Nýlega birtist samantekt og gagnrýni á fjórðu úttekt IPCC frá árinu 2007 gagnrýnin er sú að fjórða úttektin innihaldi allt að 30% af óritrýndum greinum (sjá NOconsensus.org). Það skal tekið fram að hér er á ferðinni gagnrýni frá efasemdamönnum um hnattræna hlýnun af mannavöldum.
Það sem þeir virðast ekki hafa áttað sig á er, að með því að flokka niður skýrslurnar eftir vinnuhópum, þá gáfu þeir vinnuhópi 1 toppeinkun. Vinnuhópur 1 (wg1) sá um að skrifa um vísindalega þekkingu á veðurfari og loftslagsbreytingum eða eins og við höfum áður skrifað hér á loftslag.is:
Það helsta sem verið er að gagnrýna IPCC fyrir, er í kafla um afleiðingar og áhrif á samfélög. Þar er þekkingin götótt og svo virðist vera sem að inn í skýrslu vinnuhóps 2 (wg2) hafi ratað heimildir sem ekki eru ritrýndar oft skýrslur sem unnar eru upp úr ritrýndum greinum, en þar hefur greinilega slæðst inn villa varðandi jökla Himalaya. Skýrsla vinnuhóps 1 (wg1) sem fór í gegnum ástand jarðarinnar, vísindalega og ritrýnt, hefur sýnt sig að er byggð á ansi góðum grunni þótt eflaust megi gagnrýna mat þeirra á sumu t.d. má benda á að jökulbreiður Grænlands og Suðurskautsins eru að bráðna hraðar en búist var við í skýrslunni (og samfara var vanmat á hækkun sjávarstöðu) einnig hefur bráðnun hafíss verið hraðari en búist var við af IPCC og fleira má nefna.
Í úttekt NOconsensus.org kemur fram að yfir 93% af þeim 6226 greinum sem eru notaðar í vinnuhóp 1 eru ritrýndar. Það þýðir samkvæmt þeim að vinnuhópur 1 fær einkunina A - ekki slæmt - þ.e. hin vísindalega þekking á veðurfari og loftslagsbreytingum er samkvæmt þeim mjög vel unnin af IPCC. Þ.e. þeir hljóta því að taka undir eftirfarandi niðurstöðu:
Megin niðurstaða fjórðu úttektar milliríkjanefndarinnar er að breytingar í ýmsum náttúruþáttum í lofthjúpnum, hafinu og í jöklum og ís bera óumdeilanleg merki hlýnunar jarðar. Það er mjög líklegt að meðalhiti á norðuhveli jarðar hafi á síðari hluta 20. aldar verið hærri en á nokkru öðru 50-ára tímabili síðustu 500 árin, og líklega sá hæsti í a.m.k. 1300 ár. Það er afar ólíklegt að þá hnattrænu hlýnun sem orðið hefur á síðustu fimm áratugum megi útskýra án ytri breytinga. Samanlögð áhrif náttúrulegra þátta, þ.e. eldgosaösku og breytinga á styrk sólar, hefðu líklega valdið kólnun á tímabilinu (úr skýrslu sem unnin var fyrir Umhverfisráðuneytið um Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Íslandi).
Fleiri slíkar vel ígrunaðar niðurstöður má finna í skýrslu vinnuhóps 1 (sjá wg1). Vel af sér vikið hjá NOconcensus.org að sýna fram á hversu sterk gögn eru á bak við hinn vísindalega grunn bakvið kenninguna um að Jörðin sé að hlýna af mannavöldum. Að sama skapi má hrósa IPCC fyrir vel unnið starf.