Hefur Jörðin kólnað?

Við erum með nýtt myndband á Loftslag.is úr smiðju Potholer54. Þar fjallar hann um þá mýtu sem stundum kemur fram í umræðunni, að Jörðin hafi kólnað síðan 1998, ásamt því hvort aðrar plánetur hafi hlýnað eða ekki. Mikilvægi heimilda er honum einnig ofarlega í huga nú sem áður. Eftirfarandi er hans eigin lýsing á myndbandinu:

Þetta myndband skoðar hvort aðrar plánetur séu líka að hlýna og hvort að internet-mýtan um að NASA hefi rakið hlýnunina beint til sólarinnar sé rétt. Í þessu myndbandi mun ég skoða mikilvægi heimilda – það að rekja heimildirnar til upptakana og fullvissa sig um trúverðugleika þeirra. Ég get heimilda minna í myndbandinu. Heimilda er einnig getið í öllum myndböndunum í röð myndbanda um loftslagsmál hjá mér. Þessi myndbönd eru ekki persónuleg skoðun eða mín eigin kenning; ég er ekki loftslagsvísindamaður eða rannsóknaraðili og ég hef engar forsendur til að gera annað en að greina frá hverju alvöru loftslagsvísindamenn hafa komist í raun um með rannsóknum sínum. Það er því engin meining í því að vera ósammála mér. Ef þér líkar ekki niðurstaðan, taktu það þá upp við rannsóknaraðilana sem ég get í heimildunum. Ef ég hef gert einhver mistök í því að segja frá þeirra niðurstöðum, þá er um að gera að benda mér á það og ég mun með ánægju leiðrétta það. Ef þú telur þig vita betur en sérfræðingarnir, skrifaðu þá grein og fáðu hana birta í virtu, rit rýndu vísinda tímariti.

Já, svo mörg voru þau orð hjá honum. Önnur myndbönd Potholer54 sem við höfum birt má nálgast hér. Myndbandið er svo hægt að sjá í sjálfri færslunni af Loftslag.is - Hefur Jörðin kólnað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sælir.

Hver er Mr. Potholer54? 

Ágúst H Bjarnason, 15.2.2010 kl. 13:15

2 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Hér er það sem hann skrifar m.a. um sjálfan sig á síðunni sinni:

About Me:
 
I've been a journalist for 20 years, 14 years as a science correspondent. My degree is in geology, but while working for a science magazine and several science programs I had to tackle a number of different fields, from quantum physics to microbiology.

Sveinn Atli Gunnarsson, 15.2.2010 kl. 13:42

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Takk Svatli.

Ágúst H Bjarnason, 15.2.2010 kl. 15:35

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvernig geta vísindin og eða vísindaakademían gert sér mál út af 0,5 gráðu hitamismun þegar það er vitað að við búum við allskonar sveiflur í náttúrunni. Ég held að þið ættu að láta þetta vera því nóg hafi þið skaðað mannkynið á þessari vitleysu. Bílaiðnaður komin í rúst út af kröfðu sem eiga sér enga stoð s.s. rafmagnsbílar og hver veit hvað og ekki virt það sem þeir voru sjálfir að gera eins og sparneytnari bensín og dísil bílar.  

Valdimar Samúelsson, 15.2.2010 kl. 19:42

5 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Valdimar; það eina sem við viljum persónulega gera með síðunni Loftslag.is er að segja frá því sem vísindin hafa um loftslagsmál að segja. Ekki held ég að mannkynið skaðist af því að hafa upplýsingar byggða á vísindalegri þekkingu, við höfum reyndar komist þangað sem við erum í dag, m.a. með því að byggja upp þekkingu með hjálp vísindanna.

Bílaiðnaðurinn þarf að sjálfsögðu eins og allir aðrir sem framleiða vörur að skoða hvar eftirspurninn liggur og taka  ákvarðanir út frá því. 

Sveinn Atli Gunnarsson, 15.2.2010 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband