Færsluflokkur: Fréttir
Fyrir stuttu var ritstjórum Loftslag.is boðið að gerast þýðendur fyrir síðuna Skeptical Science. Eins og eflaust einhverjir hér vita þá er það síða sem sérhæfir sig í að greina röksemdir efasemdamanna um hlýnun jarðar af mannavöldum og skoða hvort einhver vísindi eru á bak við þau rök. Það má því búast við því í framtíðinni að þegar skoðuð eru rök á Skeptical Science, þá fari að birtast valmöguleikar um að skoða viðkomandi síðu á íslensku.
Nú erum við búnir að þýða fyrstu færsluna, en hún fjallar um þau rök efasamdarmanna að þar sem það hafa áður orðið loftslagsbreytingar án athafna manna, þá séu loftslagsbreytingar nú ekki af mannavöldum. Sjá Does past climate change disprove man-made global warming? - en þar á nú að sjást íslenskur fáni ofarlega til hægri. Endilega skoðið og látið okkur vita ef textinn er í einhverju rugli en það hafa verið vandamál með íslenska stafi.
Við munum setja inn þýðingarnar á Loftslag.is jafn óðum og þær eru tilbúnar.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 08:40
Viðburðir tengdir loftslagsmálum
Á Loftslag.is, er viðburðadagatal sem ekki hefur fengið mikla athygli hjá okkur hingað til. En ef vel er athugað má sjá viðburðina neðst í hliðarstikunni til hægri á Loftslag.is. Okkur langar að vekja sérstaka athygli á ákveðnum fyrirlestri, sem við höfum báðir hug á að sækja nú á laugardag. Þetta er erindi Halldórs Björnssonar í fyrirlestraröðinni Vísindaeyjan: Landnám, loftslag og haf.
Nánar er hægt að lesa um þennan fyrirlestur í færslunni "Viðburðir tengdir loftslagsmálum".
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 08:46
Er lítil ísöld eða kuldaskeið að skella á?
Í nýrri færslu á Loftslag.is er borin upp spurningin: Er lítil Ísöld eða kuldaskeið Ísaldar í vændum á næstunni?
Það virðast nefnilega rúmast vel innan marka rökfræðilistarinnar hjá þeim sem efast um hlýnun jarðar af mannavöldum að halda tvennu fram: Annars vegar að vísindamenn hafi spáð ísöld á áttunda áratugnum og því hafi þeir rangt fyrir sér nú og hins vegar að halda því fram að það muni ekki hlýna heldur kólna og að jafnvel sé yfirvofandi önnur Litla Ísöld eða jafnvel nýtt kuldaskeið Ísaldar. Hvort tveggja eru mýtur sem eru misvinsælar.
Í færslunni eru skoðaðar sveiflur í sólvirkni sem sumir hafa túlkað sem svo að sambærilegt kuldatímabil og Litla Ísöldin sé í vændum - við skoðum hvort eitthvað er til í því.
Einnig eru skoðaðar sveiflur á milli kuldaskeiða og hlýskeiða Ísaldar og skoðaðar ástæður fyrir þeim og rýnt í framtíðina. Hvenær lýkur núverandi hlýskeið og kuldaskeið ísaldar skellur á?
Sjá meira á Loftslag.is: Er lítil ísöld eða kuldaskeið að skella á?
Fréttir | Breytt 31.1.2010 kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.1.2010 | 08:51
Nýlegt efni á Loftslag.is
Okkur langar til að segja frá því sem ratað hefur á síður Loftslag.is að undanförnu. Fyrst ber að nefna nýja fasta síðu, undir "Vísindin á bak við fræðin", sem nefnist "Helstu sönnunargögn". Þessi nýja síða kemur inn á þónokkur sönnunargögn um að hitastig fari hækkandi og að gróðurhúsalofttegundir hafi áhrif á hitastig. Eins og aðrar fastar síður á Loftslag.is, þá munum við leitast við að uppfæra hana reglulega.
Ýmislegt annað nýlegt efni er að finna á Loftslag.is, eins og myndbönd, fréttir, blogg og vangaveltur. Hérundir verður upptalning á einhverju af því efni sem birst hefur nýlega.
