Færsluflokkur: Fréttir
11.12.2010 | 11:45
Wikileaks og loftslagsmál
Nú er varla talað um annað en leka ýmissa skjala, yfir á wikileaks. Þau skjöl virðast ná til ýmissa mála og höfum við á loftslag.is rekist á nokkrar umfjallanir um loftslagsmál í tengslum við þau.
Nánar er hægt að lesa um þetta á, Wikileaks og loftslagsmál
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2010 | 22:56
Stöðuvötn hitna
Undanfarin aldarfjórðung hafa stöðuvötn Jarðar hitnað í takt við hinar hnattrænu loftslagsbreytingar, samkvæmt rannsókn vísindamanna NASA.
Notuð voru gervihnattagögn og yfirborðshiti 167 stöðuvatna víðs vegar um heim mældur. Samkvæmt þessari rannsókn hafa vötnin verið að hitna um 0,45°C að meðaltali á áratug, en sum vötnin hafa verið að hitna um allt að 1,0°C á áratug.
[...]
Nánar má lesa um þetta á loftslag.is, Stöðuvötn hitna
Tengt efni á loftslag.is
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2010 | 23:34
Vatnsgufa er öflugasta gróðurhúsalofttegundin
Röksemdir efasemdamanna
Vatnsgufa er mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin. Hún veldur um 90 % allra gróðurhúsaáhrifanna. Þar sem vatnsgufan er miklu mikilvægari gróðurhúsalofttegund en t.d. CO2 er þá ekki rökrétt að segja að hún sé mengun og óæskileg?
Það sem vísindin segja
Vatnsgufa er mikilvægasta gróðurhúsalofttegundin. Vatnsgufa er einnig ráðandi við svokallaða magnandi svörun í loftslaginu og magnar upp þá hlýnun sem að breyting í styrk CO2 í andrúmsloftinu veldur. Út af þessari magnandi svörun, þá er loftslag mjög viðkvæmt fyrir hlýnun af völdum CO2.
Vatnsgufa er ráðandi gróðurhúsalofttegund. Gróðurhúsaáhrif (eða geislunarálag) fyrir vatn er um 75 W/m2 á meðan CO2 veldur um 32 W/m2 (Kiehl 1997). Þessi hlutföll hafa verið staðfest með mælingum á innrauðum geislum sem endurvarpast niður til jarðar (Evans 2006). Vatnsgufa er einnig ráðandi í magnandi svörun í loftslagskerfi jarðar og aðal ástæðan fyrir því hvers vegna hitastig er svo viðkvæmt fyrir breytingum í CO2.
Ólíkt utanaðkomandi geislunarálagi líkt og CO2 sem hægt er að bæta við í andrúmsloftið, þá er magn vatnsgufu í andrúmsloftinu fall af hitastigi. Vatnsgufa kemur í andrúmsloftið með uppgufun og ræðst magn hennar af hitastigi sjávar og andrúmsloftsins, sem aftur ræðst af svokölluðu Clausius-Clapeyron sambandi. Ef meira vatn bætist við andrúmsloftið, þá þéttist það og fellur sem regn eða snjór á næstu einni eða tveimur vikum. Á sama hátt ef á einhvern óskiljanlegan hátt öll vatnsgufan yrði tekin skyndilega úr andrúmsloftinu, þá myndi uppgufun jafna það út og raki andrúmsloftsins ná fyrri styrk á stuttum tíma.
[...]
Lesa meira á loftslag.is, Vatnsgufa er öflugasta gróðurhúsalofttegundin
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
7.12.2010 | 08:35
Vitnisburður vísindamanna
Í öðru myndbandinu frá áheyrnarfundi í bandaríska þinginu svara loftslagsvísindamennirnir Dr. Richard Alley og Dr. Ben Santer ýmsum spurningum um loftslagsbreytingar, fyrra myndbandið má sjá hér. Fróðlegt er að sjá hvernig þetta fer fram þarna í BNA. Það virðist ekki alltaf vera auðvelt að svara flóknum spurningum á stuttum tíma og á sama tíma reynir spyrjandinn jafnvel að láta ljós sitt skína. En persónulega finnst mér vísindamennirnir skila þessu vel þrátt fyrir umgjörðina. Spurning hvort það væri ekki betra að lesa sig í gegnum eitthvað af þeim skýrslum sem til eru, í stað þess að hafa einskonar morfís keppni til að finna sigurvegara þar sem takmarkaður tími og aðrar takmarkanir eru settar varðandi möguleikann til að svara að viti. En jæja, þeir félagar (Alley og Santer) standa sig allavega með ágætum í þessum myndbandsbúti.
Dr. Richard Alley og Dr. Ben Santer eru báðir virtir loftslagsvísindamenn.
[...]
Myndbandið má sjá á loftslag.is, Vitnisburður vísindamanna.
Tengt efni á loftslag.is:
- Gorgeirinn og vísindamaðurinn (myndband frá sama áheyrnarfundi)
- Fyrirlestur Dr. Richard Alley CO2 áhrifamesti stjórntakkinn
- Sýna gervihnattamælingar hækkandi hitastig?
- Mýta Aðrar reikistjörnur í sólkerfinu eru að hlýna
- Jörðin er kolefnissvelt Umfjöllun um mýtu
- Mýta - Styrkur CO2 var hærri til forna
- Mýta Aukning CO2 í andrúmsloftinu er góð
- 10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.12.2010 | 11:42
Spurt og svarað um sjávarstöðubreytingar
Sjávarstöðubreytingar eru með verri afleiðingum loftslagsbreytinga og þó að óvissan sé nokkur um hvaða afleiðingar verða af þeim hvar og hversu miklar, þá þykir nokkuð ljóst að þær munu hafa slæm áhrif víða. Talið er að þær muni hafa hvað verstar afleiðingar á þéttbýlustu svæðum heims og þar sem nú þegar eru vandamál af völdum landsigs vegna landnotkunar og þar sem grunnvatn er víða að eyðileggjast vegna saltsblöndunar frá sjó. Einnig verða ýmis strandsvæði í aukinni hættu af völdum sjávarstöðubreytinga vegna sterkari fellibylja framtíðar.
Hvernig eru sjávarstöðubreytingar mældar?
Sjávarstöðubreytingar eru mældar á ýmsan hátt, sem síðan er samræmt til að gefa sem besta mynd. Til eru hundruðir sírita sem mæla flóð og fjöru og tengdir eru GPS mælum sem mæla lóðréttar hreyfingar landsins (landris og landsig). Einnig eru radarmælingar frá fjölmörgum gervihnöttum sem gefa upplýsingar um breytingar á sjávarstöðu yfir allan hnöttinn. Mælitæki sem mæla hitastig og loftþrýsting, ásamt upplýsingum um seltu sjávar eru einnig gífurlega mikilvæg til að kvarða gögnin, auk nýjustu og nákvæmustu gagnanna sem nú koma frá þyngdarmælingum gervihnattarins GRACE en hann gefur nákvæmar upplýsingar um breytingu á massa, lands og sjávar.
Yfirlitsgrein eftir Merrifield o.fl. 2009 um GLOSS (Global Sea Level Observing System) gefur nokkuð góða mynd um það hversu margar og fjölbreyttar stofnanir og einstaklingar vinna að því að kortleggja sjávarstöðubreytingar. Þessar rannsóknir eru óháðar hvorri annarri og staðfesta hverja aðra.
Rís sjávarstaða jafnt og þétt yfir allan heim?
Þegar maður heyrir tölur um sjávarstöðubreytingar, þá er yfirleitt verið að tala um hnattrænt meðaltal. Það er margt sem hefur áhrif á staðbundnar sjávarstöðubreytingar. Sem dæmi þá gætu áhrifin orðið minni hér við strendur Íslands á sama tíma og þau gætu orðið mun meiri við Austurströnd Bandaríkjanna.
[...]
Fréttir | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
3.12.2010 | 22:10
Gorgeirinn og vísindamaðurinn
Tekið úr orðabók:
Gorgeir:
Yfirlæti, hroki, rembingur
Vísindamaður:
Maður sem iðkar vísindi, er lærður í e-i grein vísinda
Eftir þessar útskýringar er ekki úr vegi að skoða myndband sem sjá má á loftslag.is og fjallar um einskonar áheyrnarfund hjá bandarískri þingnefnd, sjá nánar, Gorgeirinn og vísindamaðurinn
Tengt efni á loftslag.is:
- Fyrirlestur Dr. Richard Alley CO2 áhrifamesti stjórntakkinn
- Orsakir fyrri loftslagsbreytinga
- Mýta Aðrar reikistjörnur í sólkerfinu eru að hlýna
- Jörðin er kolefnissvelt Umfjöllun um mýtu
- Mýta - Styrkur CO2 var hærri til forna
- Mýta Aukning CO2 í andrúmsloftinu er góð
- 10 vísar um þátt manna í hnattrænni hlýnun
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2010 | 09:33
Mýta beint í æð...
Við birtum eftirfarandi færslu á gærkvöldi, áður en við tókum eftir þessari frétt. Merkilegt val á myndefni fyrir efnið. Í fréttinni er talað um að 2010 verði eitt það hlýjasta ár frá upphafi mælinga og svo er sýnt myndband af grátandi fólki á flugvöllum og vetrarkuldum í Evrópu. Það er óþarfi að gera lítið úr þeim fréttum almennt að það ríkir vetrarríki í Evrópu um þessar mundir og að kuldarnir munu hugsanlega hafa áhrif á hvar í röðinni árið lendir, en við teljum að þetta val á myndefni við fréttina styðji við mýtuna sem er tekin fyrir hér undir og endurtökum við hana því núna:
Mýta: Það er kalt á Klonke Dinke og því er engin hnattræn hlýnun (skipta út landi, svæði, héraði eftir því sem við á).
