á að vatnsgufan magnast upp við þann aukna hita sem CO2 veldur. Þá segja þeir að ský auki enn á gróðurhúsaáhrif vatnsgufu – en þar er gríðarleg óvissa – flestar rannsóknir benda til þess að ský hafi frekar áhrif til kólnunar en hitt (sjá aftur færsluna CO2 og áhrif á loftslagsbreytingar. Nokkur mótrök.)

Ég ákvað að vera ekki að eyða meiri tíma í þetta myndband - ef maður kaupir 80 jarðaber og fyrstu 10 valda magapínu, þá hættir maður að borða þau.


Algjört svindl

Enn eru einhverjir sem halda fram rök svipuðum þeim sem koma fram í myndinni the Great Global Warming Swindle, mynd sem var svo sýnd á RÚV á sínum tíma - til óheilla fyrir loftslagsumræðuna hér á landi. Hér er stutt yfirlit yfir það helsta sem vísindamenn sjá athugavert við þessa mynd.

 


Potholer: Gore vs. Durkin

Ég hafði ekki tekið eftir því að Potholer var kominn með nýtt myndband - en ég hef áður sett inn myndbönd eftir hann. Þetta fer yfir nokkra galla í mynd Gore Inconveniant truth og í mynd Durkin The Great global warming swindle.


Man Made Climate Change in 7 Minutes

Rakst á þetta myndband á YouTube:


Earth 2100

Datt í hug að benda á þátt/heimildamynd sem var víst í sjónvarpinu vestanhafs í gærkvöldi á sjónvarpstöðinni ABC. Þetta er þáttur sem hefði verið alveg við mitt hæfi, heimildamynd með vísindaívafi og töluverðu drama og heimsendapælingum. Myndin segir frá Lucy sem fæddist í gær og ævi hennar út öldina - inn í söguna sýnist mér að séu fléttuð viðtöl við sérfræðinga í loftslagsmálum. En því miður hafði ég ekki tækifæri á að sjá þáttinn- kannski getur maður skoðað hann einhvern tíma síðar. En hér er frétt um þáttinn og síðan trailer:

Hægt er að skoða ýmislegt um þáttinn/heimildarmyndina á þessari síðu, meðal annars myndbrot: Smelltu hér

Ég hvet hér með RÚV til að sýna þáttinn.


Áhugavert viðtal

Rakst á áhugavert viðtal við Helga Björnsson okkar fremsta jöklafræðing, á YouTube.

Climate Denial Crock - Er aukið CO2 jákvætt fyrir gróður?

Í þessu myndbandi er meðal annars farið yfir möguleg áhrif aukins CO2 á gróður.


Heimkynni

Þá er það ljóst, næsta föstudagskvöld er maður skyldaður til þess að horfa á nýja mynd sem frumsýnd verður um allan heim - meðal annars á RÚV, tekið af vefnum ruv.is

 

Heimkynni

Home

Heimkynni (Home) er tveggja klukkustunda mynd eftir ljósmyndarann kunna Yann Arthus-Bertrand, þann sem gerði Jörðina úr lofti, rómaða loftmyndaseríu sem var sýnd um allan heim, meðal annars á Austurvelli fyrir örfáuum sumrum, og samnefnda kvikmynd sem Sjónvarpið sýndi.

Og Yann Arthus-Bertrand á talsvert brýnt erindi við fólk með þessari nýju mynd sinni. Loftið hitnar, auðlindir þverra, tegundir eru í útrýmingarhættu og mannkynið stofnar lífsskilyrðum sínum í voða. Í aldarlok verða nær allar náttúruauðlindir jarðar uppurnar vegna taumlausrar neyslu mannfólksins.

Myndin er í senn óður til Jarðarinnar og ákall til mannanna. Það er of seint að vera svartsýnn. Allir verða að leggja sitt af mörkum eigi Jörðin að haldast í byggð. Við höfum aðeins tíu ár til að átta okkur á gegndarlausri rányrkju okkar á gjöfum jarðar - og snúa við blaðinu.

Myndin verður frumsýnd um allan heim 5. júní, í kvikmyndahúsum og sjónvarpi, og einnig gefin út á mynddiski.

Sýning: föstudagur 5. júní 2009 kl. 21.10.

 

 

 

 

Hægt er að sjá smá sýnishorn með því að skoða þetta youtube myndband:

Gott ef þetta eru ekki Lakagígar þarna á 12-15 sekúndu myndbandsins.

Eitt er víst að ég býst við stórkostlegum myndum og hlakka gríðarlega til.


Climate Denial Crock - CO2

Það vill svo skemmtilega til að ég hef í bígerð smá umfjöllun um áhrif CO2 og nokkur mótrök gegn kenningunni um hlýnun jarðar af völdum útblásturs CO2. Þá kom inn nýtt myndband frá Greenman um CO2 sem er ágætis upphitun.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband