25.11.2009 | 23:57
Hvað með Ísland?
Þetta er væntanlega fín skýrsla sem vísað er í, í fréttinni - en takmörkuð er hún - allavega fyrir okkur Íslendinga.
Fyrirsögn fréttarinnar gefur Íslendingum hugsanlega von um að í þessari skýrslu sé verið að segja að við (væntanlega Íslendingar) getum grætt á hlýnun jarðar.
Við á loftslag.is renndum í gegnum þessa skýrslu og rétt er að minnast á það að hvergi er minnst á Ísland - enda erum við ekki í Evrópusambandinu.
Reyndar er margt sem þykir mikilvægt fyrir Ísland, ekki rætt í þessari skýrslu, sjá þessa tilvitnun:
This project does not pretend to be comprehensive as relevant impact categories are not included in the assessment. Market impact categories such as fisheries, forests and energy demand/supply changes have not yet been addressed. Other non-market impact categories like biodiversity and potentially catastrophic events are not considered in this study either.
Sem sagt ekki er fjallað um fiskveiðar (og þann markað), skógrækt, né orkuframboð né eftirspurn, spurning hvort óreglulegra rennsli fyrrum jökuláa eigi t.d. eftir að hafa áhrif á orkuframboð hér á landi í framtíðinni - þegar jöklar á Íslandi minnka. Einnig er erfitt að gera sér grein fyrir því hvort um gróða sé að ræða þegar ekki er fjallað um breytingar í vistkerfum og öfgaatburðum t.d. öfgaúrkomu.
Þar sem ekki var fjallað um fiskveiðar, þá kemur það að sjálfsögðu ekki á óvart að ekki er fjallað um súrnun sjávar - en það getur haft töluverð áhrif á fiskveiðar framtíðarinnar.
En þar sem ekki var fjallað um ofangreinda þætti, né Ísland sérstaklega þá verðum við að grípa eitthvað sem gæti verið nálægt þeim aðstæðum sem við búum við á Íslandi.
Við eigum t.d. margt sameiginlegt með Bretlandseyjum, en um heildarefnahagslegu áhrifin þar er sagt meðal annars:
The sectoral and geographical decomposition of welfare changes under the 2.5°C scenario shows that aggregated European costs of climate change are highest for agriculture, river flooding and coastal systems, much larger than for tourism. The British Isles, Central Europe North and Southern Europe appear the most sensitive areas. Moreover, moving from a European climate future of 2.5°C to one of 3.9°C aggravates the three noted impacts in almost all European regions. In the Northern Europe area, these impacts are offset by the increasingly positive effects related to agriculture.
Bretlandseyjar koma því ekki vel út úr þessari skýrslu og því má reikna með, miðað við takmarkanir þessarar skýrslu að sambærileg gildi hefðu komið fyrir Ísland. Um það er þó erfitt að fullyrða.
Það virðist sem að út frá þessu þá komi Norður Evrópa best út (þ.e. Svíþjóð, Finnland og Eystrasaltsríkin). Við eigum lítið sameiginlegt með þeim hvað varðar loftslag.
Svo er það siðferðisleg spurning hvort að rétt sé að meta hvort einhver lönd eigi eftir að "Græða" á hlýnun jarðar? Það bendir nefnilega allt til þess að hluti jarðarbúa eigi eftir að fara illa út úr þeim loftslagsbreytingum sem hugsanlega eru framundan.
Sjá skýrsluna hér: Climate change impacts in Europe - Final report of the PESETA research project
![]() |
Gætum grætt á hlýnun jarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 26.11.2009 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
24.11.2009 | 09:17
Að stela bíl og nota fyrir sjónvarp
Við skrifuðum um ansi heitt málefni fyrir tveimur dögum á loftslag.is (sjá Hakkarar afrita tölvupósta og skjöl).
Hakkarar náðu að afrita tölvupóst loftslagsvísindamanna sem starfa við rannsóknarmiðstöð háskólans í East-Anglia (CRU) í Norwich. Þessir tölvupóstar eða hluti af þeim hefur birst á vefsíðum sem sérhæfa sig í að efast um hlýnun jarðar af mannavöldum og margir fjölmiðlar eru nú farnir að bergmála það sem efasemdamennirnir segja oft án þess að kynna sér hvað vísindamennirnir voru í raun og veru að segja.
Við fjölluðum í raun ekki ítarlega um þetta í upphafi, því okkur fannst líklegt eftir dálítinn lestur að það þyrfti ansi hreint magnaða samsæriskenningasmiði til að sjá eitthvað samsæri og falsanir út úr þessum tölvupóstum.
Meðal annars hafa íslenskir fjölmiðlar birt skrumskældar útgáfur af þessum fréttum það selur víst að skrifa svona fréttir, þótt þær séu illa unnar.
Við tökum eina svona frétt og leiðréttum misfærslur sem þar koma fram í nýrri bloggfærslu á loftslag.is. Sjá Að stela bíl og nota fyrir sjónvarp
22.11.2009 | 23:15
Óvissan mikil
Í nýjasta hefti Nature Geoscience sem er hliðarrit Nature, er bréf til tímaritsins um nýjar niðurstöður á úrvinnslu úr þyngdarmælingar með nýrri kynslóð gervitungla sem nefnist GRACE (Gravity Recovery and Climate Experiment). Hingað til hefur verið vitað að Vestur-Suðurskautið væri að missa massa hratt en gögn hingað til hafa bent til þess að Austur-Suðurskautið væri tiltölulega stöðugt.
Þessar nýju rannsóknir benda til þess að Austur-Suðurskautið sé búið að vera að missa massa síðastliðin þrjú ár, en rétt er að benda á að óvissa er nokkuð mikil.
Á loftslag.is er fjallað meira um þessa óvissu, en það er of snemmt að draga þær ályktanir að þessi massabreyting geti verið af völdum loftslagsbreytinga og þá er enn síður hægt að fullyrða að hún geti valdið 5 m hækkun sjávarstöðu eins og segir í fréttinni sem hér er tengt við.
Sjá meira á loftslag.is: Austur-Suðurskautið líka að missa massa?
![]() |
Suðurskautið bráðnar hraðar en áður var talið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2009 | 08:27
Eru loftslagsmálin einföld eða flókin?
Emil Hannes Valgeirsson hefur skrifað sinn annan gestapistil á Loftslag.is. Að þessu sinni veltir hann upp spurningunni, "Eru loftslagsmálin einföld eða flókin?". Pistillinn byrjar með þessum orðum:
"Eins og flest annað í þessum heimi geta loftslagsmálin í senn verið einföld og flókin. Þau geta líka verið auðskilin eða torskilin en mjög oft eru þau líka misskilin. Fyrir mér eru hugmyndir um hlýnandi loftslag af mannavöldum í sinni einföldustu mynd eitthvað svipaðar því sem sést hér á myndinni."
Einnig má benda á ýmsa aðra gestapistla sem birst hafa á síðunni, m.a. um fugla, jöklabreytingar, Norðurheimsskautið og fleira fróðlegt, sjá gestapistla síðunnar.
19.11.2009 | 13:22
Afleiðingar
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 10:40
Lausnir
Vísindi og fræði | Breytt 19.11.2009 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2009 | 09:43
Súrnun sjávar
16.11.2009 | 14:15
Nokkur lykilatriði um loftslagsfundinn
15.11.2009 | 10:01
Hitastig októbermánaðar á heimsvísu
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2009 | 09:21
Bráðnun jökla og sjávarstöðubreytingar
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.11.2009 | 18:48
Mikilvægur fundur
12.11.2009 | 10:47
Fyrirsagnir um loftslagsmál - TED myndband
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.11.2009 | 14:00
Norræni loftslagsdagurinn - Loftslag framtíðar
10.11.2009 | 09:59
Er jörðin að hlýna?
Vísindi og fræði | Breytt 11.11.2009 kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
9.11.2009 | 15:56
Vendipunktar í loftslagi
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)