Þessi mýta er sjaldgæf, en virðist miða að því að koma því að hjá fólki að kalt veður eða kuldamet á ákveðnum stað á ákveðnum tíma þýði að ekki sé nein hlýnun um að ræða.
Ég ætla að velta upp spurningu sem virðist stundum koma upp og sérstaklega þegar kalt er. Spurningin er þessi:
Ef það eru miklir kuldar á ákveðnum stað á ákveðnum tíma, afsannar það ekki að um hnattræna hlýnun sé að ræða?
Veðrið er síbreytilegt, það er erfitt að reikna það út og lítil breyting í lægðakerfum jarðar getur orðið til þess að kuldamet eru slegin á ákveðnum svæðum (reyndar einnig hitamet sem dæmi, þá er mjög kalt í Skandinavíu á meðan óvenju hlýtt er á Vesturströnd Grænlands).
Fréttir af kuldatíð á ákveðnum stað á ákveðnum tíma er einmitt það fréttir af veðri og skal alls ekki rugla því saman við loftslag en loftslag er tölfræðileg lýsing á veðurfarslegum þáttum þegar til lengri tíma er litið (oft notast við 20-30 ára tímabil). Það sama á vissulega við um fréttir af hitastigi á Grænlandi síðustu daga sá hiti segir í raun lítið um loftslag.
Af því leiðir að óvenjulegir kuldar á ákveðnum stað og ákveðnum tíma segja í raun lítið um hnattræna hlýnun, þar sem kuldamet eru einnig slegin þegar hnattræn hlýnun er í gangi. Kuldametin gerast þó færri en hitametin, eins og raunin hefur orðið í t.d. Bandaríkjunum, en þar hefur tölfræði hitameta verið skoðuð undanfarna áratugi en nú er það svo að hitamet hvers dags síðastliðinn áratug hafa komið um tvisvar sinnum oftar en kuldamet (sjá Frétt: Hitamet mun fleiri en kuldamet í Bandaríkjunum).
Niðurstaða
Niðurstaðan er sú að jafnvel þegar hnattræn hlýnun er í gangi eins og nú, þá geta komið óvenju kaldir dagar á ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Þeim fækkar þó samanborið við óvenju hlýja daga.
Eitt er áhugavert við þá sem að fjalla mikið um kuldamet og tengja það við að að ekki sé að hlýna. Þetta eru oft sömu mennirnir og neita að viðurkenna að það sé að hlýna og telja að ekkert sé að marka hitamælingar sem notaðar eru til að staðfesta hlýnun jarðar- en taka þarna fegins hendi við upplýsingum um að það sé óvenju kalt á einhverjum stað á ákveðnum tíma.
[...]
Á loftslag.is má einnig sjá myndband sem fjallar um þetta, Það er kalt á Klonke Dinke og því er engin hnattræn hlýnun.
![]() |
Árið 2010 eitt það hlýjasta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.12.2010 | 22:34
Það er kalt á Klonke Dinke og því er engin hnattræn hlýnun

Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2010 | 22:07
Fjórar gráður
Vísindamenn bresku Veðurstofunnar (UK Met office) hafa áður sýnt fram á möguleika þess að Jörðin geti hitnað um yfir 4°C á seinni hluta þessarar aldar, ef ekki verður dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda. Nú er nýútgefið hefti Konunglegu Vísindaakademíunnar (A Philosophical Transactions of the Royal Society)þar sem birtar eru ítarlegar rannóknir á því hvernig búast má við að loftslag Jarðar verði við 4°C hækkun hitastigs og afleiðingar þess.
[...]
Nánar á loftslag.is, Fjórar gráður
Tengt efni á loftslag.is
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
30.11.2010 | 20:01
Samkeppnishæfni og orkunýting
Á loftslag.is má sjá athyglisvert myndband, þar sem Steven Chu, sem hlotið hefur Nóbelsverðlaun í eðlisfræði og er núverandi orkumálaráðherra Bandaríkjanna , fjallar um dalandi samkeppnishæfni Bandaríkjanna á sviði nýrrar tækni, þar á meðal í tækni sem mun knýja iðnframleiðsluna inn í nýja öld, þ.m.t. tækni sem stuðlar að betri orkunýtingu og sjáflbæri orkunýtingu sem ekki losar mikið af koldíoxíði.
Til að sjá myndbandið, vinsamleg smellið á eftirfarandi tengil; Samkeppnishæfni og orkunýting
Tengt efni á loftslag.is:
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)