Fréttir hafa verið tiltölulega fáar að undanförnu á síðum Loftslag.is, en þó má nefna 3 nýlegar fréttir til sögunnar:
Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld
Nýleg rannsókn bendir til þess að styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld hafi verið lægri en áður hefur verið talið..Hitastig ársins 2009
Hitastig ársins 2009 á heimsvísuHafíslaust yfir sumartímann fyrir 3,3-3 milljón árum
Ný rannsókn bendir til þess að það hafi verið hafíslaust yfir sumartímann á Norðurskautinu á mið Plíósen, fyrir 3,3-3 milljónum...
Eftirfarandi færslur innihalda myndbönd af ýmsum tegundum:
Það er kalt, þ.a.l. er engin hnattræn hlýnun
Hér er nýtt myndband frá Greenman um mýtuna að af því að það sé kalt, þá sé engin hnattræn hlýnun..NASAexplorer Hitastigið 2009 og Sólin
2 stutt myndbönd frá NASAexplorer um hitastigið og sólinaÓgnvekjandi myndbönd
Myndbönd Athyglisverður vinkill í loftslagsumræðuna
Annað nýlegt efni og blogg af Loftslag.is:
Kuldatíð og hnattræn hlýnun
Hér er velt upp spurningunni hvort miklir kuldar á ákveðnum stað og tíma afsanni hnattræna hlýnun..Annáll Loftslagsfræði ársins 2009 í hnotskurn
Loftslagsfræði ársins 2009 í hnotskurn yfirlit yfir áriðEru loftslagslíkön óáreiðanleg?
Hér er könnuð fullyrðing sem heyrist oft, að loftslagslíkön séu óáreiðanleg og því sé ekki mark takandi á því loftslagi...Er CO2 mengun?
Hér er pælt í því hvort CO2 sé mengun eða ekki..Sólvirkni og hitastig
Hér er aðallega fjallað um mynd sem að birtist í morgunblaðinu þann 15. janúar 2010 og á að sýna tengsl...Hitahorfur fyrir árið 2010
Hér er litið á horfur með nokkra náttúrulega þætti sem taldir eru hafa áhrif á skammtímasveiflur í veðri og horfur...Jöklar Himalaya og álitshnekkir IPCC
Álitshnekkir og mistök IPCC varðandi bráðnun jökla í HimalayaVangaveltur varðandi mistök IPCC
Vangaveltur varðandi mistök í 4. matsskýrslu IPCC
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 08:41
Ógnvekjandi myndbönd
Greg Craven hefur sett loftslagsvandann upp í ákvarðanabox (e. grid) þar sem hann gerir ráð fyrir fjórum útkomum út frá ákveðnum forsendum (sjá má myndböndin á Loftslag.is). Hann færir rök fyrir því hvernig hægt er að nálgast ákvörðun um loftslagsvandann út frá áhættustýringu (e. risk management). Það eru í raun tvær ákvarðanir sem hægt er að velja á milli varðandi loftslagsmál að hans mati:
- Það er gripið til mótvægisaðgerða núna, sem mundi hafa í för með sér efnahagslegan kostnað og útkoman veltur á því hvort kenningar um hnattræna hlýnun af mannavöldum reynast; a) rangar eða b) réttar
- Það er ekki gripið til mótvægisaðgerða nú, sem mundi ekki hafa í för með sér efnahagslegan kostnað núna og útkoman veltur á því hvort kenningar um hnattræna hlýnun af mannavöldum reynast; a) rangar eða b) réttar
Myndböndin hafa verið skoðuð oftar en 7 milljón sinnum, samkvæmt heimasíðu Greg Craven, og hann hefur einnig gefið út bók í kjölfar þessara vinsælda á YouTube. Þetta eru engin vísindi en athyglisverður vinkill í umræðuna og umhugsunarverður.
Sjá myndböndin og færsluna á Loftslag.is [Ógnvekjandi myndbönd]
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.1.2010 | 07:52
Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld
Í nýrri færslu á loftslag.is er fjallað um nýlega rannsókn á styrk koldíoxíðs (CO2) í andrúmslofti Miðlífsaldar (fyrir 251-65 milljón árum), sem er með heitari tímabilum í sögu jarðar og í upphafi Nýlífsaldar (fyrir u.þ.b. 55 milljónum ára).
Samkvæmt rannsókninni gæti styrkur CO2 hafa verið mun minna en áður var talið - en greining á styrk þess er erfið og óvissa mikil. Greindur var jarðvegur og myndun kalsíts við núverandi aðstæður og bendir rannsóknin til þess að styrkur koldíoxíðs, í andrúmslofti þessara tímabila hafi verið svipaður og spáð er að geti orðið í lok þessarar aldar.
Sjá frétt á loftslag.is: Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld
Fréttir | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2010 | 10:50
Helstu sönnunargögn - Nýjung á Loftslag.is
Við höfum bætt við nýrri undirsíðu við "Loftslagsbreytingar - vísindin". Sú síða inniheldur helstu sönnunargögn um það að hitastig sé að hækka ásamt því að það geti verið af mannavöldum. Síðan nefnist "Helstu sönnunargögn" og eru þar nefndir þættir eins og hitastig, hafís, sjávarstöðubreytingar o.fl. Við hvern lið sem settur er fram á síðunni er eitthvað ítarefni, þó ekki tæmandi listi, af Loftslag.is. Í hliðarstikunni hægra megin á síðunni má sjá þennan nýja lið, í rammanum "Vísindin á bak við fræðin".
Við munum leitast við að uppfæra þessa síðu með reglulegu millibili. Á myndinni hér undir má sjá hvernig ramminn í hliðarstikunni lítur út.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.1.2010 | 08:54
Gestapistlar á Loftslag.is
Á Loftslag.is höfum við fengið til liðs við okkur gestapenna. Þetta hafa verið bæði sérfræðingar og áhugamenn um loftslagsmál. Á síðustu vikum hefur verið tiltölulega rólegt meðal gestapislahöfunda á síðunni, en við eigum þó von nýju efni frá gestapistlahöfundum á næstunni. Það verður fróðlegt að sjá hvað þar verður fjallað um, enda fá gestapistlahöfundar frjálsar hendur um efnistök í sínum pistlum og við sjáum þá ekki persónulega fyrr en þeir berast okkur til birtingar.
Áður en næstu gestapistlar berast í hús, er ekki úr vegi að vera með upprifjun á þeim gestapistlum sem birst hafa hingað til á Loftslag.is.
- Um gróðurhúsaáhrif og afleiðingar þeirra - Eftir Halldór Björnsson sem er sérfræðingur á Veðurstofu Íslands
- Er hafísinn á hverfanda hveli? - Eftir Emil Hannes Valgeirsson sem er bloggari og grafískur hönnuður
- Veðurfar Norðurheimsskautsins frá upphafi okkar tímatals - Eftir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing og bloggara
- Er almenningi sama um loftslagsmál? - Eftir Stefán Gíslason bloggara og framkvæmdastjóra
- Fuglar og loftslagsbreytingar - Eftir Tómas Grétar Gunnarsson sem er forstöðumaður Háskólaseturs Suðurlands (HÍ)
- Jöklabreytingar og hækkun sjávarborðs heimshafanna - Eftir Tómas Jóhannesson sem er jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands
- Eru loftslagsmálin einföld eða flókin? - Eftir Emil Hannes Valgeirsson, sem er bloggari og grafískur hönnuður
- Að sannreyna staðhæfingar - Eftir Halldór Björnsson sem er sérfræðingur á Veðurstofu Íslands
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2010 | 11:54
Fróðleg myndbönd og upplýsingar
Á Loftslag.is er síða með ýmsum myndböndum sem við finnum og finnst passa inn í umræðuna á einhvern hátt. Misjafnt er hvert tilefnið er, stundum er það bara afþreying, stundum finnst okkur að tiltekið myndband rammi inn einhvern athyglisverðan vinkil í umræðunni eða bara flott myndband að okkar mati. Hérundir má sjá hvernig velja má öll myndbönd á síðunni. Þ.e. farið er í stikuna að ofanverðu, bendillinn settur yfir "Heiti reiturinn" þá kemur undirstikan niður og hægt er að velja "Myndbönd". Ef bendillinn er t.d. settur yfir "Blogg" kemur fram undirstika með "Gestapistlar", "Blogg ritstjórnar" og "COP15".
Sýnishorn af nokkrum fróðlegum myndböndum af Loftslag.is:
- Hugleiðingar Carl Sagan um jörðina
- Ferðalag um frera jarðar
- Hafís 101
- NASA vaktar fæðuöryggi í heiminum
- Acid Test - Heimildarmynd um súrnun sjávar
- Að mæla hita jarðar
- Tölvubúnaður NASA
- NASAexplorer - Hitastigið 2009 og Sólin
- Það er kalt og þ.a.l. engin hnattræn hlýnun...
- Loftslagsbreytingar - eru þær ekki náttúrulegar?

Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2010 | 08:51
Vangaveltur varðandi mistök IPCC
Það eru uppi vangaveltur um þýðingu þeirra mistaka sem gerð voru hjá IPCC í 4. matsskýrslunni um loftslagsmál. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá kom fram mikilvæg villa í skýrslu vinnuhópis II (WG II) hjá IPCC. Villan er sú að þar er talað um að mögulega hverfi jöklar Himalaya fyrir árið 2035, nánar má lesa um þetta í færslunni, Jökla Himalaya og álitshnekkir IPCC.
En hvað gerðist eiginlega?
Það má segja að vinnuhópur II, sem skrifar skýrslu um afleiðingar loftslagsbreytinga, hafi gert þessi mistök. Þeir höfðu ekki ritrýndar heimildir fyrir skrifum sínum, eins og fram kemur í færslunni um málið. Eftir að þetta kom upp hefur orðið mikil umræða um störf Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna (IPCC). Þessi villa er m.a. í mótsögn við það sem t.d. kemur fram í skýrslu vinnuhóps I (WG I) um jökla Himalaya. Í vinnuhópi I eru sérfræðingar á hverju sviði sem stjórna skýrslugerðinni. Þar kemur m.a. fram að Asian High Mts. skera sig ekki úr hvað afkomu varðar, (Sjá t.d. mynd 4.15 í WG I) eða þá málsgrein á bls. 360 í WG I þar sem sagt er að háfjallajöklar í Asíu have generally shrunk at varying rates, auk þess sem nefnd eru dæmi um jökla sem hafa þykknað eða gengið fram. (sjá nánar athugasemd eftir Halldór Björnsson). Raunar er líka merkilegt að þessi villa hafi ekki komið upp fyrr, en ein ástæðan fyrir því gæti verið að þessi texti var djúpt grafinn í skýrslu vinnuhóps II og kom m.a. ekki fram í úrdráttum um þann hluta matsskýrslunnar.
Eins og fram kom í færslu okkar, þá mun þetta mál væntanlega hafa þau áhrif að efasemdarmenn fá byr í seglin:
Þetta mál á væntanlega eftir að gefa efasemdarmönnum byr í seglin, þar sem þeir munu væntanlega taka djúpt í árina og oftúlka merkingu þessa atviks. Jafnvel mun verða reynt að tengja þetta Climategate málinu svokallaða, þar sem ummæli vísindamanna í tölvupóstum voru oftúlkuð og rangtúlkuð í mörgum tilfellum og af ýmsum talin grafa undan sjálfum vísindunum, sem þó er fjarri lagi.
Það er mikilvægt að hafa í huga að matsskýrslur IPCC eru upp á ca. 3.000 bls. og það kemur fjöldinn allur af skýrsluhöfundum að gerð þeirra. Þessi mistök velta í sjálfu sér ekki loftslagsvísindunum, jörðin er því miður enn að hlýna og það mun væntanlega hafa einhverjar afleiðingar í framtíðinni, hvað sem um þessa meinlegu villu er hægt að segja.
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)