Fyrirlestrar Kunda Dixit – Loftslagsbreytingar og bráðnun jökla Himalæjafjalla

Loftslagsbreytingar og bráðnun jökla Himalæjafjalla
Fimmtudagurinn 11. nóvember, kl. 16.30, Háskólatorgi, stofu 105

Kunda_Dixit

Í fyrirlestrinum fjallar Kunda Dixit um áhrif loftslagsbreytinga á Himalæjafjöllin, þ.e. hvernig hlýnun jarðar er að bræða þessa miklu vatnsturna Asíu. Kunda Dixit mun sýna myndir frá Nepal, en á þeim sést glögglega að sífrerar Himalæjafjallanna eru að hverfa um þrisvar sinnum hraðar en á öðrum stöðum í heiminum. Hvaða áhrif hefur þessi þróun á Nepal og svæðið sem heild? Hvernig geta fátæk lönd tekist á við vandamál sem þau áttu engan þátt í að skapa? Hvernig fjalla fjölmiðlar um þetta ástand?

Fundarstjóri: Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur og rithöfundur.

Þetta er fyrri fyrirlesturinn af tveimur, sá seinni fjallar um blaða og fréttamennsku á átakatímum, sjá nánar, Fyrirlestrar Kunda Dixit – Loftslagsbreytingar og bráðnun jökla Himalæjafjalla 

Tengt efni á loftslag.is:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband