Er lítil ísöld eða kuldaskeið að skella á?

global-warming-arctic-ice-sheetsÍ nýrri færslu á Loftslag.is er borin upp spurningin: Er lítil Ísöld eða kuldaskeið Ísaldar í vændum á næstunni?

Það virðast nefnilega rúmast vel innan marka rökfræðilistarinnar hjá þeim sem efast um hlýnun jarðar af mannavöldum að halda tvennu fram: Annars vegar að vísindamenn hafi spáð ísöld á áttunda áratugnum og því hafi þeir rangt fyrir sér nú og hins vegar að halda því fram að það muni ekki hlýna – heldur kólna og að jafnvel sé yfirvofandi önnur Litla Ísöld eða jafnvel nýtt kuldaskeið Ísaldar. Hvort tveggja eru mýtur sem eru misvinsælar.

Í færslunni eru skoðaðar sveiflur í sólvirkni sem sumir hafa túlkað sem svo að sambærilegt kuldatímabil og Litla Ísöldin sé í vændum - við skoðum hvort eitthvað er til í því.

Einnig eru skoðaðar sveiflur á milli kuldaskeiða og hlýskeiða Ísaldar og skoðaðar ástæður fyrir þeim og rýnt í framtíðina. Hvenær lýkur núverandi hlýskeið og kuldaskeið ísaldar skellur á?

Sjá meira á Loftslag.is: Er lítil ísöld eða kuldaskeið að skella á? 


Nýlegt efni á Loftslag.is

Okkur langar til að segja frá því sem ratað hefur á síður Loftslag.is að undanförnu. Fyrst ber að nefna nýja fasta síðu, undir "Vísindin á bak við fræðin", sem nefnist "Helstu sönnunargögn". Þessi nýja síða kemur inn á þónokkur sönnunargögn um að hitastig fari hækkandi og að gróðurhúsalofttegundir hafi áhrif á hitastig. Eins og aðrar fastar síður á Loftslag.is, þá munum við leitast við að uppfæra hana reglulega.

Ýmislegt annað nýlegt efni er að finna á Loftslag.is, eins og myndbönd, fréttir, blogg og vangaveltur. Hérundir verður upptalning á einhverju af því efni sem birst hefur nýlega.

 

Fréttir hafa verið tiltölulega fáar að undanförnu á síðum Loftslag.is, en þó má nefna 3 nýlegar fréttir til sögunnar:

 

Eftirfarandi færslur innihalda myndbönd af ýmsum tegundum:

 

Annað nýlegt efni og blogg af Loftslag.is:




Ógnvekjandi myndbönd

Greg Craven hefur sett loftslagsvandann upp í ákvarðanabox (e. grid) þar sem hann gerir ráð fyrir fjórum útkomum út frá ákveðnum forsendum (sjá má myndböndin á Loftslag.is). Hann færir rök fyrir því hvernig hægt er að nálgast ákvörðun um loftslagsvandann út frá áhættustýringu (e. risk management). Það eru í raun tvær ákvarðanir sem hægt er að velja á milli varðandi loftslagsmál að hans mati:

  1. Það er gripið til mótvægisaðgerða núna, sem mundi hafa í för með sér efnahagslegan kostnað og útkoman veltur á því hvort kenningar um hnattræna hlýnun af mannavöldum reynast; a) rangar eða b) réttar
  2. Það er ekki gripið til mótvægisaðgerða nú, sem mundi ekki hafa í för með sér efnahagslegan kostnað núna og útkoman veltur á því hvort kenningar um hnattræna hlýnun af mannavöldum reynast; a) rangar eða b) réttar

Myndböndin hafa verið skoðuð oftar en 7 milljón sinnum, samkvæmt heimasíðu Greg Craven, og hann hefur einnig gefið út bók í kjölfar þessara vinsælda á YouTube. Þetta eru engin vísindi en athyglisverður vinkill í umræðuna og umhugsunarverður.

Sjá myndböndin og færsluna á Loftslag.is [Ógnvekjandi myndbönd]


Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld

Í nýrri færslu á loftslag.is er fjallað um nýlega rannsókn á styrk koldíoxíðs (CO2) í andrúmslofti Miðlífsaldar (fyrir 251-65 milljón árum), sem er með heitari tímabilum í sögu jarðar og í upphafi Nýlífsaldar (fyrir u.þ.b. 55 milljónum ára).

Samkvæmt rannsókninni gæti styrkur CO2  hafa verið mun minna en áður var talið - en greining á styrk þess er erfið og óvissa mikil. Greindur var jarðvegur og myndun kalsíts við núverandi aðstæður og bendir rannsóknin til þess að styrkur koldíoxíðs, í andrúmslofti þessara tímabila hafi verið svipaður og spáð er að geti orðið í lok þessarar aldar.

Sjá frétt á loftslag.is: Styrkur koldíoxíðs í andrúmsloftinu á miðlífsöld


Helstu sönnunargögn - Nýjung á Loftslag.is

Við höfum bætt við nýrri undirsíðu við " Loftslagsbreytingar - vísindin ". Sú síða inniheldur helstu sönnunargögn um það að hitastig sé að hækka ásamt því að það geti verið af mannavöldum. Síðan nefnist " Helstu sönnunargögn " og eru þar nefndir þættir...

Gestapistlar á Loftslag.is

Á Loftslag.is höfum við fengið til liðs við okkur gestapenna. Þetta hafa verið bæði sérfræðingar og áhugamenn um loftslagsmál. Á síðustu vikum hefur verið tiltölulega rólegt meðal gestapislahöfunda á síðunni, en við eigum þó von nýju efni frá...

Fróðleg myndbönd og upplýsingar

Á Loftslag.is er síða með ýmsum myndböndum sem við finnum og finnst passa inn í umræðuna á einhvern hátt. Misjafnt er hvert tilefnið er, stundum er það bara afþreying, stundum finnst okkur að tiltekið myndband rammi inn einhvern athyglisverðan vinkil í...

Vangaveltur varðandi mistök IPCC

Það eru uppi vangaveltur um þýðingu þeirra mistaka sem gerð voru hjá IPCC í 4. matsskýrslunni um loftslagsmál. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá kom fram mikilvæg villa í skýrslu vinnuhópis II (WG II) hjá IPCC. Villan er sú að þar er talað um að mögulega...

Jöklar Himalaya og álitshnekkir IPCC

Álitshnekkir IPCC Trúverðugleiki loftslagsvísindanna og þá sérstaklega IPCC varð fyrir álitshnekki þegar fram kom villa í 4. matsskýrslu Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Villan er tiltölulega mikilvæg og er sú að í skýrslunni er sagt að það sé...

Hitahorfur fyrir árið 2010

Nú er janúar rúmlega hálfnaður og því eru komin ýmis konar yfirlit yfir síðasta ár og menn byrjaðir að velta fyrir sér árinu sem nú er byrjað. Hér á loftslag.is höfum við birt yfirlit yfir hvað var helst að gerast í loftslagsfræðunum (sjá Annáll –...

Það er kalt, þ.a.l. er engin hnattræn hlýnun...eða hvað

Nú er komið nýtt myndband frá YouTube notandanum Greenman3610 . Nú skoðar hann kuldahretið sem verið hefur víða um heim að undanförnu. Hvað segir það okkur um hnattræna hlýnun ef eitthvað. Að venju eru myndbönd úr myndbandaséríunni, sem hann kallar...

Hitastig ársins 2009

Nú er komið árlegt yfirlit NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration) yfir helstu veðurfarsleg gögn ársins 2009 og hvernig þau eru í samanburði við önnur ár. Hér er það helsta sem kemur fram í greiningu NOAA varðandi hitastig, auk þess sem...

Um línurit sem sýnir sólvirkni og hitastig

Á loftslag.is er fjallað um línurit sem birt var í Morgunblaðinu í gær (15. janúar 2010), í fréttaskýringu - en mikinn hluta textans má einnig lesa á mbl.is við fréttina sem hér er tengt við. Þetta línurit var reyndar vitlaust teiknað eins og við komumst...

Lausnir og mótvægisaðgerðir

Lausnir Það hafa ýmsir möguleikar verið viðraðir sem mögulegar lausnir við loftslagsvandanum. Hægt er að skipta mótvægisaðgerðunum (lausnunum) í þrjá hluta. Í fyrsta lagi eru lausnir sem stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda, svo er það...

Eru tengsl milli hlýnunar jarðar og sólar?

Skemmtilegt að fá grein um hugmyndir um loftslagsbreytingar og á mbl.is lof skilið fyrir það. Það er þó sumt sem hefði mátt vera skýrara í þessari grein: 1: Vísindamenn tala um að á ísöld þá séu hlýskeið (eins og við erum á núna) og kuldaskeið . Á...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband