Earth 2100

Datt í hug að benda á þátt/heimildamynd sem var víst í sjónvarpinu vestanhafs í gærkvöldi á sjónvarpstöðinni ABC. Þetta er þáttur sem hefði verið alveg við mitt hæfi, heimildamynd með vísindaívafi og töluverðu drama og heimsendapælingum. Myndin segir frá Lucy sem fæddist í gær og ævi hennar út öldina - inn í söguna sýnist mér að séu fléttuð viðtöl við sérfræðinga í loftslagsmálum. En því miður hafði ég ekki tækifæri á að sjá þáttinn- kannski getur maður skoðað hann einhvern tíma síðar. En hér er frétt um þáttinn og síðan trailer:

Hægt er að skoða ýmislegt um þáttinn/heimildarmyndina á þessari síðu, meðal annars myndbrot: Smelltu hér

Ég hvet hér með RÚV til að sýna þáttinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftslag.is

Ég rakst á bloggara sem fjallar um þessa mynd og aðra mynd sem ég hef bent á hér (Age of stupid), en ég hef hvoruga séð.

Loftslag.is, 4.6.2009 kl. 14:41

2 Smámynd: Magnús Karl Magnússon

Þakka þér fyrir að halda uppi þessu frábæra bloggi þínu. Þetta er sannkallaður fróðleiksbrunnur og ekki amalegt að hafa aðgang að íslensku efni sem hægt er að vísa í þegar "afneitunarsinnar" koma með sín hefðbundnu rök sem marg er búið að hrekja.

Enn og aftur - bestu þakkir. Frábært blogg...

Magnús Karl Magnússon, 8.6.2009 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband